Mikil mistök að hafa selt Viggó Sindri Sverrisson skrifar 5. maí 2026 09:01 Viggó Kristjánsson gæti svo sannarlega hafa hjálpað Leipzig í vetur hefði hann ekki verið seldur. vísir/Vilhelm Karsten Günther, framkvæmdastjóri þýska handknattleiksfélagsins Leipzig, viðurkennir að það hafi verið mistök að selja íslenska landsliðsmanninn Viggó Kristjánsson til Erlangen á sínum tíma.
Leipzig situr á botni þýsku deildarinnar, með 13 stig eftir 30 leiki, stigi á eftir Minden og tveimur á eftir Wetzlar sem auk þess er með mun betri markatölu. Tvö neðstu liðin falla niður um deild og ljóst að það yrði mikið áfall fyrir Leipzig. Þess vegna sjá Günther og félagar nú mjög eftir því að hafa ákveðið að selja Viggó um áramótin 2024-25: „Þegar við lítum til baka hefðum við örugglega gert ýmislegt öðruvísi. Þegar við tókum ákvörðunina vorum við öll sannfærð um að það væri rétta skrefið. Og það er heldur ekki einn einstakur atburður sem er úrslitaatriðið. Það er samspil atburða og þar eru skipti Viggós yfir til Erlangen vissulega einn þeirra,“ sagði Günther við Dyn streymisveituna, samkvæmt Handball World. Viggó hafði verið lykilmaður hjá Leipzig en rétt fyrir jólin 2024 ákváðu forráðamenn félagsins að taka tilboði Erlangen og selja örvhentu marka- og stoðsendingamaskínuna sína. Erlangen var í fallsæti þegar Viggó kom en hann átti svo sinn þátt í halda liðinu uppi og er Erlangen í 14. sæti af 18 liðum þegar fjórar umferðir eru eftir af yfirstandandi leiktíð. Viggó, sem reyndar á við meiðsli að stríða, er svo á leið til stórliðs Flensburg í sumar. Günther segir að þó svo illa færi að Leipzig félli um deild þá sé búið að semja um að leikmenn á borð við þýska landsliðsmanninn og Franz Semper og Slóvenann Dean Bombac verði áfram í liðinu. Fall myndi engu að síður hafa afar mikil áhrif. „Að sjálfsögðu er það gríðarleg skerðing fyrir allt félagið að þurfa að laga fjárhagsáætlunina að falli úr 1. deild í 2. deild. Ég myndi gjarnan vilja hlífa okkur öllum við því.“
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira