Upp­gjörið: ÍBV 23-25 Valur | Vals­konur einum sigri frá Ís­lands­meistara­titli

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Valur - Fram Olís deild kvenna Vor 2026
Valur - Fram Olís deild kvenna Vor 2026 vísir/Diego

Valur er einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum, varð það ljóst eftir tveggja marka sigur á ÍBV í einvígi liðanna um titilinn. Lokatölur 23-25 í Vestmannaeyjum og staðan því orðin 2-0 í einvíginu fyrir Val.

Valskonur, sem komu til Eyja í gær, hófu leikinn af miklum krafti og enga sjóriðu að sjá á leik liðsins. Var staðan orðin 2-6 fyrir gestunum snemma leiks, þar sem Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir, hornamaður Vals, óð í færum. Fjögur mörk frá Ásthildi Jónu í fyrri hálfleik.

Á tólftu mínútu tók Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, leikhlé enda hans konur að tapa boltanum klaufalega í sókninni og fá á sig auðveld mörk í kjölfarið. Eftir leikhléið fækkaði töpuðu boltunum, en hins vegar fjölgaði vörðum boltum hjá Hafdísi Renötudóttur, í marki Vals. Hafdís að verja mörg dauðafæri

Ólöf Maren í marki ÍBV náði þó að svara fyrir sínar konur með nokkrum mikilvægum vörslum í markinu. Gerði það heimakonum kleift að minnka muninn niður í tvö mörk áður en flautað var til hálfleiks. Staðan 13-15 í hálfleik fyrir Val.

Fyrstu mínútur síðari hálfleiksins voru keimlíkar upphafsmínútum leiksins, tapaðir boltar hjá ÍBV og auðveld mörk hjá Val

Þegar tæpt korter var eftir af leiknum tók ÍBV leikhlé, þá fjórum mörkum undir, 18-22. Skilaði það leikhlé litlu, en þess má geta að heimakonur spiluðu sjó á sex sóknarlega stærstan hluta síðari hálfleiksins.

Valskonur náðu á næstu mínútum að skora tvö mörk og koma muninum upp í sex mörk, 18-24. Þá tók ÍBV aftur leikhlé.

Leikurinn breyttist ÍBV í hag eftir það leikhlé. Vörn Eyjakvenna stóð mun betur og voru Valskonur í alls konar vandræðum sóknarlega. Voru vandræðin svo mikil að Val tókst ekki að skora mark í u.þ.b. tólf mínútur. Á meðan tókst ÍBV að malla inn mörkum og náðu að minnka muninn niður í tvö mörk þegar tvær mínútur voru eftir, staðan 22-24.

Lovísa Thompson tók þá til sinna mála og skoraði lokamark Vals í leiknum og gerði út um leikinn, enda ómögulegt fyrir ÍBV að skora þrjú mörk á innan við mínútu.

Valskonur fara því sáttar heim frá Eyjum og sjá sennilega hátíðarhöld á laugardaginn í hillingum.

Atvik leiksins

Þá mátti litlu muna að þessi tólf mínútna markalausi kafli Valskvenna undir lokinn myndi bíta þær í rassinn. Það var í raun ótrúlegt að horfa upp á besta lið landsins lenda í þessari klemmu. Eyjakonur náðu þó ekki að nýta sér þessi vandræði gestanna til fulls og því fór sem fór.

Stjörnur og skúrkar

Markverðir beggja liða voru frábærir í leiknum. Hafdís Renötudóttir varði 17 skot í marki Vals og Ólöf Maren Bjarnadóttir varði 15 skot hjá ÍBV. Elísabet Millý Elíasardóttir, varamarkvörður Vals, tókst einnig að verja annað af tveimur vítum sem hún fékk að spreyta sig gegn.

Birna Berg, stórskytta ÍBV, svaraði fyrir sig í dag eftir slæman leik í fyrsta leik liðanna. Öflug varnarlega og skilaði sjö mörkum ásamt fjórum stoðsendingum.

Sóknarleikur Vals undir lokinn hefði hæglega getað orðið skúrkurinn, en Lovísa Thompson náði að höggva á hnútinn á endanum og tryggja sigurinn.

Dómarar

Svavar Ólafur Pétursson og Þorleifur Árni Björnsson sáu um að dæma þennan leik, en þeir dæma iðulega ekki saman. Þrátt fyrir það hafði það engin áhrif á leikinn og var dómgæslan fín í leiknum.

Stemning og umgjörð

Mikil stemming út í Eyjum. Ekkert til sparað í ljósa-showi og látum fyrir leik, þegar lið ÍBV var kynnt til leiks. Frábær stuðningur frá eyjaskeggjum. Eins og gefur kannski að skilja voru fáir Valsarar á leiknum, enda leikur á virkum degi út í Vestmannaeyjum þar sem samgöngur hafa verið erfiðar upp á síðkastið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira