Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar 4. nóvember 2026 08:31 Heyrði ég rétt þegar ég hlustaði á kvöldfréttir á RUV í gær ? Fyrrverandi forseti lýðveldisins var að tala um einn ráðherrann í ríkisstjórn Ísland, sem hefur setið lengst á alþingi af þeim sem sitja þar nú. Hann sagði hana tala í götustelpu stíl. Fletti orðinu götustelpa upp í orðabók og það þýðir illa siðuð stúlka. Hvað nýja stíl er fyrrum forseti okkar farinn að tileinka sér ? Getur verið að hann þurfi að tala niður til öflugra kvenna líkt og collegi hans vestanhafs gerir ítrekað og þannig reyna að upphefja sjálfan sig. Það eru vond siðaskipti hjá honum sem reyndar hefur margsannað að það er í lagi að skipta um skoðun og sigla með hinu liðinu næst. Berast bara eftir því hvaða vindar blása. En utanríkisráðherra okkar er engin götustelpa hvað þá illa siðuð. Heldur öflug kona sem þorir að láta kné fylgja kviði. Stofnar sinn eigin flokk og fylgir sínu máli eftir alla leið. Tekur ósigri með sóma og heldur áfram að settu marki. Gefst ekki upp. Hittir ráðamenn í æðstu stöðum út um allan heim og tekur höfðinglega á móti gestum hér heima. Við Íslendingar getum verið stolt af því að eiga svona glæsilegan fulltrúa í samstarfi erlendra ríkja. Hún er vissulega stelpuleg og töffari í útliti, alltaf brosandi og kemur til dyranna eins og hún er klædd. Hefur verið undir eflaust miklu álagi að undanförnu á mörgum vígstöðvum. Þarf líklega ekki að bæta við fleiri átaka stöðum hvað þá að munnhöggvast við fólk á eftirlaunum sem hafa lokið sínum störfum. Ég vil taka það fram að ég hef ekki kosið Viðreisn eða verið sérstakur aðdáandi þess flokks en ég hef aðeins kynnst konunni sem gegnir þessu mikilvæga embætti fyrir þjóð sína og gerir það vel. Við vorum saman í stuttri stelpu ekki götustelpu ferð þó, síðast liðið sumar. Þorgerður Katrín er skemmtileg, heillandi kona sem gaman er að vera með. Hún er skvísa, töffari, staðföst og mikil keppnis manneskja. Gefur af sér í öllum samskiptum og það er gaman að hlægja með henni. Algjörlega laus við hroka eða yfirlæti hvað þá þörf fyrir að tala aðra niður til að reyna að upphefja sjálfa sig. Eitthvað annað en sumir götu strákarnir sem hafa aldrei lært að hegða sér. Verum stolt af okkar utanríkisráherra og styðjum hana í hennar verkum. Vöndum mál okkar og reynum að tala fallega við og um hvert annað, þá náum við settu marki. Höfundur er læknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ebba Margrét Magnúsdóttir Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun