Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Valur Páll Eiríksson skrifar 25. maí 2026 20:03 Fernandes ætlar að hringja í Keane og leiðrétta hann. Getty Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, segist ætla að hafa samband við Roy Keane, fyrrverandi fyrirliða liðsins, vegna ummæla hans um Portúgalann á dögunum. Keane hafi misskilið svör sín og farið með rangt mál.
Fernandes bætti stoðsendingamet ensku úrvalsdeildarinnar í lokaumferð deildarinnar í gær. Hann lagði upp mark fyrir Patrick Dorgu, hans 21. Stoðsending í vetur, sem er met. Hann hafði lagt upp tuttugasta markið helgina á undan í sigri á Nottingham Forest. Í hlaðvarpinu The Overlap sagði Keane um Bruno: „Eftir leikinn [við Forest] var hann tekinn í viðtal og hann sagði sem fyrirliði Manchester United: 'Nokkrum sinnum hefði ég líklega átt að skjóta en ég sendi frekar.' Vá. Hvernig getur hugsunarháttur þinn sem knattspyrnumaður verið þannig að þú ferð inn í leik og einbeitir þér að einstaklingsmetum?“ „Hann mun ekki vinna bikara, ekki með þetta hugarfar til liðsins,“ sagði Keane og hélt því þar með fram að Fernandes setti eigin hagsmuni og eltingaleik við stoðsendingametið ofar árangri liðsins. Ummæli Fernandes eftir leikinn voru hins vegar þau: „Það voru líklega augnablik í dag þar sem ég hefði átt að senda í stað þess að skjóta. Ég er mjög ánægður með stoðsendinguna, en meira en það, ég er ánægður með sigurinn.“ Fernandes tók athugasemdum Keane ekki vel og hann sagði í hlaðvarpinu The Diary of a CEO: „Eins og ég hef alltaf sagt, þá hef ég ekkert á móti gagnrýni. Ég hef alltaf tekið við gagnrýni frá öllum og ég svara aldrei neinu.“ „Fólk hefur skoðun; það telur frammistöðuna góða, slæma, hvað sem er. Það sem mér líkar ekki er þegar fólk lýgur um hluti og í þessu tilfelli Roy Keane þá er það sem hann sagði í raun lygi vegna þess að ... annað hvort sá hann annað viðtal eða hann getur ekki sagt að ég hafi sagt eitthvað sem ég hef bara ekki sagt, og sem betur fer fyrir mig er allt þetta opinbert.“ „Mér líkar ekki er að hann leggi mér orð í munn sem hafa ekki verið sögð. Það er það eina sem mér líkar ekki.“ Fernandes segir að hann hafi haft samband við fyrrverandi knattspyrnustjóra United, Ole Gunnar Solskjær, til að biðja um símanúmer Keane svo hann geti rætt málið. „Auðvitað held ég að ég hafi alltaf sýnt Roy Keane mikla virðingu og fyrir öllu sem hann hefur gert fyrir félagið og fyrir öllu sem hann hefur alltaf sagt,“ bætti Fernandes við. „Ég hef aldrei haft neitt að segja, ég hef aldrei sagt eitthvað rangt. Ég bað Ole meira að segja um símanúmerið hans til að senda honum sms, til að vera heiðarlegur, til að spjalla við hann og segja að ég hafi ekkert á móti gagnrýni en mér líkar ekki þegar fólk lýgur um það sem ég segi.“ Fernandes átti glimrandi fína leiktíð með United-liði sem hafnaði í þriðja sæti, að stórum hluta þökk sé stjóraskiptum er Michael Carrick tók við af Rúben Amorim í byrjun þessa árs. Fernandes var valinn besti leikmaður deildarinnar á nýliðinni leiktíð.
Manchester United Enski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Enski boltinn Fleiri fréttir Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Sjá meira