Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 7. júní 2026 18:02 Daði Már Kristófersson í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Vísir/Anton Brink Fjármálaráðherra segir óhjákvæmilegt að atvinnuleysi aukist vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar sem snúa að því að ná tökum á þensluverðbólgu. Hann viðurkennir að betur mætti ganga í efnahagsmálum.
Þegar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við í árslok 2024 voru vextir byrjaðir að lækka en í dag fara vextir hækkandi. Erfiðlega gengur að ná tökum á verðbólgunni, atvinnuleysi eykt og fréttir voru fluttar af fjöldauppsögnum í maí. Kjarasamningar losna mögulega í haust og óvíst hvort að boðuð hallalaus fjárlög á næsta ári gangi eftir. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, fór yfir stöðuna í efnahagsmálum á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þú vonaðir kannski að við værum á betri stað? „Já þetta hljómar ekki vel þegar þú ferð yfir þetta eina og hálfa ár. Það er alls ekki eins og ég sé starfi mínu vaxinn en þetta er alveg rétt hjá þér. Þetta er staðan,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra. Biður fólk um að sýna biðlund Hann segir stöðuna erfiðari en hann reiknaði með. Vandinn sé sá að verðbólgan hafi verið of mikil of lengi. Verðbólguvæntingar hafi versnað. „Málið er að ef allir halda að verðbólga muni áfram vera há þá verður voðalega lítið aðhald í því að hækka verð. Þetta sást á skuldabréfamarkaði mjög snemma því verðbólga hafði verið há lengur á Íslandi en annars staðar og það að ná þessum væntingum niður hefur reynst erfitt.“ Hann biður fólk um að sýna biðlund og stendur við hallalaus fjárlög í haust. Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Þeirri aðgerð að draga úr þensluverðbólgu fylgi óhjákvæmilega eitthvað atvinnuleysi. „Auðvitað viljum við ekki að neinn missi vinnuna og það er rosalega erfitt fyrir fjölskyldur að standa frammi fyrir því en að einhverju leyti er óumflýjanlegt að það verði einhver aukning í atvinnuleysi en við vonumst til að það verði eins lítið og mögulegt er.“ Hann viðurkennir að hann óski þess að betur gengi. Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum. Umdeild skýrsla Á dögunum kynni ráðherrann skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum en skýrslan var unnin af erlendum sérfræðingum að beiðni Daða. Túlkun fjármálaráðuneytisins á skýrslunni hefur verið töluvert gagnrýnd, meðal annars af seðlabankastjóra og fyrrverandi formanni bankaráðs Seðlabankans. Daði segir mikið að græða á skýrslunni. „Mér fannst mikilvægt að skýrsluhöfundar drægu ekki eigin ályktun um hvað við ættum að gera heldur drægum fram kosti og galla. Það er alveg ljóst að kostirnir við krónuna er að hún getur hjálpað okkur við að ákveðin skilyrði, þegar mjög mikil áföll ríða yfir þá getur hún hjálpað okkur að deyfa þau.“ Skilur gagnrýni á túlkun skýrslunnar Hún hafi þó líka galla sem séu þeir að hún geti verið uppspretta óstöðugleika og geri öll viðskipti erfiðari. Dragi úr samkeppni og skapi viðskiptahindranir. Niðurstaða skýrslunnar er að mati Daða sú að ábati sveigjanleika krónunnar sé minni en við höfum gert oft ráð fyrir og að hún sé meiri uppspretta óstöðugleika heldur en hún gæti verið eða ætti að vera. Daði Már segist þó skilja gagnrýni á túlkun ráðuneytisins á skýrslunni. „Ég skil í sjálfu sér að fólki finnist það ekki ráðuneytisins að túlka. Það er þó alveg skýr niðurstaða að kostnaðurinn sé hærri af því að halda krónunni úti og ábatinn minni heldur en við gerðum ráð fyrir.“ Pawel og matarkarfan Það vakti athygli þegar Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, lýsti ferð sinni á veitingastaðinn Saffran. Þar borgaði hann 4.000 krónur fyrir kjúklingarétt sem hann fullyrðir að myndi kosta 3.000 krónur væri þjóðin í Evrópusambandinu. „Langar þig ekki í auka þúsund kall?“ spyr hann. Ekki hægt að bæði halda og sleppa Þáttastjórnandi kom inn á skautun í umræðunni um kosti og galla þess að vera eða vera ekki í Evrópusambandinu. Það hljóti að liggja fyrir að við getum ekki bæði haldið í hæstu launin og um leið keypt mat á lægsta verðinu. Það eru væntanlega engar töfralausnir? ESB er væntanlega ekki lausn fyrir Ísland heldur bara möguleiki og svolítil óvissa? „Jú auðvitað er það þannig, það er alltaf þannig. Mitt mat eins og Pawels það kemur svo sem ekkert á óvart er að stöðugleikinn myndi þjóna okkur vel.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjármál heimilisins Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira