Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Aron Guðmundsson skrifar 5. ágúst 2026 15:01 Perla Sól Sigurbrandsdóttir freistar þess að verða Íslandsmeistari í annað sinn á ferlinum á Íslandsmótinu í golfi um komandi helgi. Mótið hefst á morgun og verður spilað á heimavelli Perlu, Korpúlfsstaðavelli. Vísir/Getty Spennan er farin að magnast fyrir Íslandsmótið í golfi sem hefst á Korpúlfsstaðavelli á morgun. Íslandsmeistarinn í kvennaflokki frá árinu 2022 sem spilar nú á heimavelli er gríðarlega ánægð með keppnisvöllinn.
Leikinn verður 72 holu höggleikur yfir fjóra keppnisdaga en eftir fyrstu 36 holurnar verður skorið niður í hópi kylfinga fyrir síðustu tvo keppnisdagana. Mikið er lagt í umgjörðina í kringum mótið, bæði fyrir kylfinga sem og áhorfendur. Íslandsmótið stærsta og virtasta mótið á ári hverju. Kylfingarnir sem taka þátt finna fyrir bættri umgjörð. Þeirra á meðal er ríkjandi Íslandsmeistarinn í kvennaflokki, Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefur fjórum sinnum unnið Íslandsmótið í golfi.Getty/Charles McQuillan „Mér finnst það frábært hvað bæði Golfsambandið og klúbbarnir hafa verið að gera í þessum efnum. Það er ótrúlega gaman að labba hingað og finna fyrir því að maður sé mættur á Íslandsmótið. Það gerir þetta skemmtilegt. Vonandi hvetur þetta fólk líka til þess að mæta á völlinn og horfa á.“ Verður mjög flott mót Ríkjandi Íslandsmeistarinn í karlaflokki, Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR sem einmitt leikur á heimavelli á mótinu, er gífurlega ánægður með að sjá hversu mikið er lagt í mótið. „Já þetta er náttúrulega hrikalega flott hjá öllum að halda mótið hérna og sjá hvað umgjörðin er orðin flott í kringum þetta. Þetta er alltaf að verða betra og betra. Þá eru kylfingarnir alltaf að verða betri og betri. Þetta verður mjög flott mót í ár.“ Yfirlitsmynd af keppnissvæðinu á Íslandsmótinu í golfi sem hefst á morgun.Mynd: GSÍ Breytingar sem að vekja upp gamlar minningar Systir hans, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, sem varð Íslandsmeistari í fyrsta og eina skiptið til þessa árið 2022, er sama sinnis. Gerðar hafa verið ýmsar breytingar á vellinum til fyrir Íslandsmótið og það vekur upp nostalgíu hjá Perlu en hún og Dagbjartur þekkja Korpúlfsstaðavöllinn inn og út. „Teigarnir hjá okkur hafa færst svolítið aftar,“ segir Perla aðspurð hvernig breytingarnar leggjast í hana. „Mér finnst þetta geggjað því völlurinn er eiginlega orðin alveg eins og þegar að ég spilaði hann þegar að ég var lítil. Ég sló styttra þá. Núna er ég að slá svipuð inn á högg og ég gerði þegar að ég var lítil. Mér finnst það geggjað.“ Dagbjartur tekur undir með systur sinni. „Þetta er mjög góður punktur hjá Perlu. Eins og á elleftu holu núna. Teigurinn er kominn yfir ána hjá okkur. Það er búið að lengja hana um einhverja sjötíu metra. Tilfinningin er eins og þegar maður var fjórtán ára að spila í fyrsta sinn á hvítu teigunum. Þá slær maður bara hægra megin við sandgryfjuna og þá er þetta orðin alvöru par fimm hola. Þá eru nýir teigar á sjónum líka (hluti Korpúlfsstaðavallar ber nafnið Sjórinn), þá verður níunda holan einnig mjög flott. Þetta er mjög flott hjá GR, að bæta aðeins upp á fyrir lengri kylfingana.“ Nánar verður rætt við Dagbjart og Perlu Sól um komandi Íslandsmót í Sportpakkanum á Sýn í kvöld að loknum kvöldfréttum.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Íslenski boltinn „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport Boxari látinn 33 ára: Varð fyrir alvarlegum heilaskaða í bardaga Sport Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Enski boltinn Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Fótbolti Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Íslenski boltinn „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Fótbolti Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Enski boltinn Fleiri fréttir Efnilegur ástralskur kylfingur lést aðeins átján ára Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Hlynur byrjaði betur en Íslandsmeistarinn Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti „Þegar ég var yngri var bara gert grín að mér að ég væri í golfi“ Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Vann LIV-mótaröðina annað árið í röð Íslandsmeistari annað árið í röð eftir algjöra yfirburði Guðrún Brá Íslandsmeistari og föðurbetrungur Gífurleg spenna á Íslandsmótinu í golfi 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Guðrún Brá lék best alla og er komin í efsta sætið Dagbjartur áfram í frábærum gír í titilvörninni „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Íslandsmótinu í golfi Elsa Maren með sex fugla á síðustu sjö holunum Gæti skákað föður sínum: „Þetta verður spennandi“ Á heimavelli og freista þess að ná montrétti fjölskyldunnar Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Tíu fyrrum Íslandsmeistarar keppa á Íslandsmótinu í golfi í ár Vann bráðabanann eftir að hafa beðið lengi í klúbbhúsinu Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Sjá meira