Skæri fyrir örvhenta Þórgunnur Oddsdóttir skrifar 26. maí 2026 11:32 Ég keypti einu sinni óvart skæri fyrir örvhenta. Ég hafði ekki skoðað umbúðirnar nógu vel og skildi ekki hvað var í gangi þegar ég byrjaði að klippa með þeim. Voru þetta gölluð skæri? Kunni ég ekki lengur að klippa? Af hverju gekk þetta svona brösuglega? Þar sem ég er sjálf rétthent þá hafði ég aldrei spáð mikið í þessar vörur sem eru sérstaklega framleiddar fyrir örvhenta. Ég vissi að þær væru til en hélt í einfeldni minni að skæri fyrir örvhenta væru bara með öðruvísi handfangi sem færi betur í vinstri hendi. Fattaði ekki að blöðin væru líka öfug - ef svo má segja. Þetta er líklega skólabókardæmi um forréttindablindu og þessi misheppnuðu kaup gáfu mér ákveðna innsýn í það hvernig það er að vera örvhentur í heimi sem er hannaður fyrir rétthenta. Nú er ég enginn sérfræðingur í málefnum örvhentra og kannski fjallar þessi pistill alls ekki um skæri en ég ætla samt að halda aðeins áfram með þessa pælingu. Um það bil 10% mannkyns eru örvhent. Rannsóknir sýna að þannig hafi það verið alveg frá tímum Neanderdalsmannsins. Það hefur ekkert breyst í aldanna rás. Hins vegar hafa komið tímabil í mannkynssögunni þar sem örvhentir hafa verið litnir hornauga og fram á miðja 20. öldina voru örvhent börn í skólum oft pínd til þess að skrifa með hægri hendinni. Eins og þetta væri bara slæmur ávani sem hægt væri að venja þau af. Í dag vitum við betur og örvhentir fá bara að vera eins og þeir eru. Og það er svo merkilegt - að þrátt fyrir þessa viðurkenningu og þrátt fyrir alla þessa þróun í vörum fyrir örvhenta þá hefur hlutfall þeirra ekkert aukist. Stendur bara í stað í þessum 10 prósentum! Eins og ég segi þá er ég enginn sérfræðingur í þessum efnum. En mín vegna mættu Eymundsson og A4 og allar þessar búðir sem selja skæri fyrir örvhenta auglýsa þau á risastórum skiltum og út um allt á samfélagsmiðlum. Jafnvel búa til fána með skilaboðum um að örvhentir séu velkomnir. Þá rata þessi skæri kannski smám saman í réttar hendur því eflaust eru einhverjir örvhentir þarna úti sem vita ekki að þau eru til og hafa verið að basla við að klippa með hefðbundnum skærum með lélegum árangri. Og þetta ætti ekki að hafa nein áhrif á rétthentu viðskiptavinina sem geta auðvitað bara gengið að sínu úrvali eins og þeir hafa alltaf gert. Það er nefnilega svo merkilegt að þrátt fyrir að nú séu til skæri fyrir örvhenta þá hefur framboðið á skærum fyrir rétthenta ekkert minnkað. Nú veit ég ekki hvort til eru sérstök samtök fyrir örvhenta en segjum sem svo að slík samtök gengju svo langt að gefa skæri fyrir örvhenta í alla grunnskóla landsins. Væri það pólitískur gjörningur? Þætti það vafasöm hugmyndafræði að setja svona skæri í almenna dreifingu meðal barna? Ég meina hvað gæti gerst? Jú rétthentu börnin gætu, eins og ég, fengið örlitla innsýn í reynsluheim örvhentra. Og svo héldu þau bara áfram að klippa með sínum hefðbundu skærum eins og áður. Örfá börn myndu kannski uppgötva að þau eru jafnvíg á hægri og vinstri. (Þetta er nefnilega ekki eins svart/hvítt og við höfum oft haldið. Þetta er einhverskonar róf.) Og við myndum tryggja að öll örvhentu börnin, 10% nemendanna, fengju skæri við sitt hæfi. Þannig læra öll börnin í bekknum að þau geta klippt beint og fallega og föndrað hvað sem þeim sýnist ef þau fá bara réttu skærin. Er einhver í alvörunni á móti því? P.S. Þessi pistill fjallar ekki um skæri fyrir örvhenta. Höfundur skrifar með hægri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Mest lesið Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Sjá meira