Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Samúel Karl Ólason skrifar 23. júlí 2026 10:26 Víða um Mið-Austurlönd hefur þurft að draga úr framleiðslu á olíu og jarðgasi vegna stríðsins gegn Íran. AP/Leo Correa Olíuverð hefur haldið áfram að hækka í dag, samhliða aukinni útbreiðslu átaka í Mið-Austurlöndum og hafa fjárfestar áhyggjur af flæði olíu og jarðgass frá svæðinu. Hútar í Jemen hafa hótað því að loka Rauðahafi fyrir siglingum flutningaskipa og segjast hafa gert árás á tvö olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu.
Þá segja Íranir að olíuflutningaskipi hafi verið siglt á tundurdufl í Hormússundi og eldur hafi kviknað um borð. Tveimur öðrum skipum mun þá hafa verið snúið við, samkvæmt ríkismiðlum í Íran. Bandaríkjamenn hafa verið að flytja meiri herafla til Mið-Austurlanda og bendir það til þess að umfang árása þeirra á Íran gæti aukist á næstunni. Sjá einnig: Skoða að auka umfang árása enn frekar Samhliða þessari þróun hefur verð Brent-hráolíu hækkað um rúm fjögur prósent í morgun, samkvæmt frétt New York Times, og fór yfir 98 dali á tunnu. Verð tunnunnar hefur ekki verið hærra síðan í maí. Það hefur hefur hækkað um rúma þrettán dali á einni viku og um 33 prósent frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran í febrúar. Fréttaveitan SPA, sem er frá Sádi-Arabíu, segir að árás hafi verið gerð á skipið Encelia í gær. Eldur hafi kviknað um borð en áhöfnin hafi sloppið heil á húfi. Þetta myndband sem fór í dreifingu í gær er sagt sýna eld um borð í Encelia. BIG: First Saudi oil tanker reportedly hit by Houthi missile near Yemen, engulfed in flames. pic.twitter.com/R3nG7FSdW1— Clash Report (@clashreport) July 22, 2026 Reuters sagði frá því í morgun að þrátt fyrir að Hútar segjast hafa gert árás á tvö flutningaskip í gær og að eldur hafi kviknað um borð í að minnsta kosti öðru þeirra, hafi tveimur kínverskum olíuflutningaskipum verið siglt í átt að Bab El Mandeb-sundi, sem er inngangurinn að Rauðahafi. Þessi tvö skip bera saman rúmar fjórar milljónir tunna af olíu frá Sádi-Arabíu. Verulega hefur dregið úr siglingum olíuflutningaskipa um bæði Hormússund og Rauðahaf. Mörg ríki heims hafa gengið verulega á olíu- og gasbirgðir sínar á undanförnum mánuðum og er staðan því talin nokkuð viðkvæmari en hún var í upphafi stríðsins. Þá hafa umfangsmiklar árásir Úkraínumanna á olíu- og gasinnviði í Rússlandi dregið enn frekar úr framboði. Fyrir stríðið fóru um 15 milljónir tunna af olíu gegnum Hormússund á degi hverjum. Ráðamenn við Persaflóa leita nú leiða til að flytja olíu um aðrar leiðir og komast hjá Írönum, sem hafa lýst yfir vilja til að stýra sundinu og umferð þar um í framtíðinni. AP fréttaveitan segir að minnsta kosti sjö nýjar olíuleiðslur í smíðum eða skipulagningu. Gallinn er þó að flestar þeirra eiga að flytja olíu að Rauðahafi, þar sem Hútar hafa ítök og geta gert árásir. Olíuleiðslur eru þar að auki viðkvæmar fyrir árásum með eldflaugum og sjálfsprengidrónum.
Íran Jemen Bandaríkin Hernaður Sádi-Arabía Bensín og olía Donald Trump Mest lesið Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira