Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar 5. ágúst 2026 09:03 Ég hef tekið virkan þátt í umræðunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 29. ágúst og hef ég ekki farið leynt með það að ég muni merkja við nei á mínum kjörseðli. Ég hef því oft verið spurður að því af hverju ég sé svona hræddur við það að sjá samninginn. Það má þakka frábærri markaðssetningu já-sinnanna fyrir það hversu oft fólk veltir þessari spurning fyrir sér. En sú markaðssetning hefur snúist um það að auglýsa aðildaviðræður sem eitthvað algjörlega saklaust og kostnaðarlaust ferli, að þetta sé bara svo einfalt að við kíkjum bara í einhvern pakka og hefur þessu verið líkt við það að fara í atvinnuviðtal. Hér er hins vegar um algjöran misskilning að ræða og mér finnst mikilvægt að það sé dregin upp rétt mynd af því hvað muni eiga sér stað ef niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verður já. Hvað felst í því að hefja aðildarviðræður? Ef þjóðin kýs með því að hefja aðildaviðræður við Evrópusambandið á ný þá fer af stað eftirfarandi ferli (sem er að finna á heimasíðum ESB): Þarna kemur skýrt fram að þetta ferli hefst á umsókn að Evrópusambandinu. Ríkisstjórnin segir að þess þurfi ekki þar sem viðræðurnar eigi að byggja á fyrri viðræðum (2010-2013), en þær viðræður hófust einmitt með bréfi sem þáverandi ríkisstjórn sendi til ESB þar sem það var tekið skýrt fram að það væri verið að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Hvort aðlögun myndi hefjast samhliða viðræðunum er umdeilt og verður ekki rætt frekar hér. Hins vegar er það tekið mjög skýrt fram í skrefi 6 að umsóknarríki þurfi að aðlaga sig að Evrópusambandinu. Um er að ræða margra ára ferli, sem tæki að öllum líkindum 3-4 ár að klára. Evrópusinnar halda því margir hverjir fram að ferlið muni einungis taka 12-18 mánuði. Ef samningaviðræður færu fram á svo skömmum tíma tel ég að veruleg hætta væri á því að íslenskir hagsmunir fengju ekki þá umfjöllun sem þeir krefjast og að niðurstaðan yrði lakari en ella. Hinn óbeini kostnaður viðræðna Það er mikilvægt að átta sig á því að aðildarviðræður myndu kalla á verulega þátttöku stórs hluta stjórnsýslunnar. Hún mun hvorki hafa tímann eða burðina til þess að sinna innanríkismálum af þeirri ákefð sem þurfa þykir. Að mínu mati myndi það draga úr getu stjórnvalda til að ráðast í stórar umbætur á öðrum sviðum á meðan viðræðurnar stæðu yfir. Það myndi bitna á engum öðrum en almenningi í landinu og þeim mun lengur sem viðræðurnar myndu taka, þeim mun verra yrði það fyrir almenning. Af hverju myndi nokkur maður leggja það á almenning einungis til að „sjá hvað er í boði“ ef hann er ekki hlynntur Evrópusambandsaðild til að byrja með og er líklegur til þess að kjósa nei í seinni kosningunum?Annað sem er mikilvægt að taka með inn í reikninginn er að verulegar líkur eru á því að allt annað alþjóðarsamstarf, svo sem fríverslunarsamningar við önnur ríki, myndi staðna á meðan að aðildarviðræðum stæði. Af hverju ætti ríki að leggja á sig vinnu við það að þróa fríverslunarsamninga við annað ríki sem er í miðju ferli þess að segja sig úr þeim, en það er ljóst að við inngöngu inn í ESB myndu allir okkar fríverslunarsamningar við önnur ríki falla úr gildi, þar sem það er Evrópusambandið sem gerir þá samninga sem heild, en ekki einstaka lönd innan þess.Í mörgum alþjóðastofnunum, þar sem Evrópusambandið talar einum rómi fyrir aðildarríkin, myndi Ísland ekki lengur eiga eigið sæti. Í stað þess að hafa sjálfstæða rödd við þau borð myndum við eiga óverulegri hlutdeild í sameiginlegri rödd Evrópusambandsins. Við myndum því gefa upp hundrað prósent sæti við önnur borð til að fá örprósentu af sæti við ESB borðið. Er vegferðin þess virði? Í ljósi þess hvernig aðildarferlið gengur fyrir sig og þeirra áhrifa sem það myndi hafa á stjórnsýsluna, með tilheyrandi afleiðingum fyrir almenning, finnst mér sérkennilegt að halda því fram að þeir sem ekki vilja leggja í þessa vegferð séu einfaldlega hræddir við að sjá samninginn.Þeir sem mig þekkja vita að ég er stoltur maður, en ég er nú samt ekki það stoltur að ég sé tilbúinn að leggja fórnarkostnað aðildarviðræðna á almenning til þess eins að sanna það að ég hafi haft rétt fyrir mér þegar engar af undanþágunum sem hefur verið lofað fást og þjóðin hafnar samningnum í seinni kosningunum. Til þess að ég væri tilbúinn að leggja slíkan kostnað á almenning þyrfti ég að vera sannfærður um að aðild að Evrópusambandinu myndi bæta lífsgæði Íslendinga. Án þeirrar sannfæringar ætti ég erfitt með að horfa framan í fólk eftir að hafa greitt atkvæði með því að hefja þetta ferli. Ég tel það því ekki vera hræðslu við að sjá samning að segja nei ef maður hefur ekki sannfæringuna um að Íslandi sé betur borgið innan ESB. Aftur á móti tel ég að um algjöra fífldirfsku sé að ræða að kjósa já ef þessi sannfæring er ekki til staðar og ég tala nú ekki um ef kjósandinn telur sig líklegan til þess að kjósa nei í seinni kosningunum. Kjósendur þurfa því í raun að taka afstöðu til aðildar að Evrópusambandinu mun fyrr en haldið hefur verið fram. Áður en hægt er að ákveða hvort ráðast eigi í margra ára aðildarviðræður þarf fyrst að svara grundvallarspurningunni: Er aðild að Evrópusambandinu markmið sem réttlætir þann kostnað og þær byrðar sem slíkt ferli hefur í för með sér? Án afstöðu til þeirrar spurningar er ómögulegt að meta hvort vegferðin sé þess virði. Hlekkur að aðildarferlinu á heimasíðu ESB: https://enlargement.ec.europa.eu/system/files/2022-10/eu_accession_proc Höfundur er fjármálaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir Skoðun