Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Jakob Bjarnar skrifar 19. júní 2026 09:12 Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur, í viðtali hjá Snorra Mássyni þingmanni, þá þegar hann var fréttamaður á Stöð 2. Hann veit ekki hvort hann eigi að hlæja eða gráta en hann hefur verið sakaður um fánaóreiðu af nágranna sínum. Vísir/Vilhelm Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus er furðu lostinn. Hann er mikill fánamaður og hefur unun af fánasafni sínu. Nú hefur einhver nágranni hans sakað Ólaf um að hafa ekki haft sómakennd í sér til að flagga íslenska fánanum á 17. júní. Ólafur er furðu lostinn. „
Einhver sem segist vera nágranni minn skammast þar yfir því að ég hafi ekki flaggað íslenska fánanum á 17. júní - og birtir mynd af þeim ítalska sem var vissulega við hún í Barmahlíð þann dag,” segir Ólafur á Facebook-síðu sinni og veit vart hvort hann eigi að hlæja eða gráta. Í færslunni, sem Þorgils Torfi Jónsson nokkur birtir, segir: „Ekki hafði nágranni minn prófessorinn emerítus Ólafur Harðarson þann sóma í sér að flagga íslenska fánanum á þjóðhátíðardeginum okkar í dag, 17. júní,“ og birtir mynd af fánastöng Ólafs en þar má sjá ítalska fánann við hún. Fánageggjarinn Ólafur Þ. Harðarson „Ástæðan er einföld: við hjón fórum til Ítalíu 10. júní og dveljum þar í hálfan mánuð. Áður en ég fór dró ég ítalska fánann að húni - hann átti að vaka yfir garðinum meðan við hjón værum á Ítalíu,“ segir Ólafur. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðiprófessor lýsir sjálfum sér sem fánageggjara, hann flaggar við öll hugsanleg og óhugsanleg tækifæri og á vel á annað hundrað fána.Vísir/Vilhelm Prófessorinn upplýsir að hann flaggi oft og eigi á annað hundrað fána. Hann flaggi iðulega íslenska fánanum við ýmis hátíðleg tækifæri og þegar tilefni er til. Hann segist eiga vel á annað hundrað fána: „Hvítbláinn, fálkafáninn og þorskafáni Jörundar prýða fánastöng mína líka reglulega. Þessir gömlu íslensku fánar eru fallegir. Ég flagga líka fánum alþjóðasamtaka sem Íslendingar hafa kosið að tengjast, þar á meðal fánum NATO, Sameinuðu þjóðanna og Evrópufánanum (fána Evrópuráðsins/ESB/EES).“ Ólafur rekur þetta í löngu máli, hann flaggi gjarnan fánum annarra þjóða, einkum þegar þjóðhátíðardag þeirra ber upp á. „Sömuleiðis regnbogafána, veiðifána, Pegasus-fána og hátíðarfánanum frá þjóðhátíðinni 1974 — svo dæmi séu nefnd.“ Fyrsta skipti skammaður á litríkum fánaferli Þetta vita nágrannar Ólafs og hrósa honum iðulega fyrir þessa flaggasérvisku. Og börn í hverfinu keppast við að þekkja fánana. Eitt sinn kom hópur leikskólabarna í garðinn til Ólafs og þökkuðu sérstaklega fyrir það að hann flaggaði sjóræningjafána á sjóræningjadegi leikskólans – þau sungu fyrir Ólaf í glampandi sólskini og færðu honum fána leikskólans að gjöf. „Nú hef ég verið skammaður í fyrsta skipti á mínum litríka fánaferli. Kannski er verið að dylgja með því að ég sé ekki nægilega þjóðrækinn. Þau sem þekkja mig flissa auðvitað að þeirri firru – ekki síst dætur mínar sem löngum hafa þurft að sitja undir löngum frásögnum um þjóðlegan fróðleik, íslenska sögu og menningu í aldanna rás – og hlustað á föður sinn þylja upphátt íslensk ljóð, m.a. eftir Hallgrím Pétursson, Jónas Hallgrímsson, Guðmund Inga frá Kirkjubóli og Stein Steinarr.“ Ólafur hlær að þessu en ekki dylst neinum að undir niðri lúrir uggur; að fánaumræðan sé orðin full heiftar.
17. júní Íslenski fáninn Reykjavík Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent Fleiri fréttir Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Sjá meira