Ólafur Ragnar Grímsson og Cherry-picking Sigurður Kristinn Pálsson skrifar 13. júlí 2026 18:16 Í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi 29. ágúst næstkomandi hefur hópur efnafólks stofnað samtökin Áfram Ísland. Meðal þeirra er fyrrverandi forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem hefur svipt af sér hulunni sem slíkur og stigið beint út á pólitíska sviðið. Á fundi samtakanna beitti hann kunnulegri aðferð sem gjarnan er kölluð cherry-picking, eða handvalning gagna. Valdar tölur í pólitískum tilgangi Á fundi samtakanna hélt Ólafur Ragnar ræðu þar sem hann sagði að atvinnuleysi ungs fólks í Finnlandi væri nálægt 25%. Í því samhengi datt honum hins vegar ekki í hug að nefna að atvinnuleysi ungs fólks í Tékklandi er aðeins 8,4% og 7% í Þýskalandi, samkvæmt tölum frá Statista og Eurostat. Þessum upplýsingum um atvinnuleysi ungs fólks í Finnlandi var greinilega ætlað að búa til ákveðið orsakasamhengi fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er einstaklega dapurt að sjá fyrrverandi forseta beita slíkum rökfræðum í þeim tilgangi að afvegaleiða umræðuna. Skoðum málið aðeins betur. Mælikvarðar og samanburður Mælikvarði aldurs á atvinnuleysi ungs fólks er 15 til 24 ára Evrópusambandinu en er 16 til 24 ára á Íslandi. Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands sem gefin var út í maí síðastliðnum var atvinnuleysi ungs fólks á Íslandi á aldrinum 16 til 24 ára á 23,8%. Á sama tíma var atvinnuleysi í Finnlandi í aldursflokknum 15 til 24 ára 23,2% samkvæmt finnsku hagstofunni Tilastokeskus, eða 0,6% lægra en á Íslandi. Samkvæmt sænskum og finnskum greiningum lækkar hlutfallið um 1,5 til 2,5 prósentustig ef 15 ára hópurinn er einn og sér skilinn eftir útundan. Aðferðafræðilegur munur skiptir öllu Aðferðarfræðin á bakvið tölurnar skýrir hvers vegna þær mælast svona háar. Sú aðferðafræðilega regla sem evrópskar hagstofur, þar á meðal Hagstofa Íslands og finnska Tilastokeskus, fylgja byggir á samræmdum stöðlum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, ILO. Einstaklingur sem er í námi flokkast sem atvinnulaus í vinnumarkaðsrannsóknum ef hann er ekki í vinnu en uppfyllir bæði þessi skilyrði: • er í virkri atvinnuleit• getur hafið störf innan tveggja vikna Þetta á sérstaklega við á vorin þegar þúsundir námsmanna leita að sumarvinnu. Þótt þeir séu í fullu námi teljast þeir atvinnulausir í tölfræðinni ef þeir finna ekki starf strax. Þetta veldur því að opinberar tölur um atvinnuleysi ungs fólks mælast sögulega háar í Finnlandi og á Íslandi. Tvenns konar mælingar - tvennar tölur Ef við skoðum hins vegar skráð atvinnuleysi hjá vinnumálastofnunum - sem sýnir aðeins þá sem eru skráðir atvinnulausir og þiggja bætur - breytist myndin til muna: Skráð atvinnuleysi hjá vinnumálastofnunum: Finnlandi: Atvinnuleysi 15-24 ára er 12,7% (lækkar um 1,5%-2,5% ef 15 ára hópurinn er tekin út) Ísland: Atvinnuleysi 16-24 ára er ~5% Stríðið sem gleymdist Önnur mikilvæg skýring á efnahagsstöðunni í Finnlandi er stríð Rússlands og Úkraínu. Vegna nálægðar sinnar og viðskiptatengsla hafa Finnar tapað að minnsta kosti 12 milljörðum evra, (um 1.800 milljörðum íslenskra króna), í töpuðum viðskiptum og afleiddum efnahagsáhrifum samkvæmt DW.com. Það spilar því sitthvað fleira inn í efnahag landsins sem kemur aðild Finna að Evrópusambandinu ekkert við. Spurning um siðferðisleg heilindi Ólafur Ragnar er vel þekktur fyrir að snúa umræðunni þegar það hentar hans pólitísku markmiðum. Fyrrverandi forseti ætti þó að sýna þann heiðarleika að setja hlutina í rétt og sanngjarnt samhengi. Það er kjarninn í því sem kallað er siðferðileg heilindi. Höfundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri. Heimildir: Hagstofa Íslands,Tilastokeskus,Eurostat,Statista, DW.com Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar