Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. júní 2026 07:12 Clark og aðrir stjórnendur hjá Anthropic hafa kallað eftir aukinni umræðu um framþróun gervigreindarinnar. Getty/Kevin Dietsch Jack Clark, einn af stofnendum Anthropic, segir nauðsynlegt að geta hægt á þróun gervigreindar ef illa fer. „Þú vilt geta tekið fótinn af bensíngjöfinni og sett hann á bremsuna. Gervigreindariðnaðurinn er með bensíngjöf en er án bremsu,“ sagði hann í viðtali við BBC Newsnight.
Clark er meðal þeirra sem hafa kallað eftir löggjöf og eftirliti með þróun gervigreindar. Að sögn Clark skrifaði spjallmennið Claude um það bil 80 prósent af eigin kóða en hann segir raunhæft að ætla að innan tveggja ára muni koma fram gervigreind sem muni hafa getu til að þróa sig sjálf, án aðkomu manna. Það gæti haft víðtækar afleiðingar í för með sér. Clark sagði stjórnendur Anthropic vilja vera opna varðandi það sem menn væru að sjá gerast innan geirans. „Ég hef áhyggjur af framtíð barnanna minna ef við sem samfélag eigum ekki samtal um hvað felst í áframhaldandi þróun gervigreindarinnar,“ sagði Clark. „Það felast mögulega í henni gríðarleg tækifæri. En líka hættur.“ Meðal þessara hætta væru truflandi áhrif á vinnumarkaðinn, svo sem fjöldauppsagnir, en Clark sagði fólk með skapandi hugsun hins vegar áfram myndu njóta forskots fram yfir gervigreindina. Því væri enn ósvarað hvort hún gæti verið raunverulega skapandi. Spjallmennin sem fjöldi fólks notar í daglegu lífi er þjálfaður á upplýsingum og strengir aðeins orð saman til að svara spurningum og spjalla. Engin hugsun er á bakvið forritin.
Gervigreind Tækni Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira