Afkoma Alvotech nokkuð undir væntingum og „sjóðsstaða þrengist“
Bæði tekjur og rekstrarhagnaður Alvotech á fyrsta fjórðungi var talsvert undir meðalspá greinenda en þar hefur meðal annars áhrif, að sögn stjórnenda, að hægja þurfti á framleiðslu vegna úrbóta á verksmiðjunni. Gengi bréfa Alvotech hríðlækkaði við opnun markaða en greinendur benda á að lausafjárstaða félagsins „þrengdist hratt“ á fjórðungnum.
Tengdar fréttir
Kláraði 25 milljarða samstarfssamning við systurfélagið Alvogen í lok árs
Nýr samstarfssamningur sem Alvotech gerði við systurfélag sitt, Alvogen, rétt undir lok síðasta árs sem nær til markaðssetningar í Bandaríkjunum á þremur líftæknilyfjahliðstæðum í þróun getur skilað íslenska félaginu yfir 200 milljónum dala í leyfis- og áfangatekjur. Hluti þeirra tekna var bókfærður á fjórða ársfjórðungi en hlutabréfaverð Alvotech hefur rétt aðeins úr kútnum að undanförnu.
Alvotech ætlar að færa hluta framleiðslunnar til Bandaríkjanna
Alvotech vinnur nú að því að koma á fót annarri framleiðsluaðstöðu sem yrði í Bandaríkjunum fyrir hluta af lyfjaframleiðslu sinni með því að gera samning við stategískan samstarfsaðila þar í landi. Að sögn stjórnenda félagsins, sem hefur hingað til verið með alla framleiðslu sína hér á landi, er markmiðið meðal annars að auka afhendingaröryggi og styðja við markaðssetningu og aukna sölu á alþjóðamörkuðum.
Hvað segja greinendur erlendra banka um stöðu og horfur Alvotech?
Eftir að hafa hríðfallið á fáeinum mánuðum þá endurspeglar núverandi hlutabréfaverð Alvotech að stórum hluta þær tafir sem hafa orðið á markaðssetningu nýrra lyfja í Bandaríkjunum og skýrari mynd þarf að fást á framhaldið áður en búast megi við snörpum viðsnúningi, að mati sérfræðinga. Greinendur erlendra fjármálastofnana hafa á síðustu dögum verið að uppfæra verðmöt sín á Alvotech, sem flestir telja að sé undirverðlagt á markaði, og sumir eru „hóflega“ bjartsýnir á að félagið sé að snúa vörn í sókn á meðan aðrir undirstrika að óvissan er enn mikil.
Telur Alvotech verulega undirverðlagt á markaði þrátt fyrir lækkun á verðmati
Þótt bandaríski stórbankinn Morgan Stanley hafi lækkað lítillega verðmat sitt á Alvotech þá ráðleggur hann fjárfestum að vera yfirvigtaðir í félaginu og telur það verulega undirverðlagt á markaði.