Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Valur Páll Eiríksson skrifar 29. júlí 2026 07:00 Stefán Árnason hefur verið þjálfari um langt árabil en hefur nú tekið stökkið til Kúveit. vísir/Viktor Freyr Eftir að hafa verið sagt upp á fertugsafmælisdaginn hefur handboltaþjálfarinn Stefán Árnason á vit nýtta ævintýra. Hann þjálfar nú í Kúveit.
Stefán er með töluverða reynslu af þjálfun hér heima en hann stýrði til að mynda bæði Selfossi og KA í Olís-deildinni hér heima og varð svo aðstoðarþjálfari Gunnars Magnússonar í Aftureldingu. Hann tók við sem aðalþjálfari þegar Gunnar færði sig til Hauka en var sagt upp í vor, og það á sjálfan fertugsafmælisdaginn. „Svona er bara boltinn, það er bara þannig. Ég er búinn að vera í Aftureldingu í fjögur frábær ár. Fyrst með Gunna Magg og með yngri flokkana í þrjú ár og síðan tók ég við meistaraflokknum. Þetta var ótrúlega góður tími og á mínum 20 ára þjálfaraferli örugglega mín bestu ár í þjálfun,“ segir Stefán í Sportpakkanum á Sýn. Aðeins flóknara en að fara til Köben Líkt og áður segir hefur Stefán komið víða við hér heima en eftir uppsögnina tók hann stórt stökk, alla leið til Kúveit, þar sem hann mun aðstoða Aron Kristjánsson með landsliðið auk þess að stýra yngri landsliðum. „Hérna er lífið svolítið öðruvísi en maður er vanur. Það var nú viðbúið og ein af ástæðunum fyrir því að maður er að fara í svona verkefni. Það er svolítið heitt hérna, á mælinum eru þetta 43-45 gráður,“ „Maður fær nú ekki mörg svona tækifæri að flytja hinu megin á hnöttinn,“ segir Stefán. Stefán var fljótur að segja já þegar Aron hafði við hann samband. Það gekk hratt og vel að ganga frá samningum en þegar kom að flutningum var það eilítið snúnara mál. Þetta hafði stuttan aðdraganda en það tekur smá tíma að safna saman skjölum og skila inn allskonar hlutum til að fá leyfi til að vinna hérna.“ Þannig að þú ert búinn að liggja í pappírsvinnu í aðdragandanum? „Já, þetta er aðeins flóknara en að fljúga til Danmerkur. Að ætla að fljúga hingað og fara að vinna. Það þarf nokkur skjöl og læknisskoðun, og svo aðra læknisskoðun, til að sýna fram á að maður sé nú ekki með einhverja smitsjúkdóma og eitthvað. En það góða er að maður sér að maður er við hestaheilsu,“ segir Stefán léttur.
Olís-deild karla Kúveit Íslendingar erlendis Afturelding Mest lesið Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Íslenski boltinn 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Enski boltinn Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Fótbolti Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Íslenski boltinn Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Fótbolti Haukar og Selfoss leika til úrslita Íslenski boltinn Real kastaði næstum frá sér sigrinum Fótbolti Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Fótbolti Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fótbolti Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira