Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2026 06:33 Jeff Bezos er eigandi Amazon, Washington Post og Blue Origin og nú vill hann eignast hlut í enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool. AP/John Locher Stuðningsmenn Liverpool kalla eftir frekari upplýsingum vegna hugsanlegra kaupa fjárfestahóps sem tengist Jeff Bezos á eignarhluta í enska úrvalsdeildarfélaginu.
Stuðningsmannahópurinn Spirit of Shankly (SoS) hefur sent Liverpool bréf til að leggja áherslu á að eignarhald og stjórn félagsins séu „grundvallaratriði fyrir okkur öll“ en fjárfestahópur, sem stofnandi Amazon, Jeff Bezos, er hluti af, er talinn vera að ganga frá samningi um kaup á umtalsverðum minnihluta. Bezos, einn af þremur ríkustu mönnum heims, hefur enga fyrri reynslu af fjárfestingum í íþróttaliði, þótt hann hafi verið orðaður við yfirtöku á NFL-liðinu Washington Commanders og áður Seattle Seahawks. Áætluð persónuleg auðæfi hans, 283 milljarðar dala en hann er hluti af hópi sem inniheldur Eduardo Saverin, meðstofnanda Facebook, og er undir forystu Amit Bhatia, tengdasonar indverska stáljöfursins Lakshmi Mittal. Supporters’ group Spirit of Shankly has written to Liverpool to emphasise that governance and stewardship remains "fundamental to us all", as Amazon founder Jeff Bezos forms part of a consortium nearing a deal to acquire a stake in the club.Read more: https://t.co/GEkDxauxy1 pic.twitter.com/whh9Dj2YYW— The Independent (@Independent) August 11, 2026 Bhatia er eini stóri aðilinn sem hefur einhverja sögu af rekstri íþróttafyrirtækis, en hann lét af störfum sem meðeigandi og stjórnarmaður Queens Park Rangers í síðasta mánuði eftir átján ár þar. SoS skrifaði Liverpool og óskaði eftir frekari skýringum og fundi til að ræða hugsanlegar breytingar. „Við ítrekuðum að í ljósi þeirra atburða sem leiddu til kaupa FSG (Fenway Sports Group) á félaginu, þá er það grundvallaratriði fyrir okkur öll hver á það og hvernig þeir stjórna því – með hagsmuni LFC og stuðningsmanna þess í fyrirrúmi,“ sagði í yfirlýsingu frá stuðningsmannahópnum. „Nýjustu fréttir af 30% sölu og fjárfestahópnum sem settur var saman til að kaupa hana eru mikilvægar. Eignarhald og umsjón með félaginu okkar er forgangsmál fyrir SoS og alla stuðningsmenn. Við höfum orðið vitni að svipuðum sölum hjá öðrum félögum sem hafa leitt til verulegra breytinga á rekstri félagsins og fótboltastarfsemi, sem hefur leitt til ákvarðana og hegðunar sem margir vildu ekki sjá hjá Liverpool.“ We wrote to the club last month following initial reports of a potential sale of a stake in LFChttps://t.co/ptDqA7eino pic.twitter.com/WX68DyXUlv— Spirit of Shankly (@spiritofshankly) August 11, 2026 Eigandi Liverpool, FSG, hefur alltaf verið opinn fyrir utanaðkomandi fjárfestingum, enda hefur verðmæti félagsins rokið upp úr þeim 300 milljónum punda sem þeir greiddu árið 2010 í um 4,5 milljarða punda nú. SoS hefur beðið Liverpool um upplýsingar um hvaða hlutverki nýju fjárfestarnir munu gegna hvað varðar sæti í stjórn og hversu mikil aðkoma þeirra verður að stjórn félagsins innan vallar sem utan. FSG hefur ekki tjáð sig opinberlega síðan í yfirlýsingu í síðasta mánuði þar sem sagði: „Fjárfestahópur undir forystu, stjórn og fulltrúa Amit Bhatia hefur lýst yfir áhuga á að gera stefnumótandi minnihlutafjárfestingu í Liverpool.“
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Fleiri fréttir Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Sjá meira