Fordómar í garð Hafdísar á borð HSÍ: „Litið grafalvarlegum augum“ Valur Páll Eiríksson skrifar 7. maí 2026 14:40 Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals. Vísir/Ernir Eyjólfsson Stuðningsmenn ÍBV eru sakaðir um fordómafulla hegðun í garð Hafdísar Renötudóttur, markvarðar Vals, á grundvelli kynhneigðar hennar.
Köll úr stúkunni beintust að Hafdísi í upphafi síðari hálfleiks í leik liðanna í Vestmannaeyjum í fyrrakvöld. Handkastið greinir frá og birtir myndskeið af atvikinu. Stuðningsmenn kalla þara að henni: „Hafdís elskar skæri“. Þar er vísað til kynlífs tveggja kvenmanna en Hafdís er samkynhneigð. Handkastið segir köllin hafa vakið hörð viðbrögð á meðal Valsmanna. Þau séu niðrandi og skýrt dæmi um fordóma í garð samkynhneigðra. ÍBV kann að eiga yfir höfði refsingu vegna málsins á grundvelli siðareglna HSÍ. Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri HSÍ, staðfesti í samtali við Vísi að málið hefði komið inn á borð sambandsins og væri í farvegi. Það fengi sitt ferli í kerfum sambandsins. Hún tók fram að málið væri litið grafalvarlegum augum og að hvers kyns fordómar væru fordæmdir harðlega af sambandinu. Valur vann leikinn í Eyjum með tveggja marka mun og leiðir einvígið 2-0. Valskonur geta því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn þegar liðin eigast við þriðja sinni að Hlíðarenda á laugardaginn kemur.
Olís-deild kvenna ÍBV Valur HSÍ Mest lesið Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn Kallaður fyrir þingnefnd vegna tengslanna við Trump Fótbolti „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Mbappé sár eftir HM Fótbolti Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Íslenski boltinn Úrslitaleikurinn á HM reyndist síðasti leikurinn á ferlinum Fótbolti Finnst illa að Argentínu vegið: „Enginn fótur fyrir þessu hatri“ Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira