Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. apríl 2026 18:33 Davíð Tómas Tómasson útskýrir í Dómarahorni Davíðs af hverju sigurkarfa Hilmars Smára Henningssonar gegn Tindastóli var ólögleg. sýn sport Körfuboltadómarinn Davíð Tómas Tómasson hefur skipt um skoðun varðandi sigurkörfu Hilmars Smára Henningssonar í leik Stjörnunnar og Tindastóls í undanúrslitum Bónus deildar karla í körfubolta. Öfugt við það sem hann sagði í gær telur hann að dæma hefði átt skref á Hilmar Smára.
Stjarnan vann tveggja stiga sigur á Tindastóli, 105-103, í ótrúlegum leik í Ásgarði í Garðabænum í gær. Úrslitin réðust með flautukörfu Hilmars Smára í framlengingu. Á meðan Stjörnumenn voru í skýjunum eftir sigurkörfu Hilmars Smára voru Stólarnir afar ósáttir og töldu að dæma hefði átt skref á bakvörðinn. Íþróttadeild leitaði álits hjá Davíð í gær og þá sagði hann að karfan hefði verið lögleg. Hilmar Smári hefði ekki tekið of mörg skref. Nú hefur Davíð skipt um skoðun eins og hann greindi frá í innslagi í upphitun Bónus Körfuboltakvölds fyrir leik Vals og Grindavíkur á Hlíðarenda. „Nú langar mig aðeins að ræða við ykkur á einlægu nótunum. Ég kom í gær í viðtal þar sem ég fullyrti að þessi karfa væri lögleg. Og ég er kominn hingað í kvöld til þess að segja ykkur frá því að ég var of fljótur á mér og gerði mistök og mér þykir það ofboðslega leiðinlegt. Dómarahorn Davíðs á ekki að snúast um mig eða dómarana eða einhverjar persónur. Dómarahorn Davíðs á eingöngu að snúast um staðreyndir og það sem er rétt,“ sagði Davíð í innslagi sínu. Klippa: Dómarahorn Davíðs - karfa Hilmars Smára var ólögleg „Í morgun fór ég aðeins dýpra ofan í regluverkið. Ég hafði samband við vini mína erlendis sem eru bara að dæma á hæsta getustigi í Evrópu og slíkt. Við ræddum þetta aðeins okkar á milli og eftir mjög mikla ígrundun og pælingar komumst við að þeirri niðurstöðu að ég hefði bara fyrir alþjóð farið með rangt mál í gær. Þessi karfa á ekki að vera lögleg.“ Má ekki gera eins og hann gerir Davíð útskýrði svo af hverju karfa Hilmars Smára hefði ekki átt að standa. „Hérna lendir hann á báðum fótum og þegar hann lyftir upp vinstri fætinum, til að stíga í gegn þá, samkvæmt reglunum, er hann sjálfkrafa búinn að gera hægri fótinn á sér að snúningsfæti. Þar af leiðandi má hann stíga í vinstri fótinn og lyfta upp hægri og fara í skot en hann má ekki gera eins og hann gerir, lenda á báðum, stíga í vinstri og stíga niður í hægri og skjóta. Það að hann stígi niður í hægri fótinn er það sem gerir þessa hreyfingu ólöglega,“ sagði Davíð. „Mitt fyrsta mat á þessu var að þegar hann lendir með báða fætur sé hann í núlli og eigi þar af leiðandi að geta stigið vinstri, hægri og farið upp. Það er svona fyrsta mat en samkvæmt reglunum og samkvæmt nákvæmlega hvernig þetta á að vera, að þegar hann er búinn að lyfta upp vinstri fætinum og stíga í hann er hann sjálfkrafa búinn að gera hægri fótinn að snúningsfæti og má þar af leiðandi ekki stíga aftur í hann.“ Hefur samúð með dómurunum Davíð finnur til með dómurum leiksins sem þurftu að taka ákvörðun á þessu augnabliki í leiknum. „Pælum aðeins í einu. Nú hef ég yfir tuttugu ára reynslu af körfuboltadómgæslu. Ég var af mörgum talinn bara einn besti dómari landsins. Ég er með margra ára reynslu af að dæma á erlendri grund og þrátt fyrir að ég fengi tækifæri til þess að horfa á þetta aftur og aftur hægt og spóla þurfti ég samt sem áður að kafa djúpt ofan í reglurnar, bera mig við kollega mína úti í Evrópu og eftir mikla ígrundun að komast þá að þeirri niðurstöðu að þetta eigi að vera skref,“ sagði Davíð. „Þannig að ímyndið ykkur aðstæðuna sem að þessir þrír menn, sem eru að dæma leikinn, eru í inni á vellinum. Þeir eru að taka þessa ákvörðun, á sekúndubroti. Þúsund manns í húsinu, allir brjálaðir. Þetta er ekkert grín. Alveg eins og það er ekkert grín að vera hér með Dómarahorn Davíðs. Það er ábyrgðarhlutverk. Og ég ætla hér með að biðja ykkur afsökunar á að hafa komið með rangt mál fram og mun í framhaldinu passa fullkomlega upp á það að allar þær upplýsingar sem koma frá mér séu kórréttar.“ Þriðji leikur Stjörnunnar og Tindastóls fer fram á Sauðárkróki á miðvikudaginn kemur. Með sigri tryggja Stjörnumenn sér sæti í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Dómarahorn Davíðs má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla Stjarnan Tindastóll Körfuboltakvöld Tengdar fréttir „Við erum bara svo miklir hundar“ Flautukarfa skildi liðin að þegar Stjarnan sigraði Tindastól með tveimur stigum í framlengdum leik. Tindastóll leiddi með nítján stigum í hálfleik en Stjarnan snéri leiknum sér í vil með ótrúlegum hætti. Viktor Jónas Lúðvíksson hefur komið sterkur inn í lið Stjörnunnar í kjölfar meiðsla lykilleikmanna og lét svo sannarlega til sín taka í kvöld. 25. apríl 2026 23:43 Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Það var mikill hiti eftir leik tvö í einvígi Stjörnunnar og Tindastóls í kvöld sem lauk með sigri Stjörnunnar í framlengdum leik. Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls var brjálaður eftir leik. Baldur Þór, þjálfari Stjörnunnar bað hann afsökunar í viðtali við Sýn Sport. 25. apríl 2026 22:45 Sjáðu ótrúlega flautukörfu Hilmars Smára í framlengingu gegn Tindastól Hilmar Smári Henningsson tryggði Stjörnunni sigur í framlengdum leik tvö í undanúrslitaeinvígi liðsins gegn Tindastóls með magnaðri flautukörfu. Stjarnan er komið í 2-0 í einvíginu, getur klárað það í Síkinu í næsta leik. 25. apríl 2026 22:05 Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Lýsendur Sýnar Sport á leik tvö í einvígi Stjörnunnar og Tindastóls áttu vart orð yfir tilþrifum Luka Gasic sem varði tilraun Taiwo Badmus, leikmanns Tindastóls til þess að troða yfir hann. 25. apríl 2026 20:00 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Sjá meira
„Við erum bara svo miklir hundar“ Flautukarfa skildi liðin að þegar Stjarnan sigraði Tindastól með tveimur stigum í framlengdum leik. Tindastóll leiddi með nítján stigum í hálfleik en Stjarnan snéri leiknum sér í vil með ótrúlegum hætti. Viktor Jónas Lúðvíksson hefur komið sterkur inn í lið Stjörnunnar í kjölfar meiðsla lykilleikmanna og lét svo sannarlega til sín taka í kvöld. 25. apríl 2026 23:43
Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Það var mikill hiti eftir leik tvö í einvígi Stjörnunnar og Tindastóls í kvöld sem lauk með sigri Stjörnunnar í framlengdum leik. Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls var brjálaður eftir leik. Baldur Þór, þjálfari Stjörnunnar bað hann afsökunar í viðtali við Sýn Sport. 25. apríl 2026 22:45
Sjáðu ótrúlega flautukörfu Hilmars Smára í framlengingu gegn Tindastól Hilmar Smári Henningsson tryggði Stjörnunni sigur í framlengdum leik tvö í undanúrslitaeinvígi liðsins gegn Tindastóls með magnaðri flautukörfu. Stjarnan er komið í 2-0 í einvíginu, getur klárað það í Síkinu í næsta leik. 25. apríl 2026 22:05
Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Lýsendur Sýnar Sport á leik tvö í einvígi Stjörnunnar og Tindastóls áttu vart orð yfir tilþrifum Luka Gasic sem varði tilraun Taiwo Badmus, leikmanns Tindastóls til þess að troða yfir hann. 25. apríl 2026 20:00