Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina

Andri Broddason skrifar
Donyell Malen skoraði þrennu gegn Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni.
Donyell Malen skoraði þrennu gegn Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni. Fabio Rossi/Getty Images

Roma valtaði yfir Fiorentina í fyrstu umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar en leikurinn endaði 3-0. Donyell Malen skoraði þrennu en Albert Guðmundsson var á bekknum allan leikinn.

Strax frá fyrstu mínútu var ljóst að Roma yrði sterkara liðið. Fyrsta mark leiksins kom á 27. mínútu en það hafði legið í loftinu lengi. Þar lagði Donyell Malen boltann í netið eftir sendingu frá Paulo Dybala.

Staðan var 1-0 þangað til snemma í seinni hálfleik þegar Donyell Malen skoraði sitt annað mark úr þröngu færi. Þetta var svipuð uppskrift og fyrra markið þar sem Dybala gaf stoðsendinguna fyrir annað markið líka.

Aðeins nokkrum mínútum síðar náði Malen að fullkomna þrennuna af stuttu færi og enn á ný var það eftir sendingu frá Dybala. Fiorentina hafði fá svör við yfirburðum Roma og var nánast aðeins eitt lið á vellinum.

Roma gulltryggði svo 4-0 sigur á 86. mínútu þegar Niccolo Pisilli skoraði af stuttu færi. Þetta var ekki góður dagur fyrir vörn Fiorentina en mjög sannfærandi sigur fyrir Roma sem byrja sterkt í ítölsku úrvalsdeildinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira