Handbolti

Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“

Aron Guðmundsson skrifar
Viktor Gísli missir ekki af leik hjá íslenska landsliðinu á EM undir átján ára landsliða þar sem litli bróðir hans, Alex Unnar, er að spila. Strákunum okkar gengur afar vel á mótinu og þeir mæta Þjóðverjum í dag í átta liða úrslitum
Viktor Gísli missir ekki af leik hjá íslenska landsliðinu á EM undir átján ára landsliða þar sem litli bróðir hans, Alex Unnar, er að spila. Strákunum okkar gengur afar vel á mótinu og þeir mæta Þjóðverjum í dag í átta liða úrslitum Vísir/Samsett

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn í handbolta, Viktor Gísli Hallgrímsson, fylgist stoltur með bróður sínum á Evrópumóti undir átján ára landsliða þar sem að landslið Íslands er að slá í gegn og á fyrir höndum krefjandi verkefni í átta liða úrslitum gegn Þjóðverjum í dag. 

Alex Unnar Hallgrímsson er litli bróðir Viktors og spilar með uppeldisfélaginu Fram hér á landi. Hann hefur verið öflugur í vinstra horninu á yfirstandandi Evrópumóti en þar hefur Ísland ekki tapað leik til þessa. 

Viktor Gísli missir ekki af leik með liðinu á mótinu.

„Þetta er búinn að vera draumur hans í mjög langan tíma,“ segir Viktor í samtali við Vísi um bróður sinn. „Hann var ekki valinn í fyrstu úrtökin, það var erfitt fyrir hann en hann er búinn að vera helvíti duglegur síðustu tvö til þrjú árin. Ég er mjög stoltur af honum. Það er búið að ganga vel hjá honum líka og gaman að sjá alla vinnuna sem hann hefur lagt í þetta skila sér í þessu. Þetta er hörku lið.“

Foreldrar drengjanna eru úti að fylgja íslenska landsliðinu eftir.

„Þau segja að það sé geggjuð stemning í kringum liðið. Gaman að sjá einu af okkar yngri landsliðum ganga svona vel. Það hefur kannski liðið smá tími frá því að það var eitthvað lið sem var að gera alvöru hluti. Að sjá hann vera partur af svona góðu liði er helvíti gaman.“

Bestu minningarnar

Sjálfur þekkir Viktor Gísli það að vera hluti af góðu yngra landsliði Íslands hann var hluti af silfurliðinu árið 2018. 

„Þetta eru bestu minningarnar sem ég á úr handboltanum. Ég sagði það við Alex að njóta þess að vera þessum mótum. Þetta eru lang skemmtilegustu mótin sem þú munt nokkurn tímann taka þátt í. Félagslega séð og upp á minningarnar að gera.

Þetta eru skemmtilegustu minningarnar sem ég á frá mínum handboltaferli. Að spila á þessum mótum með þessum gæjum. Margir af þeim eru mínir bestu vinir í dag.“

Ísland og Þýskaland mætast klukkan þrjú í dag í átta liða úrslitum Evrópumóts undir átján ára landsliða. Leiknum verður lýst í beinni textalýsingu á Vísi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×