Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Eiður Þór Árnason skrifar 26. maí 2026 23:25 Horft yfir vallarsvæðið frá Klapparstíg. Núverandi áhorfendastúka sést lengst til hægri. Alark arkitektar Gert er ráð fyrir tjörn, skautasvelli, hlaupabraut, útivistarsvæðum, verslun og þjónustu í vinningstillögu um framtíðarskipulag á Akureyrarvelli og nágrenni. Lagt er til að allt að sjötíu íbúðir rísi á svæðinu en framtíð þess hefur lengi verið þrætuepli í höfuðstað Norðurlands. Akureyrarvöllur var áður helsti íþróttaleikvangur bæjarins og liggur norðan við miðbæjarsvæðið.
Í vinningstillögunni sem kynnt var í dag er gert ráð fyrir tveggja til þriggja hæða húsum í tveimur húsaklösum á sjálfu íþróttavallarsvæðinu með samtals 50 til 55 íbúðum. Þá verði til viðbótar tólf íbúðir í fjölbýlishúsum við Smáragötu og Hólabraut og þrjú einbýlishús við Brekkugötu, með möguleika á viðbót. Heildaríbúðafjöldi á skipulagssvæðinu er þannig áætlaður allt að 65 til 70 íbúðir. Akureyri.net greinir frá þessu en höfundar tillögunnar eru feðgarnir Kristján Ásgeirsson og Óli Geir Kristjánsson hjá Alark arkitektum. Þeir vilja sjá hlaupabraut liggja í gegnum svæðið sem nái út að Glerártorgi og Ráðhústorgi en brautin er sögð nýtast sem hjólastígur og almennt göngu- og hlaupasvæði. Á jarðhæðum í húsaklösunum á sjálfu íþróttavallarsvæðinu er gert ráð fyrir starfsemi og þjónusturýmum. Þá er lagt til að opið grænt almenningssvæði verði við vestari húsaklasann. Á almenningssvæðinu er reiknað með lítilli tjörn sem gæti nýst sem skautasvell á veturna, veitingasvæði utandyra, leiksvæði, æfingasvæði með tækjum, boltavelli og sviðsmannvirki á torgi. Undir sviðinu er lagt til að hægt verði að finna litla sölubása, til dæmis fyrir skautaleigu eða kaffisölu. Yfirlitsmyndir sem sýna almenningssvæðin.Alark arkitektar „Sviðstorgið getur nýst sem markaðs- og eða matarvagnartorg um helgar og á góðviðrisdögum ásamt yfirdekkuðum boltavellinum,“ segir í tillögunni sem nánar er fjallað er um á Akureyri.net. Gert er ráð fyrir samtals 36 bílastæðum ofanjarðar sem snúa að Glerárgötu og nýtast annars vegar þjónustu- og rekstraraðilum og hins vegar íbúum. Þá er reiknað með 46 stæðum ofanjarðar auk einkastæða á áætluðum einbýlis-, tvíbýlis- og fjórbýlishúsalóðum við Hólabraut og Brekkugötu. Einnig er lagt til að bílakjallari verði undir hvorum húsaklasa með samanlagt allt að 60 stæðum. Aðkoman úr suðri séð frá Hólabraut. Áfram verður inngangur að svæðinu á sama stað og í dag.Alark arkitektar Kort sem sýnir tillöguna að framtíðarskipulagi.
Akureyri Skipulagsmál Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira