Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Agnar Már Másson skrifar 30. apríl 2026 19:41 Ný könnun sýnir að kjósendum Viðreisnar sé fremur illa við Ara og að sömuleiðis sé kjósendum Miðflokksins illa við Björgu. Gætu þau myndað meirihluta? Samsett Mynd/Lýður Sanna Magndalena Mörtudóttir hjá Vinstrinu er sá oddviti sem Reykvíkingar treysta best samkvæmt nýrri könnun. Sama könnun varpar einnig ljósi á það að kjósendum Miðflokksins og kjósendum Viðreisnar sé fremur illa við oddvita hvorum annarra, sem gæti reynst erfitt fyrir flokkana tvo ef þeir vilja að mynda saman meirihluta ásamt Sjálfstæðisflokknum.
Í raun er Sanna eini oddvitinn sem fleiri treysta vel heldur en illa, samkvæmt nýrri Maskínukönnun sem unnin var fyrir Sýn og Vísi. Hægt er að nálgast könnunina hér neðst í fréttinni. Oddviti Vinstrisins nýtur mests trausts samkvæmt könnun Maskínu.Vísir/Hjalti Næstvinsælasti oddvitinn er Hildur Björnsdóttir hjá Sjálfstæðisflokknum, sem nýtur trausts 30 prósenta Reykvíkinga, og Pétur Marteinsson hjá Samfylkingunni þar á eftir með 28 prósent. Björg Magnúsdóttir hjá Viðreisn nýtur trausts um fjórðungs kjósenda og Silja Sóley hjá Sósíalistum um fimmtungs. Sanna Magdalena Mörtudóttir var borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins en er nú í framboði undir nýju flaggi Vinstrisins.Vísir/Anton Síðan fylgja Einar Þorsteinsson hjá Framsókn og Kristinn Jón Ólafsson hjá Pírötum, sem hvor tveggja njóta trausts rúmlega 18 prósenta kjósenda, og svo Ari Edwald með tæp 13 prósent. Guðmundur Ingi Þóroddsson hjá Flokki fólksins, Ingimar Þór Friðriksson hjá Góðum deginum og að lokum Sigfús Aðalsteinsson hjá Okkar borg njóta allir góðs trausts hjá færri en 10 prósent kjósenda. „Allir oddvitar geta glatt sig við það að það er hærra hlutfall sem treystir þeim vel heldur en segist ætla að kjósa með flokknum,“ sagði Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur og kosningaspekúlant, er hann var til tals í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Þegar spurt var hverjum kjósendur treystu illa var nánast eins og súlurininu væri snúið við, en þar segjast 78 prósent svarenda bera lítið traust til Sigfúsar hjá Okkar borg. Þegar spurt var hverjum er treyst illa.Vísir/Hjalti Erfitt að útiloka Samfylkingu frá meirihluta Það sem Ólafi þykir aftur á móti athyglisverðast í könnuninni er að líta á hvernig kjósendur einstakra flokka treysta oddvitum annarra flokka, þar sem það gæti varpað fram skýrari mynd af mögulegum meirihlutum. „Það var tvennt sem sló mig,“ segir Ólafur. „Í þessu sjáum við mjög skýrt að það andar köldu milli kjósenda Viðreisnar og Miðflokksins; 71 prósent af kjósendum Miðflokksins bera lítið traust til Bjargar og heil 85 prósent kjósenda Viðreisnar bera lítið traust til Ara.“ Margt hefur bent til þess í skoðanakönnunum síðustu mánaða að Viðreisn gæti endað í lykilstöðu eftir kosningarnar og annað hvort myndað meirihluta til vinstri (svo sem í meirihluta með Samfylkingu, Vinstrinu og fleiri vinstri flokkum) eða til hægri (til dæmis með Miðflokki og Sjálfstæðisflokki). Síðustu fylgiskönnun Maskínu má sjá hér að neðan en þessar mælingar eru frá 17. til 24. apríl og 973 svarendur tóku afstöðu til flokks. En með tilliti til þessarar niðurstöðu er erfitt að ímynda sér meirihlutasamstarf með Miðflokksmönnum og Viðreisn, að mati Ólafs. En þyrftu þau ekki á hvort öðru að halda? „Ef það ætti að vera hreinn meirihluti sem útilokaði Samfylkinguna eru allar líkur á því að Miðflokkurinn þurfi að vera með, en það er Viðreisn sem þarf að velja með hverjum hún vill starfa. Á móti kemur að hlýtt er milli Samfylkingarkjósenda og kjósenda Viðreisnar samkvæmt könnuninni. Það eru bara 21 prósent af kjósendum Samfylkingarinnar sem bera lítið traust til Bjargar og 12 prósent kjósenda Viðreisnar sem bera lítið traust til Péturs. Munur eftir hverfum og jafnvel kyni Margt annað áhugavert má kryfja úr könnuninni, meðal annars með tilliti til búsetu og kyns. Sanna er vinsælust allra oddvita í Miðborg/Vesturbæ (45,5 prósent), Hlíðum/Laugardal, Háaleiti og Bústöðum (41,5 prósent) og Breiðholti/Árbæ (38,9 prósent). Hildur Björnsdóttir er langvinsælust í Grafarvogi/Grafarholti og Úlfarsárdal/Kjalarnesi (46 prósent) og Einar Þorsteinsson þar á eftur (25 prósent). Sjaldan er mikill munur milli kynja hvað traust til oddvita varðar í þessari könnun, nema í tilfelli Ara Edwalds, en um 17,4 prósent karla í Reykjavík segjast treysta honum vel en aðeins um 6,2 prósent kvenna. Þeir sem vilja glöggva sig á könnuninni geta skoðað gögnin hér að neðan. Tengd skjöl 2026-04-RVK-Traust_til_Oddvita-Maskínuskýrsla_merktPDF2.1MBSækja skjal
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skoðanakannanir Borgarstjórn Reykjavík Viðreisn Miðflokkurinn Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fleiri fréttir Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Sjá meira