Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason, Hafrún Kristjánsdóttir og Bjarni Fritzson skrifa 4. maí 2026 07:45 Við heyrum of oft frá foreldrum sem eru að hlaupa og skutlast á milli skóla, frístundar, æfinga og listiðkunar að kerfið vinnur ekki alltaf með þeim. Við getum gert þetta miklu betur. Skipulagt íþrótta og tómstundastarf skiptir sköpum fyrir heilsu, sjálfstraust og félagslíf barna og ungmenna. Auk þess er forvarnargildið ótvírætt. Þess vegna eigum við að setja okkur einfalt markmið: Að öll börn í Reykjavík hafi raunverulegt tækifæri til að taka þátt í þeim íþróttum og tómstundum sem þau langar að taka þátt í. Kerfið þarf að vera aðgengilegt, einfalt og sjálfsagt. Nánara samstarf Til þess þarf meiri samfellu. Borgin, skólarnir, frístundin og íþróttafélögin þurfa að vinna betur saman og þar á borgin að vera í forystu. Það á að vera auðvelt fyrir börn að prófa sig áfram og fyrir foreldra að halda utan um daginn. Við eigum að tryggja í samstarfi við íþróttafélögin að yngstu börnin geti fengið að prófa margar íþróttir og þannig fundið sína fjöl. Það gerum við til að mynda með því að tyggja hverfisfélögunum stuðning svo þau geti innheimt aðeins eitt gjald fyrir yngstu börnin sem veiti þeim aðgang að fjölbreyttum íþróttagreinum Þetta hefur gefið góða raun hjá ÍR-ingum í Breiðholti. Betri nýting á skólahúsnæði Skólahúsnæði er vannýtt í Reykjavík þegar skólatíma lýkur. Þetta er risastórt tækifæri. Að nýta þá innviði sem fyrir eru til að koma fleirum á hreyfingu. Skutl og ferðalög minnka til muna. Íþróttahús og dans- og leiklistarsalir í sumum skólum eru tómir eftir kl. 14. Börn í t.d. 1.-3. bekk gætu iðkað sínar íþróttir, frístundir og listnám þar í stað þess að ferðast vítt og breitt um borgina. Í sumum hverfum er íþróttaaðstaðan bágborin. Það gengur t.d. ekki að það sé nánast bara eitt nothæft íþróttahús fyrir fjóra skóla, eins og raunin er í Lauganeshverfi. Og vandinn er víðar, íþróttahús borgarinnar leka, þar er mygla og allskonar vandamál. Við verðum einfaldlega að gera betur. Íþróttahús barnanna okkar liggja undir skemmdum vegna langvarandi viðhaldsleysis. Rúllum út bláa dreglinum Við þurfum líka að tryggja jafnt aðgengi, sérstaklega til barna af erlendum uppruna eða þeirra sem upplifa óvissu eða óöryggi vegna kynhneigðar eða af öðrum ástæðum. Það er ótrúlega mikilvægt fyrir þau að fá að tilheyra samfélaginu utan skólatíma, þar eignast þau vini, fá hvatningu og að láta ljós sitt skína. Við verðum sömuleiðis að tryggja að æfinga- eða frístundagjöld komi ekki í veg fyrir að börn efnaminni foreldra fái að vera með. Það er ekki hægt að leggja alla ábyrgð á íþróttahreyfinguna sem borin uppi á sjálfboðaliðum. Borgin þarf að gera íþróttafélögunum kleift að taka vel á móti öllum börnum. Íþróttafélögin vilja gera það, og dæmi frá öðrum þjóðum sýna glöggt mikilvægi þess að börn eignist fyrirmyndir sem þau tengja við. Hvar leynist okkar Zlatan eða Pernille Harder? Lifandi borg En þetta snýst líka um hversdaginn, það sem gerir borgina lifandi. Sundlaugarnar okkar eru einstakar og gegna lykilhlutverki í lýðheilsu. Þær eru líka frábær samverustaður ótrúlega margra borgabúa á öllum aldri. Þar eigum við að halda áfram að gera vel, rýmka opnunartíma og hugsa skapandi, til dæmis með reglulegum lengri kvöldopnunum á föstudags- eða laugardagskvöldum. Golfvöll í Viðey! Útivistarsvæði skipta líka miklu máli. Viðey hefur ótrúlega möguleika sem við höfum ekki nýtt til fulls. Þar á að byggja upp öflugt útivistarsvæði með gönguleiðum, leiksvæðum og golfvelli sem myndi skapa ný tækifæri til hreyfingar og upplifunar í nærumhverfi borgarinnar. Byrjum strax að tala við golfsamfélagið um samstarf í þessu. Golf er íþrótt sem allir geta stundað, ungir sem aldnir. Íþróttin hefur vaxið gríðarlega og það vantar fleiri golfvelli. Golf er næst fjölmennasta íþrótt á Íslandi og flestir golfklúbbar á höfuðborgarsvæðinu eru með langa biðlista. Hverfin blómstri Og svo eru það hverfin sjálf. Góð leiksvæði og rólóar skipta máli, en ekki síður aðstaðan í kring. Bekkir, skjól fyrir rigningu og roki og aðgengi fyrir foreldra og ömmur og afa eru einföld atriði sem breyta miklu. Og má ekki setja hitatæki á sum þessara svæða og sjá hvort það er ekki þægilegra í kuldanum? Allar þessar pælingar okkar eru ekki flóknar. Okkar bakgrunnur er úr íþróttum og listum. Við þekkjum þetta. Allt sem þarf er samtal og hugmyndir að lausnum. Vindum okkur strax í það eftir kosningar. Af hverju ekki? STRAX-D. Höfundar skipar 5., 8. og 12. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rúnar Freyr Gíslason Bjarni Fritzson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðey Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Sjá meira