Upp­gjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér odda­leik í Eyjum

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
673412702_10164088906612270_1340367876637136009_n

Haukar sigruðu ÍBV 26-23 í hörkuleik á Ásvöllum í dag. Staðan í einvíginu er því 2-2 og liðin mætast aftur næstkomandi þriðjudag í Vestmannaeyjum um sæti í úrslitunum.

Leikurinn byrjaði jafnt hjá liðunum en ÍBV voru fyrri til að komast í tveggja marka forystu. Um miðbik fyrri hálfleiks tóku ÍBV leikhlé sem heppnaðist þó ekki betur en að Haukar tóku forystuna og komust mest í þriggja marka forystu. ÍBV tókst að minnka bilið og munaði einu marki á liðunum þegar flautað var til hálfleiks.

Tapaðir boltar og stórkostlegar vörslur einkenndu fyrri hálfleikinn en Sara Sif Helgadóttir var með þrettán varin skot og Amalie Froland með átta.

Síðari hálfleikur byrjaði jafnt líkt og sá fyrri en fljótlega tóku Haukakonur forystuna. Sara Sif átti frábæran síðari hálfleik og átti hún stóran þátt í þessum frábæra sigri Hauka sem tryggðu sér oddaleik.

Lokaniðurstaða 26-23 fyrir Haukum og mætast liðin aftur á þriðjudaginn í Vestmannaeyjum.

Stjörnur og skúrkar

Sara Sif Helgadóttir er maður leiksins það fór ekki framhjá neinum. 49% markvarsla má teljast ansi gott.

Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst hjá Haukum með sex mörk en Inga Dís Jóhannsdóttir kom þar næst með fimm mörk.

Hjá gestunum í ÍBV var Birna Berg Haraldsdóttir markahæst með fimm mörk.

Stemning og umgjörð

Fín mæting og stemning á Ásvöllum. Umgjörðin til fyrirmyndar eins og venjulega.

Dómarar

Fín dómgæsla að mínu mati enda með tvo reynslumikla dómara í dag.

Viðtöl

Stefán Arnarson: „Ég er lélegur spámaður“

Stefán er enginn spámaður.Vísir/Pawel Cieslikiewicz

„Fyrstu 15 mínúturnar vorum við að gera allt of mikið af mistökum, vorum með allt of marga tapaða bolta og vorum ekki að skjóta nægilega vel á markið,“ sagði Stefán Arnarson, þjálfari Hauka, eftir að liðið tryggði sér oddaleik í Eyjum í dag.

„Síðustu 45 voru bara nokkuð góðar og við spilum góðan varnarleik og skynsamlegan sóknarleik í seinni hálfleik og Sara var náttúrulega frábær. Þú verður náttúrulega að vinna leiki með svona markvörslu.“

Hvernig blasir oddaleikurinn við þér?

„Það er vonlaust að spá af því ég er lélegur spámaður. Þetta eru búnir að vera jafnir leikir, en oft í úrslitakeppninni getur þetta alveg sveiflast. Þannig að það er vonlaust að segja hvernig þessi leikur er, en við ætlum að vinna hann.“

Hefurðu einhverjar áhyggjur að leikurinn fari fram á útivelli?

„Það er alltaf gaman að spila þar sem er fullt af fólki og hér var gaman að spila í dag og það er alltaf gaman að spila í Eyjum. Við bara hlökkum til.“

Sara Sif Helgadóttir: „Þá held ég að við förum hel­víti langt með þetta“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira