Gylfi verður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. maí 2026 11:28 Gylfi Ólafsson verður bæjarstjóri en Kristján Þór Kristjánsson formaður bæjarráðs. Framsókn og óháðir hafa myndað meirihluta í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar með Viðreisn. Framsókn og óháðir unnu stórsigur í kosningunum og fengu fjóra menn kjörna og Viðreisn einn.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að málefnasamningur með 34 atriðum hafi verið handsalaður í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði í dag. Meðal áhersluatriða sé uppbygging og breytingar í skólamálum, áframhaldandi lækkun skulda og fjölmargar aðgerðir til að gera lífsgæðin í Ísafjarðarbæ enn betri fyrir fólk á öllum aldri með bættum innviðum og þjónustu. Þá verði áfram unnið að því að fjölga verðmætum störfum á svæðinu. Gylfi Ólafsson bæjarfulltrúi Viðreisnar verður bæjarstjóri, Kristján Þór Kristjánsson oddviti Framsóknar og óháðra verður formaður bæjarráðs og Elísabet Samúelsdóttir úr sama flokki forseti bæjarstjórnar. „Ég er spenntur og auðmjúkur gagnvart nýju hlutverki. Ég bý að því að hafa verið í bæjarstjórn síðustu fjögur ár og þekki því ágætlega til flestra mála sem viðkoma rekstrinum. Það er traust milli okkar og Framsóknar. Við sækjum saman út frá miðjunni með hagsmuni bæjarbúa í fyrirrúmi,“ segir Gylfi Ólafsson. „Við í Framsókn og óháðum erum mjög ánægð með samkomulagið við Viðreisn. Framsókn var í minnihluta við upphaf síðasta kjörtímabils. Stefnan okkar þá var að vinna vel með meirihluta að öllum góðum málum sveitarfélaginu og íbúum til heilla. Við munum ekki breyta út af þeirri stefnu og vonumst til að vinna vel með öllum flokkum í bæjarstjórn. Það skiptir ekki máli hvaðan gott kemur og tökum við vel í öll mál sem við teljum bæta hag eða líðan íbúa í sveitarfélaginu,“ segir Kristján Þór Kristjánsson.
Ísafjarðarbær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Viðreisn Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira