Upp­gjörið: Valur - Grinda­vík 79-72 | Baráttuglaðir Vals­menn jöfnuðu ein­vígið

Siggeir Ævarsson skrifar
Kristó og Igor fagna innilega í leikslok.
Kristó og Igor fagna innilega í leikslok. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Það var boðið upp á ansi jafnan og framan af spennandi leik á Hlíðarenda í kvöld þar sem Valsmenn tóku á móti deildarmeisturum Grindavíkur en Grindavík vann fyrsta leik liðanna 82-81.

Pargo skoraði aðeins 10 stig að þessu sinniVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Heimamenn fóru aðeins betur af stað en Grindvíkingar voru að spila góða vörn sem færði þeim þægilegar sóknir í kjölfarið. Það var jafnt á öllum tölum eftir fyrsta leikhluta, 19-19.

Rétt fyrir lok leikhlutans urðu Valsmenn fyrir töluverðum skakkaföllum þegar Frank Aron Booker og Keyshawn Woods skullu saman hné í hné og Frank Aron lá sárþjáður eftir. Hann var að lokum studdur af velli og Valsmenn því án tveggja lykilmanna, en Lazar Nicolic meiddist í síðasta leik og var ekki með í kvöld.

Gestirnir fóru svo aðeins betur af stað í næsta leikhluta og leiddu 22-28 þegar Finnur Freyr tók sitt fyrsta leikhlé. Elsti leikmaður deildarinnar, Igor Maric, kom heldur betur sterkur inn af bekknum og setti fjóra þrista en þristarnir héldu Valsmönnum hreinlega inni í leiknum í fyrri hálfleik.

Igor Maric sýndi að flest er fertugum færtVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Valsmenn settu alls átta þrista í fyrri hálfleik með 44 prósent nýtingu, meðan að Grindvíkingar settu aðeins þrjá úr fimmtán skotum. Allt jafnt aftur í hálfleik, staðan 41-41. DeAndre Kane og Jordan Semple voru afar atkvæðamiklir hjá Grindavík í fyrri hálfleik með 15 og 14 stig, eða 29 af 41 stigi Grindavíkur.

Sóknarþurrð Grindvíkinga í seinni

Þriðji leikhlutinn spilaðist vel fyrir Valsmenn sem náðu upp átta stiga forskoti áður en Jóhann Þór tók sitt fyrsta leikhlé en það var ekkert að ganga upp hjá Grindvíkingum á þessum tímapunkti, staðan 54-46. Grindvíkingar náðu þó aðeins að hressa upp á sinn leik og skoruðu síðustu körfu fjórðungsins, staðan 60-57 fyrir lokaátökin.

Lawson var öflugur í kvöldVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Sóknarleikur Grindvíkinga var stirður í þriðja leikhluta en hann fraus hreinlega í þeim fjórða, aðeins þrjú stig komin á töfluna þegar rúmar fimm mínútur voru liðnar og staðan orðin 73-61. Það reyndist Grindvíkingum einfaldlega um megn þrátt fyrir að þeir næðu aðeins að klóra í bakkann undir lokin. Það var hreinlega eins og það væri lok á körfunni.

Barátta Valsmanna var sömuleiðis algjörlega til fyrirmyndar meðan Grindvíkingar voru meira að lulla í lága drifinu og þá þarf varla að spyrja að leikslokum.

Sanngjarn 79-72 sigur Vals niðurstaðan og einvígið orðið jafnt 1-1.

Þema leiksins

Þvæluþristar var þema leiksins í kvöld. Ótrúlega margir þristar sem rötuðu rétta leið upp úr algjörlega gölnum færum eða lengst utan af velli. 

Stjörnur og skúrkar

Kári Jónsson endaði stigahæstur Valsmanna með 16 stig eftir að hafa verið stigalaus í fyrri hálfleik. Callum Lawson skoraði sömuleiðis 16 stig.

Kristófer Acox skoraði 12 stig og bætti við 14 fráköstum, og gerði mjög vel að halda sér á vellinum eftir að hafa fengið sína þriðju villu. Hann var einnig með flestar stoðsendingar Valsmanna, fimm talsins.

Hjá Grindavík var DeAndre Kane stigahæstur með 22 stig og 16 stoðsendingar. Ólafur Ólafsson hrökk í gang undir lokin og skilaði 16 stigum í hús.

Kane skilaði sínuVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Dómarar

Kristinn Óskarsson, Gunnlaugur Briem og Jón Þór Eyþórsson dæmdu leikinn í kvöld og gerðu það ágætlega. Dæmdu grunsamlega oft skref, kannski innblásnir af umræðunni eftir leikinn í gær.

DómaratríóiðVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Stemming og umgjörð

Frábær umgjörð í Valsheimilinu í kvöld og stemmingin góð. Vel mætt í stúkuna og mikil gleði Valsmegin en hálf dapurt Grindavíkurmegin eftir því sem leið á leikinn.

Gleðin var við völd hjá Valsmönnum þegar leið á leikinnVísir/Guðmundur Þórlaugarson
Það dró heldur úr gleðinni hjá Grindvíkingum í stúkunni eftir því sem leið á leikinnVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Viðtöl

Finnur Freyr: „Hjálpar rosalega mikið þegar Kári Jónsson hittir í körfuna“

Finnur fer sáttur á koddann í kvöldVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, fannst varnarleikurinn skilja á milli í kvöld. Ekki í fyrsta sinn sem við heyrum hann tala um vörnina. Svo er það auðvitað Kári Jónsson.

„Varnarleikur í seinni hálfleik heilt yfir mjög góður. Sérstaklega í þriðja leikhluta og framan af fjórða. Það hjálpar svo rosalega mikið þegar Kári Jónsson hittir í körfuna.“

„Mér fannst við vera í sama varnarbullinu og við vorum í leiknum á undan. Slakir varnarlega í fyrri hálfleik og ekki að framkvæma vel það sem við erum búnir að vera að plana og æfa. Allt annað uppi á teningnum í seinni hálfleik.“

Finnur var afar sáttur með innkomu manna af bekknum í fjarveru meiðsla lykilmanna.

„Bara vel miðað við að við vinnum þennan leik. Frábær innkoma bæði hjá Hjálmari og Igor, höfðu báðir bara stór áhrif á leikinn. Virkilega stoltur af karakternum.“

Það mætti hreinlega allt annað Valslið til leiks í seinni hálfleik en Valsmenn hafa oft verið í basli í þriðja leikhluta í vetur.

„Við erum meðvitaðir um það að við erum búnir að vera hræðilegir í byrjun þriðja leikhluta í úrslitakeppninni og eiginlega í vetur bara. Þjöppuðum okkur saman og fórum yfir hvað við ætluðum að gera betur og leggja áherslu á það. Svo bara finnum við einhverja möguleika hér og þar, stóru skotin hér og þar eins og þarf til að vinna í úrslitakeppninni. En þetta er svo langur leikur að maður man ekki svo mikið. Bara fyrst og fremst ánægður með að ná að klára sigurinn.”

Valsmenn héldu DeAndre Kane í 22 stigum í kvöld miðað við 30 í síðasta leik en Finnur er meðvitaður um að það eru margir leikmenn í liði Grindavíkur sem þarf að hafa góðar gætur á.

„Það eru gríðarlegir hæfileikar í þessu Grindavíkurliði og margir mjög öflugir leikmenn. Mér fannst svona þeirra helstu hestar fá að leika alltof lausum hala í fyrri hálfleik en mér fannst við gera betur í seinni.“

Jóhann Þór: „Það er eins og við skynjum ekki mikilvægi leiksins“

Jóhann Þór þarf eitthvað að stilla sína menn betur afVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var ómyrkur í máli eftir leik og var virkilega óánægður með hugarfar sinna manna.

„Erfitt að segja svona strax eftir leik en þá langaði bara meira í þetta en okkar. Allur bara vilji og kraftur Valsaranna, við einhvern veginn ströggluðum með það. Vorum stífir sóknarlega. Þeir náttúrulega þétta teiginn vel og við hittum illa í gegnum allan leikinn þó það hafi komið einhverjir þristar þarna í fjórða leikhluta. Þetta hefur ekkert með það að gera hvað þú ert góður í körfubolta. Við erum einhvern veginn bara ekki nógu ákveðnir í öllu sem við erum að gera. Það er fúlt sko.“

Ólafur Ólafsson kom inn í byrjunarlið Grindavíkur í kvöld en það var tilraun sem gekk ekki upp að sögn Jóhanns.

„Við vildum nýta okkur kannski möguleikann að refsa á því að Kári væri að dekka hann, það voru einhverjar svona pælingar, sem gekk ekki upp. Kannski skoðum þetta aftur fyrir næsta leik.“

Þrátt fyrir jafnan leik í fyrri hálfleik var Jóhann ekki sáttur með frammistöðuna þar.

„Þetta var svo sem ekkert fallegur körfubolti, þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Eins og ég segi, við erum að gera einföld mistök varnarlega sem eru að búa til körfur fyrir þá. Við erum bara ekki nægjanlega einbeittir í því sem við erum að gera. Aftur, það er bara mjög fúlt. Við þurfum kannski að fara aðeins yfir þetta varnarlega og hvernig við getum aðeins hresst upp á þetta.“

Daniel Mortensen kom ekkert við sögu undir lok leiksins en hann er að glíma við meiðsli.

„Hann er eitthvað að kveinka sér í hælnum og gat í raun ekkert spilað meira. Við þurfum að skoða það.“

Jóhann gat ekki bent á eitthvað ákveðið augnablik þar sem Grindavík missti leikinn frá sér en talaði aftur um sömu hluti og í upphafi viðtals.

„Bara aftur, þegar þeir eru að grípa þessi augnablik til sín þá er það vegna þess að við erum að við erum bara að gera einföld, einföldustu hlutir í körfubolta erum við varnarlega allt allt alltof mörg mistök. Samskiptaleysi og allskonar. Það er eins og við skynjum ekki mikilvægi leiksins og bara allt sem við erum að gera. Valsararnir ganga bara á lagið, setja stór skot meðan við hittum ekki neitt og grípa augnablikið og gera bara vel í því.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira