Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Birgir Olgeirsson skrifar 3. september 2026 16:21 Frá vinstri eru Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og formaður stjórnar SSH, Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar og varaformaður borgarráðs og Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs. Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins var lögð fyrir borgarráð í dag. Nefndin vill að stjórn SSH ákveði hvort endurskoða eigi samkomulag sveitarfélaganna um uppbyggingu Skálafells. Vilhelm Framtíð skíðasvæðisins í Skálafelli er á ný komin á borð sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu verður beðin um að taka afstöðu til þess hvort endurskoða eigi samkomulag um uppbyggingu svæðisins frá árinu 2018.
Þetta kemur fram í fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 19. ágúst sem lögð var fyrir borgarráð í dag. Samstarfsnefndin samþykkti að óska eftir umræðu og formlegri ákvörðun stjórnar SSH um hvort endurskoða eigi samkomulag sveitarfélaganna, þar á meðal framkvæmdaáætlun og fjárhæðir. Engin ákvörðun hefur því verið tekin um að hætta við uppbyggingu Skálafells. Af fundargerðinni má þó ráða að ólíkar áherslur séu meðal sveitarfélaganna. Stólalyftan í Skálafelli. Skíðasvæðið hefur verið lokað undanfarin ár og sveitarfélögin þurfa nú að ákveða hvort haldið verði áfram með uppbyggingu þess.JMG Fulltrúi Seltjarnarness vísaði til þess að kostnaður við fyrirhugaða uppbyggingu í Skálafelli gæti numið nokkrum milljörðum króna og vildi að áformin yrðu tekin til gagngerrar endurskoðunar áður en lengra yrði haldið. Fulltrúi Mosfellsbæjar lagði aftur á móti áherslu á að staðið yrði við samkomulagið frá 2018 og skíðasvæðið opnað á ný eins fljótt og unnt væri. Ekki fylgir sundurliðuð kostnaðaráætlun vegna Skálafells fundargerðinni. Framkvæmdirnar hafa ekki gengið eftir Sex sveitarfélög undirrituðu árið 2018 samkomulag um endurnýjun skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli. Þar var meðal annars gert ráð fyrir endurnýjun stólalyftu og snjóframleiðslu í Skálafelli. Samkvæmt framtíðarsýn skíðasvæðanna átti stólalyftan að koma árið 2023 og snjóframleiðsla að hefjast árið 2025. Hvorugt hefur gengið eftir. Skíðafólk í Bláfjöllum. Uppbygging skíðasvæðanna þar og í Skálafelli var hluti af sama samkomulagi sveitarfélaganna frá árinu 2018.Vilhelm Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Bláfjöllum en framkvæmdir í Skálafelli hafa setið á hakanum og svæðið verið lokað undanfarin ár. Vísir fjallaði um málið í febrúar 2025, þegar hópurinn Opnum Skálafell sakaði sveitarfélögin um að hlaupast undan gefnum loforðum. Á fundi samstarfsnefndarinnar í ágúst var jafnframt samþykkt að verja allt að 15 milljónum króna í drenlagnir í Bláfjöllum og allt að tíu milljónum í undirbúning snjóframleiðslu þar. Málið er nú komið til stjórnar SSH sem þarf að ákveða hvort samkomulagið frá 2018 standi óbreytt eða verði endurskoðað.
Borgarstjórn Reykjavík Skíðasvæði Skíðaíþróttir Mosfellsbær Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira