Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar 16. ágúst 2026 14:46 „Bráðum kemur ekki betri tíð, því betri getur tíðin ekki orðið.” Þessi ódauðlegu orð Stuðmanna duttu í kollinn á mér þegar ég settist niður til að skrifa þessa grein. Eftir að veðurguðirnir stríddu okkur hér á suðvesturhorninu í vikunni og komu í veg fyrir að við sæjum til sólar þegar almyrkvinn gekk yfir er nú heiðskírt og sólin skín. Ég er sammála Stuðmönnum um að tíðin geti ekki orðið mikið betri hér á okkar ágæta landi, ekki bara vegna sólarinnar þessa dagana heldur líka vegna þess að hér er gott að búa. Við Íslendingar búum við virkilega góð lífskjör í öllum alþjóðlegum samanburði. Þeim árangri höfum við náð sjálf, með dugnaði og elju og auðvitað í góðu samstarfi við aðrar þjóðir í öllum þeim málefnum sem skipta okkur máli. ESB vegferðin tilkomin vegna pólitískra hrossakaupa Hvað meina ég með því að ESB vegferðin sé tilkomin vegna pólitískra hrossakaupa? Jú, ég tel að utanríkisráðherra og flokkur hennar sé að ýta málinu í gegn í ríkisstjórninni vegna þess að flokkur hennar þarf að fá eitthvað fyrir sinn snúð. Samfylkingin fékk stórhækkun veiðigjalds á sjávarútveginn í gegn, Flokkur fólksins fékk tengingu bóta við launavísitölu í gegn og nú er komið að Viðreisn að fá sínu máli framgengt. Svona gerast kaupin á eyrinni stundum í stjórnmálunum, en það virðist ekki vera að allir ríkisstjórnarflokkarnir hafi áhuga á að fara í þessa vegferð. Í viðbót við það eru allir stjórnarandstöðuflokkarnir á móti því að fara í viðræður við ESB á þessum tímapunkti, þar eru ýmsar ástæður að baki vegna ólíkra áherslna flokkanna. Niðurstaðan, ef horft er blákalt á málið, er sú að það er líklega ekki þingmeirihluti fyrir viðræðunum og mögulegri inngöngu í ESB eins og staðan er í dag. Ég hef á tilfinningunni að ef niðurstaða kosninganna nú í ágúst verður sú að meirihluti landsmanna styðji áframhald aðildarviðræður við ESB þá yrði sá meirihluti mjög naumur. Það væri ekki gott veganesti í svo stóru máli. Ofan á það er líklega er ekki meirihluti á þingi fyrir viðræðunum sem gerir það virkilega flókið fyrir ríkisstjórnina að sigla þessu máli farsællega í höfn á næstu árum. Hlustum á raddir úr atvinnulífinu Talsmenn tveggja af grunnatvinnuvegum landsins, sjávarútvegs og landbúnaðar, hafa lýst því yfir með skýrum hætti að félagsmenn þeirra séu á móti inngöngu í ESB og þar með því að halda áfram aðildarviðræðum. Þessar atvinnugreinar eru ein helsta ástæða þess að við höfum getað lifað af síðustu aldir hér á landi og þær verða það áfram um ókomna tíð. Ég hlusta á afstöðu þeirra og óska þess að allir Íslendingar geri það líka vegna þess að það er í þágu okkar allra og í raun spurning um að við þraukum sem þjóð hér á norðurhjara að þessum atvinnugreinum vegni vel. Önnur staðreynd sem fram hefur komið í umræðunni er sú að við Íslendingar munum greiða meira inn í stjórnsýslu ESB en við fáum nokkurn tímann til baka. Ég treysti okkur sjálfum, þingi og stofnunum mun betur til þess að deila skatttekjunum okkar á réttlátan og uppbyggjandi hátt en áhugalausum stjórnsýsluher í Brussel. Öll kerfi og löggjöf hér á Íslandi eru mannanna verk sem hægt er að breyta ef við viljum og ef þörf krefur. Sú vinna á að vera forgangur og það sem við eyðum tíma okkar og orku í á næstu árum, ekki karp um hvort eða hvenær við göngum í Evrópusambandið. EES-samningurinn er nóg Í dag erum við með þann aðgang að mörkuðum Evrópu sem við þurfum í gegnum EES-samninginn, sem og hentuga viðskiptasamninga við þjóðir utan ESB. Við sem einstaklingar erum líka með möguleika á að mennta okkur og starfa að vild í löndum sambandsins, sem margir hafa nýtt sér. Mín skoðun er því að á meðan EES-samningurinn er í gildi þurfum við ekki inngöngu í ESB. Ef það breytist í framtíðinni þá eru það auðvitað nýjar forsendur sem taka þarf tillit til. Ég er ekki að segja nei við Evrópu. Evrópa er frábær og hefur upp á marga möguleika að bjóða. Ég er að segja nei við áframhaldandi aðildarviðræðum við ESB. Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í SV kjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Sjá meira
„
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun