Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar 13. júlí 2026 22:30 Nýlega las ég skoðanapistla nokkurra einstaklinga sem að voru vissulega sárir og reiðir yfir því að Kristján Loftson kallaði þá stalínista. Menn risu upp á afturlappirnar og tóku til varna. Stefán Pálsson, sagnfræðingur lét m.a. hafa eftir sér að fáir menn hafi gert jafnmikið til að greiða veg hvalveiða en Jósef Stalín. Þetta þótti mér ljótt að lesa, enda taldi ég að hluti af sagnfræði væri að meta og greina afleiðingar ákvarðana stjórnmálamanna í gegnum söguna, en ekki bara þusa staðreyndir eins og gervigreindin, og hefði viljað sjá betri umfjöllun af hálfu Stefáns. Rétt er að Stalín hóf miklar hvalveiðar í Sovétríkjunum, en stjórnlaus og glórulaus hvalveiði Sovétmanna lagði hvalastofna í stórhættu og stuðlaði að alþjóðlegu hvalveiðibanni síðar meir. Þegar að Íslendingar, Norðmenn, og Japanir fóru að stunda hvalveiðar að nýju hafði bannið þegar haft óafturkræf áhrif á menningu ríkjanna og hvalveiðar ekki lengur svipur hjá sjón. Það ergilegasta er að Sovétmenn átu ekki einu sinni hvali. Í miðstýrðu hagkerfi kommúnismans var hagnaður ekki notaður til að mæla framleiðni, heldur framleiðslutölur. Hvalskrokkar skiluðu háum löndunartölum sem að hagfræðingar Sovétríkjanna gátu notað til að sýna fram á vöxt og velmegun, þegar að menn hækkuðu tölurnar eitt árið, urðu þeir að hafa þær hærri næsta ár til að viðhalda „hagvexti“ án þess þó að menn hefðu möguleika á að koma kjötinu í verð. Vitleysan var svo mikil að Sovéskur skipstjóri var einu sinni handtekinn fyrir að ná ekki að uppfylla kvótann sinn. Sovétmenn enduðu svo á að nota hvalkjötið í áburð í landbúnaði. Störfin voru vinsæl enda leyfðu þau starfsmönnum að eyða löngum stundum utan Sovétríkjanna og í erlendum höfnum, þar sem að vöruúrval var mun betra, svo að Sovétmenn veigruðu sér við því að leggja niður gagnlausa iðjuna. Niðurstaðan er í raun þveröfug við staðreyndaþus gervigreindarinnar, óeðlileg afskipti Stalíns af atvinnulífinu endaði á því að gera nær alglerlega út af við hvalveiði í öllum heiminum, og hefur í raun valdið menningarlegu tjóni á norskri, íslenskri, færeyskri og japanskri menningu. Heimurinn allur hefur þurft að borga fyrir þessa glæpi Stalíns, þ.a.m. íslenski hvalveiðiiðnaðurinn. En það er ekki laust við Stalínistabrag af andstæðingum hvalveiða á Íslandi. Eitt af einkennum kommúnismans eru afskipti af atvinnu og efnahagslífi umfram það sem góðu hófi gegnir. Á Íslandi er hins vegar stjórnarskrá, sem er nokkuð góð. Stjórnarskráin okkar er nefnilega mikilvægt verkfæri til að hindra vald ríkisins til að ráðskast með borgaranna. Eitt mikilvægasta vopn stjórnarskrárinnar gegn spillingu, er verndun eignaréttarins. Mikið mætti skrifa um mikilvægi verndar eignaréttar einstaklings gagnvart ríkinu, en ég vildi fjalla um annað ákvæði stjórnarskrárinnar í dag. 75. gr. stjórnarskrárinnar tryggir nefnilega atvinnufrelsi einstaklinga. Frelsi þessu má setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess. Þetta er mikilvægt ákvæði. Einfaldur meirihluti dugir ekki einfaldlega til að eitthvað sé bannað. Nauðsynlegt er að gera það með lögum, og lög eru ekki sett með gerræðislegum hætti. Þá er skilyrði að almannahagsmunir krefjist þess. Það að naumur meirihluti vilji banna hvalveiðar, dugar ekki til, menn þurfa að rökstyðja málið í þinginu með vísan til almannahagsmuna, dómstólar munu ekki rengja það mat miðað við dómafordæmi hérlendis, þegar að lög eru komin sem banna hvalveiðar. Augljóslega pirrar þetta ákvæði stjórnarskrárinnar marga, einstaklinga sem myndu vilja getað haft vit fyrir öðrum, bannað öðrum óæskilega hegðun og vita allt betur en aðrir. Það eru einstaklingar sem að réttilega má líkja við stalínista, og hef ég litla samúð með þeim ef þeim þykir það sárt. Sjálfum finnst mér hvalkjöt vont og borða það ekki, en mér segir hugur að ef maður leyfir fólki að traðka á stjórnarskrárvörðum réttinda annarra einstaklinga á grundvelli sómatilfinningar þeirra, þá mun forsjárhyggjufólkinu vaxa ásmegin í framtíðinni og sækja sig frekar í veðrið. Slíkar annarlegar hvatir ber að kæfa í fæðingu og árétta að stjórnarskrárvarin réttindi séu betur varin en önnur réttindi. Ef hvalveiðar eru óverjandi efnahagslega, þá hlýtur þessi háttsemi að hætta að borga sig fyrir rest. Ef að alþingi ákveður að almenningur hafi brýna hagsmuni af því að stöðva hvalveiðar til að tryggja og bæta ferðaþjónustu, þá er farinn réttur farvegur til að banna hvalveiðar, og þurfa alþingismenn að sæta ábyrgð í kjölfarið í næstu kosningum. Gæta skal vel að stjórnarskrárvörðum réttindum og ekki veita neinn afslátt á að skerða þau. Fólki er víst leyfilegt að andmæla hvalveiðum og biðja um lagabreytingar, en gerræðislegt bann ráðherra á sínum tíma stóðst ekki lög né stjórnarskrá og því vissulega ekki óeðlilegt að vísa til stjórnarhátta Sovétríkjanna á sínum tíma. Það er alveg jafnmikill Stalínismi að skapa iðnað sem ekki stendur undir sér, og að leggja niður iðnað sem að stendur undir sér, báðar háttseminnar koma frá sama stað, skrifborði forsjárhyggjumannsins sem þykist vita betur en markaðurinn. Höfundur er lögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun