Óvenjulegu tímabili að ljúka Freyja Þórisdóttir skrifar 27. apríl 2026 17:59 Síðast var opið í Bláfjöllum föstudaginn síðasta, 24. apríl. Þá stóð á Facebook-síðu svæðisins að „vorfærið væri upp á sitt besta“ og allar helstu skíðaleiðir troðnar. Facebook/Skíðasvæðin - Bláfjöll & Skálafell Síðustu daga hefur verið lokað í Bláfjöllum og útlit er fyrir að það verði ekki meira opnað á þessu skíðatímabili. Tímabilið var mjög óvenjulegt og opnunardagar voru ekki nema um þrjátíu talsins enda mikil rigning og svo óveður. En um áttatíu þúsund gestir lögðu leið sína upp í Bláfjöll í vetur.
Það eru einungis þrír dagar eftir af skíðatímabilinu en veturinn var að sögn Einars Bjarnasonar, rekstrarstjóra skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli, ekki eins og þeir gerast bestir. „Þetta var ótrúlega skrítið tímabil, byrjaði mjög seint og svo rigndi í þrjár vikur í desember. Svo kom loksins snjórinn en þá vorum við í miklu basli með veður,“ segir hann og bætir við að það hafi verið um þrjátíu dagar sem voru nógu góðir til að hafa opið. Í færslu Einars á síðu skíðasvæðisins á Facebook í dag segir að ekkert hafi skánað á svæðinu, það sé grenjandi rigning og komin stöðuvötn um allt. Líklega verði ekki opnað meira á þessu skíðatímabili, spáin fyrir næstu daga líti þannig út. „Það er ömurlegt að geta ekki notað þennan snjó sem er hérna en hann er alltof á floti. Við vorum komnir með tveggja metra snjó, að okkur finnst, tveimur mánuðum of seint, en svo hefur bara rignt og rignt,“ segir Einar. Meðaltalið sjaldan hærra Á móti kemur að mögulega hafi metfjöldi fólks gert sér ferð í fjöllin að meðaltali í vetur, eða áttatíu þúsund manns sem dreifðust á þrjátíu daga. „Það var alveg frábærlega vel mætt í vetur þegar var opið og ég hugsa að þetta sé eitt besta meðaltal á hvern dag sem við höfum séð enda svo fáir dagar opnir,“ segir Einar en hann nefnir einnig að mætingin fari dvínandi eftir páska. „Eftir páska sofnar þetta svolítið og það var ekkert mikið af fólki að mæta á sumardaginn fyrsta til dæmis, en það er þannig á hverju ári, alveg sama hvernig tímabilið er,“ segir hann. Fréttin hefur verið uppfærð.
Skíðasvæði Skíðaíþróttir Tímamót Tengdar fréttir „Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Stólalyftan Drottningin í Bláfjöllum bilaði í morgun, á fyrsta opnunardegi vetrarins. Verið er að rekja rafmagnsbilun og ómögulegt er að segja til um hversu lengi bilunin mun vara. Enginn var í lyftunni þegar hún bilaði og því er enginn skíðamaður að frjósa. 20. febrúar 2026 12:16 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Ferðamenn koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Sjá meira
„Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Stólalyftan Drottningin í Bláfjöllum bilaði í morgun, á fyrsta opnunardegi vetrarins. Verið er að rekja rafmagnsbilun og ómögulegt er að segja til um hversu lengi bilunin mun vara. Enginn var í lyftunni þegar hún bilaði og því er enginn skíðamaður að frjósa. 20. febrúar 2026 12:16