Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 13. apríl 2026 18:15 Gunnar Róbertsson átti nokkur góð mörk í dag. Vilhelm Gunnarsson Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí eftir 38-34 sigur á Hlíðarenda í dag. Sigurinn var sá þriðji í einvíginu og tryggði Valur sér því sæti í úrslitaeinvíginu. Leikurinn byrjaði af krafti og leiddu KA menn með fjórum mörkum gegn einu eftir fimm mínútna leik. Valsmönnum tókst þá að skora fjögur mörk í röð gegn engu og tóku forystuna. Jafn kafli tók þá við þar sem liðin skiptust á að taka forystuna. Öflugur kafli hjá Valsmönnum kom þá þegar Björgvin Páll Gústavsson varði vel og tókst Valsmönnum að ná forystunni aftur. 19-15 og þannig stóðu leikar í hálfleik. Valsmenn juku forystu sína enn frekar í byrjun síðari hálfleiks og tókst að komast í sex marka forystu. KA menn gerðu vel og náðu að minnka muninn niður í tvö mörk. Það varði stutt en Valsmenn misstígu sig aldrei á meðan KA menn töpuðu boltanum og náðu ekki að nýta sóknirnar sínar. Valsmenn juku þá forskot sig enn og aftur og sigraði með fjórum mörkum 38-34. Atvik leiksins Verður að teljast í tvö skipti þegar KA menn reyndu að verjast mörkunum sem Björgvin Páll Gústavsson skoraði úr eigin teig. Allt reynt til þess að fara ekki í snemmbúið sumarfrí.Vilhelm Gunnarsson Stjörnur og skúrkar Þorgils Jón Svölu Baldursson var öflugur á línunni hjá Valsmönnum og skoraði sjö mörk. Þorgils öflugur í kvöld.Vilhelm Gunnarsson Andri Finnsson var þá með átta mörk og Arnór Snær Gíslason með sex mörk. Bjarni Ófeigur Valdimarsson var þá atkvæðamestur hjá gestunum með tíu mörk. Stemning og umgjörð Það var stemning Valsmegin í stúkunni allavega. Endastöðin hjá KA-mönnum.Vilhelm Gunnarsson Dómarar Það var kvartað og kveinað yfir dómgæslunni í kvöld enda mikið undir. Heilt yfir fín dómgæsla og fá góða sjöu frá mér. Olís-deild karla Valur KA