Viðskipti innlent

Nýir eig­endur taka við svæðismiðlinum Trölla.is

Lovísa Arnardóttir skrifar
Selma og Smári hafa tekið við rekstrinum.
Selma og Smári hafa tekið við rekstrinum. Trölli.is

Hjónin Selma Hrönn Maríudóttir og Smári Valtýr Sæbjörnsson hafa tekið við rekstri svæðismiðilsins Trölli.is. Frá því er greint í tilkynningu á vef miðilsins. Í tilkynningunni segir að þau ætli að setja fókus á afmarkaðra svæði og leggja sérstaka áherslu á lífið í Fjallabyggð og Fljótum.

„Markmið okkar er að Trolli.is verði áfram öflugur, óháður frétta-, upplýsinga- og mannlífsvefur sem endurspeglar lífið á svæðinu, fyrr og nú, með áherslu á það sem er jákvætt, uppbyggjandi og gefandi, án þess þó að missa sjónar á fjölbreytileika mannlífsins. Þó að við tökum formlega við rekstrinum í dag höfum við þegar verið að setja inn efni á vefinn í aprílmánuði og hafa lesendur því eflaust orðið varir við ákveðnar áherslubreytingar. Þar höfum við meðal annars lagt áherslu á að taka viðtöl og kafa dýpra í sögur fólks á svæðinu,“ segir í tilkynningu og að haldið verði áfram á þeirri braut.

Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að Selma er fædd á Akureyri, dóttir Gylfa Ægissonar, tónlistarmanns og fyrrverandi sjómanns frá Siglufirði, og Kristínar Maríu Jónsdóttur frá Akureyri. Selma er rafeindavirki og lögfræðingur að mennt og hefur einnig stundað nám í kerfisfræði og forritun. Þar kemur einnig fram að Smári er fæddur í Reykjavík, sonur Valgerðar Valtýsdóttur og Sæbjörns Jónssonar, trompetleikara og stofnanda og stjórnanda Stórsveitar Reykjavíkur um árabil. Smári er matreiðslumaður að mennt og starfaði lengst af á því sviði. Í dag er hann öryrki eftir alvarlegt hjartastopp og hjartaáfall haustið 2023.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×