Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Bylgjan og FÍBÚT 10. júní 2026 09:01 Anna Lea Friðriksdóttir eigandi bókaútgáfunnar og -búðarinnar Sölku segir það gera sálinni og heilabúinu gott að vera í leshring. Það fóðri líka félagslega þáttinn. Nú stendur yfir sumarbókaveisla leshringja með glæsilegum verðlaunum í boði. „Fyrst og fremst held ég að fólk sem er í leshring lesi oftast meira en það hefði annars gert en það er allur gangur á því hvernig hóparnir gera þetta,“ segir Anna Lea Friðriksdóttir, annar eigandi útgáfunnar og bókabúðarinnar Sölku, um kosti þess að vera í leshring. Það geti verið virkilega skemmtilegt. Nú stendur yfir sumarbókaveisla íslenskra leshringja þar sem heppnir leshringir geta unnið veglegan bókapakka auk veitinga fyrir leshringinn á Facebooksíðu Bylgjunnar . „Stundum hittast hóparnir hér hjá okkur eða halda matarboð heima og bjóða til dæmis upp á mat frá því landi þar sem bókin gerist. Maður hefur líka heyrt af því að fólk klæði sig upp í anda bókarinnar, til dæmis Jane Austen bókaklúbbarnir og svo eru dæmi þess að leshringir ferðist saman á söguslóðir bókar. Öll svona þemu og tengingar geta dýpkað upplifunina af því að vera í bókaklúbb. Bara svo lengi sem fólk fer ekki að fremja glæpina sem bókaklúbburinn er að lesa um,“ segir hún sposk. „Lestur einn og sér er góður fyrir okkur sem einstaklinga en við erum líka félagsverur og það er gott að koma saman og ræða bækur, víkka skilninginn og spegla sig í öðrum.“ „Þegar hópar eru að lesa bók eftir íslenskan höfund höfum við líka stundum haft milligöngu um að heyra í viðkomandi höfundi og fengið hann til að hitta hópinn. Þá skapast alltaf miklar og skemmtilegar umræður.“ Hún segir áhuga fólks á að hittast í leshring og ræða bækur mikinn, svo mikinn að Salka hafi þurft að bregðast við. „Við erum oft með ýmsa viðburði hér í bókabúðinni á Hverfisgötu og fórum að taka á móti leshringjum líka eftir að hafa fengið svo margar fyrirspurnir. Nú er áhuginn svo mikill að við erum komnar í framkvæmdir. Við ætlum að breyta hluta kjallarans í viðburðarými, hafa þar upplestra og námskeið og leshringir geta líka nýtt sér þá aðstöðu. Þar verður meira næði fyrir fólk að ræða saman en uppi í búðinni,“ útskýrir Anna. Hvernig verða leshringir til? „Oft eru þetta vinahópar eða skólafélagar frá í gamla daga en svo hef ég séð leshringi verða til á vinnustöðum og líka hjá fólki sem býr í sama hverfi, er kannski með börn í sama skóla og kynnist þannig. Þegar ég var í íslensku í háskólanum sáum við um bókaklúbb fyrir eldri borgara sem komu í mat á Aflagranda, fengu sér að borða og ræddu svo bók vikunnar á eftir. Ég hef séð alls konar samsetningar.“ „Við í Sölku stefnum reyndar á að stofna almennan bókaklúbb hjá okkur og þá getur fólk sem er ekki í klúbb en langar mætt í hann. Að sama skapi eru bókasöfnin að vinna frábært starf með bókaklúbba og ég veit að fleiri bókabúðir halda líka úti leshringjum.“ Er hittingur hjá leshring eins og að mæta í munnlegt próf? „Nei alls ekki, yfirleitt er þetta opið spjall sem allir eiga að geta tekið þátt í, um söguþráðinn og persónurnar. Sumir hópar kafa mjög djúpt í bækur, sérstaklega þau sem eru menntuð í bókmenntum en oftast er þetta á almennum nótum. Svona umræður gera sálinni og heilabúinu gott og fóðra líka félagslega þáttinn.“ Sumarbókaveislan stendur til föstudags og eru bókaormar hvattir til að skrá sig í leikinn hér . 15 heppnir leshringir geta unnið veglegan bókapakka með 20 bókum að verðmæti kr. 75.000, samtals 300 nýjar bækur. Fimm þessara vinningshafa hljóta að auki gjafakort að upphæð kr. 25.000 sem nýta má til veitingakaupa fyrir næsta leshring. Heildarverðmæti vinninga er kr. 1.250.000. Menning Bókmenntir Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Lífið Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira
Nú stendur yfir sumarbókaveisla íslenskra leshringja þar sem heppnir leshringir geta unnið veglegan bókapakka auk veitinga fyrir leshringinn á Facebooksíðu Bylgjunnar . „Stundum hittast hóparnir hér hjá okkur eða halda matarboð heima og bjóða til dæmis upp á mat frá því landi þar sem bókin gerist. Maður hefur líka heyrt af því að fólk klæði sig upp í anda bókarinnar, til dæmis Jane Austen bókaklúbbarnir og svo eru dæmi þess að leshringir ferðist saman á söguslóðir bókar. Öll svona þemu og tengingar geta dýpkað upplifunina af því að vera í bókaklúbb. Bara svo lengi sem fólk fer ekki að fremja glæpina sem bókaklúbburinn er að lesa um,“ segir hún sposk. „Lestur einn og sér er góður fyrir okkur sem einstaklinga en við erum líka félagsverur og það er gott að koma saman og ræða bækur, víkka skilninginn og spegla sig í öðrum.“ „Þegar hópar eru að lesa bók eftir íslenskan höfund höfum við líka stundum haft milligöngu um að heyra í viðkomandi höfundi og fengið hann til að hitta hópinn. Þá skapast alltaf miklar og skemmtilegar umræður.“ Hún segir áhuga fólks á að hittast í leshring og ræða bækur mikinn, svo mikinn að Salka hafi þurft að bregðast við. „Við erum oft með ýmsa viðburði hér í bókabúðinni á Hverfisgötu og fórum að taka á móti leshringjum líka eftir að hafa fengið svo margar fyrirspurnir. Nú er áhuginn svo mikill að við erum komnar í framkvæmdir. Við ætlum að breyta hluta kjallarans í viðburðarými, hafa þar upplestra og námskeið og leshringir geta líka nýtt sér þá aðstöðu. Þar verður meira næði fyrir fólk að ræða saman en uppi í búðinni,“ útskýrir Anna. Hvernig verða leshringir til? „Oft eru þetta vinahópar eða skólafélagar frá í gamla daga en svo hef ég séð leshringi verða til á vinnustöðum og líka hjá fólki sem býr í sama hverfi, er kannski með börn í sama skóla og kynnist þannig. Þegar ég var í íslensku í háskólanum sáum við um bókaklúbb fyrir eldri borgara sem komu í mat á Aflagranda, fengu sér að borða og ræddu svo bók vikunnar á eftir. Ég hef séð alls konar samsetningar.“ „Við í Sölku stefnum reyndar á að stofna almennan bókaklúbb hjá okkur og þá getur fólk sem er ekki í klúbb en langar mætt í hann. Að sama skapi eru bókasöfnin að vinna frábært starf með bókaklúbba og ég veit að fleiri bókabúðir halda líka úti leshringjum.“ Er hittingur hjá leshring eins og að mæta í munnlegt próf? „Nei alls ekki, yfirleitt er þetta opið spjall sem allir eiga að geta tekið þátt í, um söguþráðinn og persónurnar. Sumir hópar kafa mjög djúpt í bækur, sérstaklega þau sem eru menntuð í bókmenntum en oftast er þetta á almennum nótum. Svona umræður gera sálinni og heilabúinu gott og fóðra líka félagslega þáttinn.“ Sumarbókaveislan stendur til föstudags og eru bókaormar hvattir til að skrá sig í leikinn hér . 15 heppnir leshringir geta unnið veglegan bókapakka með 20 bókum að verðmæti kr. 75.000, samtals 300 nýjar bækur. Fimm þessara vinningshafa hljóta að auki gjafakort að upphæð kr. 25.000 sem nýta má til veitingakaupa fyrir næsta leshring. Heildarverðmæti vinninga er kr. 1.250.000.
Nú stendur yfir sumarbókaveisla íslenskra leshringja þar sem heppnir leshringir geta unnið veglegan bókapakka auk veitinga fyrir leshringinn á Facebooksíðu Bylgjunnar .
Sumarbókaveislan stendur til föstudags og eru bókaormar hvattir til að skrá sig í leikinn hér . 15 heppnir leshringir geta unnið veglegan bókapakka með 20 bókum að verðmæti kr. 75.000, samtals 300 nýjar bækur. Fimm þessara vinningshafa hljóta að auki gjafakort að upphæð kr. 25.000 sem nýta má til veitingakaupa fyrir næsta leshring. Heildarverðmæti vinninga er kr. 1.250.000.
Menning Bókmenntir Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Lífið Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira