Alvotech
1 2 3 4 5 6 … 8 ›
Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Hlutir fyrir um 12,2 milljarða króna voru seldir í hlutafjárútboði líftæknifyrirtækisins Alvotech í Bandaríkjunum sem lauk í dag. Þegar áskriftarsamningar sem fyrirtækið gerði við fjárfesta í Evrópu eru taldir með aflaði það sér um 20,6 milljarða króna. Viðskipti innlent 18.6.2026 08:32
Áfall fyrir keppinautinn í hliðstæðum við Simponi talið geta styrk stöðu Alvotech Alvarlegar athugasemdir Evrópsku lyfjastofnunarinnar við framleiðsluaðstöðu kínverska líftæknifyrirtækisins Bio-Thera gætu styrkt stöðu Alvotech verulega á einum verðmætasta markaði félagsins á næstu árum. Bio-Thera hefur hingað til verið eini þekkti keppinautur Alvotech á markaði með hliðstæður við frumlyfið Simponi en Róbert Wessman hefur nýlega sagt að hann geri ráð fyrir að félagi verði í fararbroddi í sölu á því lyfi í Bandaríkjunum. Innherji 17.6.2026 13:08
Gefur Alvotech nauðsynleg svigrúm og losar um óvissu sem vofði yfir félaginu Yfir tuttugu milljarða hlutafjáraukning Alvotech átti ekki að koma á óvart með hliðsjón af þróun lausafjárstöðu á fyrsta fjórðungi og áformum um áframhaldandi miklar fjárfestingar, að sögn erlendra greinenda, en þeir segja stjórnendur núna hafa meiri sveigjanleika til að mæta rekstrarþörf félagsins auk þess sem búið sé að styrkja og einfalda fjárfestasöguna. Mikil velta hefur verið með bréf félagsins frá opnun markaðarins vestanhafs í dag og gengið hækkað talsvert frá útboðsgenginu. Innherji 16.6.2026 14:33
Alvotech klárar hlutafjárútboð sem tryggir félaginu allt að tuttugu milljarða Alvotech hefur klárað almennt sölutryggt hlutafjárútboð í Bandaríkjunum samhliða lokuðu útboði beint að tilteknum fjárfestum á EES-svæðinu sem tryggir félaginu allt að rúmlega tuttugu milljarða, nokkuð meira en stefnt var að. Áskriftargengið var á talsverðum afslætti miðað við dagslokagengið í gær. Innherjamolar 16.6.2026 08:19
Alvotech efnir til útboðs í Bandaríkjunum og áformar að sækja yfir 15 milljarða Alvotech hefur ákveðið að efna til sölutryggðs hlutafjárútboðs í Bandaríkjunum samhliða því að áforma að bjóða tilteknum fagfjárfestum á EES-svæðinu að kaupa bréf á sama gengi, en félagið væntir þess að söluandvirði hlutabréfanna muni samtals nema um 125 milljónum Bandaríkjadala. Hlutabréfaverð Alvotech hefur fallið skarpt á eftirmarkaði vestanhafs í kvöld en hlutafjáraukningin kemur í kjölfar þess að sjóðstaða félagsins hafði þrengst nokkuð á fyrstu mánuðum ársins. Innherji 15.6.2026 21:02
Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Alvotech efnir til útboðs á hlutabréfum í Bandaríkjunum að andvirði 125 milljóna Bandaríkjadala eða ríflega fimmtán og hálfum milljarði íslenskra króna. Viðskipti innlent 15.6.2026 20:41
Mæla með kaupum og telja að það horfi til betri vegar eftir mikinn ólgusjó Eftir að hafa verið í miklum ólgusjó síðustu misseri þá horfir til betri vegar hjá Alvotech með umsóknum um markaðsleyfi á nýjum lyfjum til FDA, samkvæmt nýrri greiningu, en félagið er verðmetið langt yfir markaðsgengi og því spáð að tekjur þessa árs verði við efri mörk útistandandi afkomuáætlunar. Greinendur vara samt við því að ef það verða hnökrar í ár á rekstri Alvotech, sem skuldar samtals um 1,7 milljarða dala, með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á áætlanir næstu ára þá séu „töluverðar líkur“ á að félagið lendi í erfiðleikum. Innherji 10.6.2026 14:02
Væntir þess að vera fyrst á markað með hliðstæðu við sjö milljarða dala lyf Hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp eftir að félagið greindi frá því að FDA hefði tekið til umsagnar umsókn þess um markaðsleyfi fyrir væntanlega hliðstæðu við lyfið Entyvio. Félagið telur sig vera í sterkri stöðu til að verða fyrst á markað með slíka hliðstæðu bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, en frumlyfið selst í dag fyrir meira en sjö milljarða dala á ári. Innherji 8.6.2026 15:46
Sér mikil tækifæri með hliðstæðu við Simponi vegna takmarkaðrar samkeppni Alvotech gerir ráð fyrir því að vera komið með þrjár nýjar líftæknilyfjahliðstæður á Bandaríkjamarkað í árslok og horfir þar einkum til tækifæra með hliðstæðuna við Simponi, að sögn stofnanda og aðaleigenda félagsins, þar sem samkeppnin er „mjög takmörkuð.“ Hann segir Alvotech vera á ákveðnum „vendipunkti“ og að breytingar á regluverki FDA séu til þess fallnar að styrkja samkeppnisstöðu félagsins enda talsverðar aðgangshindranir fyrir nýja leikendur að koma inn á markaðinn. Innherji 5.6.2026 08:38
Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Gengi hlutabréfa í Alvotech hækkaði um 22 prósent í dag en félagið greindi frá því morgun að það hefði að nýju lagt inn umsóknir um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir hliðstæður við Simponi, Simponi Aria og Eylea. Viðskipti innlent 4.6.2026 15:37
Vogunarsjóðsrisi fjárfestir í íslenskum líftæknifélögum fyrir milljarða Bandaríska félagið Millennium Management, einn stærsti og áhrifamesti vogunarsjóður í heimi, er kominn í hóp stærstu hluthafa tveggja skráðra íslenskra líftæknifélaga eftir að hafa stækkað stöðu sínu verulega á fyrstu mánuðum ársins með kaupum fyrir marga milljarða. Innherji 21.5.2026 12:37
Gengi Alvotech tekur kipp Gengi hlutabréfa í Alvotech hefur tekið vænan kipp í morgun, eftir að tilkynnt var að niðurstaða úttektar Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna, FDA, væri að fyrirtækið uppfylli nú ströngustu kröfur góðra framleiðsluhátta í lyfjaframleiðslu. Viðskipti innlent 11.5.2026 09:54
Alvotech stóðst úttekt FDA Reglubundinni úttekt Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) á framleiðsluaðstöðu Alvotech er lokið. Henni lauk á föstudaginn en forsvarsmenn Alvotech segja hana staðfesta að fyrirtækið uppfylli „ströngustu kröfur góðra framleiðsluhátta í lyfjaframleiðslu (cGMP). Viðskipti innlent 11.5.2026 09:07
Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Gengi hlutabréfa í Alvotech lækkaði um rúm tíu prósent í fyrstu viðskiptum eftir opnun Kauphallarinnar í morgun. Félagið birti uppgjör eftir lokun markaða í gær. Viðskipti innlent 7.5.2026 10:01
Afkoma Alvotech nokkuð undir væntingum og „sjóðsstaða þrengist“ Bæði tekjur og rekstrarhagnaður Alvotech á fyrsta fjórðungi var talsvert undir meðalspá greinenda en þar hefur meðal annars áhrif, að sögn stjórnenda, að hægja þurfti á framleiðslu vegna úrbóta á verksmiðjunni. Gengi bréfa Alvotech hríðlækkaði við opnun markaða en greinendur benda á að lausafjárstaða félagsins „þrengdist hratt“ á fjórðungnum. Innherji 7.5.2026 09:41
Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Heildartekjur Alvotech voru 105,9 milljónir dollara, samanborið við 132,8 milljónir dollara á fyrsta fjórðungi liðins árs. Það samsvarar um þrettán milljörðum íslenskra króna. Félagið gerir ráð fyrir að heildartekjur ársins 2026 verði á bilinu 650 til 700 milljónir dollara. Viðskipti innlent 6.5.2026 21:37
Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Fulltrúar Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna, FDA, bönkuðu upp á í höfuðstöðvum Alvotech í Vatnsmýri í Reykjavík í gærmorgun. Þar framkvæma þeir átta daga fyrirvaralausa úttekt á aðstæðum og framleiðsluferlum. Félagið er að sögn vel undirbúið fyrir slíka heimsókn. Viðskipti innlent 30.4.2026 15:22
Telur Alvotech verulega undirverðlagt á markaði þrátt fyrir lækkun á verðmati Þótt bandaríski stórbankinn Morgan Stanley hafi lækkað lítillega verðmat sitt á Alvotech þá ráðleggur hann fjárfestum að vera yfirvigtaðir í félaginu og telur það verulega undirverðlagt á markaði. Innherjamolar 14.4.2026 14:55
Kláraði 25 milljarða samstarfssamning við systurfélagið Alvogen í lok árs Nýr samstarfssamningur sem Alvotech gerði við systurfélag sitt, Alvogen, rétt undir lok síðasta árs sem nær til markaðssetningar í Bandaríkjunum á þremur líftæknilyfjahliðstæðum í þróun getur skilað íslenska félaginu yfir 200 milljónum dala í leyfis- og áfangatekjur. Hluti þeirra tekna var bókfærður á fjórða ársfjórðungi en hlutabréfaverð Alvotech hefur rétt aðeins úr kútnum að undanförnu. Innherji 8.4.2026 12:48
Hvað segja greinendur erlendra banka um stöðu og horfur Alvotech? Eftir að hafa hríðfallið á fáeinum mánuðum þá endurspeglar núverandi hlutabréfaverð Alvotech að stórum hluta þær tafir sem hafa orðið á markaðssetningu nýrra lyfja í Bandaríkjunum og skýrari mynd þarf að fást á framhaldið áður en búast megi við snörpum viðsnúningi, að mati sérfræðinga. Greinendur erlendra fjármálastofnana hafa á síðustu dögum verið að uppfæra verðmöt sín á Alvotech, sem flestir telja að sé undirverðlagt á markaði, og sumir eru „hóflega“ bjartsýnir á að félagið sé að snúa vörn í sókn á meðan aðrir undirstrika að óvissan er enn mikil. Innherji 25.3.2026 15:19
Lækka verðmatið og segja Alvotech vera í „biðstöðu“ fram að samþykki FDA Þótt langtímahorfur á markaði fyrir líftæknilyfjahliðstæður séu góðar þá er útlit fyrir að Alvotech verði áfram í nokkurs konar „biðstöðu“ þangað til FDA gefur grænt ljós á markaðsleyfi í lok ársins, að mati greinenda erlends fjárfestingabanka, og er fjárfestum ráðlagt að fylgjast með fjárhagslegum sveigjanlega félagsins. Innherjamolar 24.3.2026 10:48
Alvotech ætlar að færa hluta framleiðslunnar til Bandaríkjanna Alvotech vinnur nú að því að koma á fót annarri framleiðsluaðstöðu sem yrði í Bandaríkjunum fyrir hluta af lyfjaframleiðslu sinni með því að gera samning við stategískan samstarfsaðila þar í landi. Að sögn stjórnenda félagsins, sem hefur hingað til verið með alla framleiðslu sína hér á landi, er markmiðið meðal annars að auka afhendingaröryggi og styðja við markaðssetningu og aukna sölu á alþjóðamörkuðum. Innherji 21.3.2026 15:24
Afkoma Alvotech umfram spár en sölutekjurnar skreppa mikið saman Bæði tekjur og aðlagaður rekstrarhagnaður hjá Alvotech á fjórða ársfjórðungi var yfir meðalspá greinenda en afkomuspá félagsins fyrir árið 2026, sem gerir ráð fyrir nánast engum tekjum í Bandaríkjunum af lyfjum sem bíða samþykkis FDA, helst óbreytt. Sölutekjur Alvotech skruppu mikið saman á seinni árshelmingi þegar félagið þurfti að ráðast í endurbætur á framleiðsluaðstöðunni. Innherjamolar 19.3.2026 12:02
Lífeyrissjóðir biðu af sér dýfuna þegar gengi Alvotech féll um sextíu prósent Á meðan innlendir verðbréfasjóðir hafa flestir hverjir minnkað verulega stöðu sína í Alvotech undanfarna mánuði og misseri hafa lífeyrissjóðir beðið af sér dýfuna sem hefur orðið á hlutabréfaverði líftæknilyfjafélagsins. Eignarhlutur helstu lífeyrissjóða í Alvotech hélst að mestu óbreyttur í fyrra þegar gengi bréfa félagsins féll um meira en sextíu prósent. Innherji 17.3.2026 15:09
Jóhann hættir störfum hjá Alvotech og fjárfestingarfélaginu Aztiq Jóhann G. Jóhannsson, framkvæmdastjóri hjá Alvotech og einn stofnenda fjárfestingafélagsins Aztiq, er hættur störfum hjá fyrirtækjunum en hann hefur verið meðal lykilstjórnenda hjá samstæðunni í nærri tvo áratugi. Innherji 3.3.2026 10:24
Oaktree seldi meira en helminginn af stöðu sjóðsins í Alvotech í lok ársins Vogunarsjóðurinn Oaktree Capital, sem eignaðist stóran hlut í Alvotech í aðdraganda skráningar á markað fyrir fjórum árum, var umsvifamestur á söluhliðinni með bréf félagsins á síðustu mánuðum ársins 2025 þegar hann losaði um meginþorra af eftirstandandi eignarhlutar. Eftir að hafa rétt aðeins úr kútnum á fyrstu vikum ársins hefur hlutabréfaverð Alvotech fallið um fjórðung á skömmum tíma. Innherjamolar 25.2.2026 17:46
Vænta þess að tekjur Alvotech af vörusölu tvöfaldist frá fyrri fjórðungi Útlit er fyrir að umtalsverður tekjuvöxtur hafi verið hjá Alvotech á síðasta ársfjórðungi, drifinn áfram aukinni vörusölu, sem ætti að þýða að heildartekjur ársins 2025 verði við efri mörk útgefinnar afkomuspár. Innherjamolar 3.2.2026 17:18
Olíusjóðurinn bætir við sig í íslenskum verðbréfum fyrir um tuttugu milljarða Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu á heimsvísu, bætti verulega við stöðu sína í íslenskum ríkisskuldabréfum á liðnu ári en umfang verðbréfaeignar sjóðsins hér á landi er að nálgast sömu slóðir og þegar mest var fyrir tveimur áratugum. Innherji 31.1.2026 12:54
Uppsagnir hjá Alvotech Fimmtán starfsmönnum Alvotech á Íslandi var sagt upp í byrjun vikunnar og öðrum eins fjölda á skrifstofum félagsins erlendis. Viðskipti innlent 28.1.2026 11:05
Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Róbert Wessman kveðst spenntur og brattur yfir framtíð Alvotech en hann lætur senn af starfi forstjóra félagsins. Hann verður áfram stjórnarformaður félagsins í fullu starfi og segist munu slappa af síðar. Hann hafi samþykkt að taka stöðu forstjóra að sér árið 2023 með því skilyrði að ráðstöfunin yrði tímabundin. Viðskipti innlent 6.1.2026 17:03