Margt sem þarf að laga Valur Páll Eiríksson skrifar 11. apríl 2026 16:47 Elín Klara Þorkelsdóttir Vísir/Anton Brink Elín Klara Þorkelsdóttir segir sannarlega margt mega laga í leik íslenska kvennalandsliðsins eftir tap fyrir Færeyjum ytra í vikunni. Liðið á fyrir höndum úrslitaleik um EM-sæti við Portúgal að Ásvöllum á morgun.
Íslenska liðið átti ekki sinn besta dag þegar það sótti færeyska landsliðið heim til Þórshafnar á miðvikudagskvöldið var. Færeyjar unnu fimm marka sigur en stelpurnar okkar náðu aldrei að gera almennilegan leik úr verkefninu. Klippa: Elín Klara segir margt þurfa að laga „Þetta var bara ótrúlega svekkjandi. Við spiluðum ekki okkar leik, fylgdum ekki okkar kerfi og okkar gildum. Við erum búnar að skoða það og það þýðir ekki að dvelja of lengi við þennan leik,“ segir Elín Klara við Vísi og bætir við: „Við skiluðum okkur ekki nægilega vel heim. Varnarlega vorum við að missa þær allt of mikið inn í gegnum miðjuna og á línunni. Það var alltof mikið pláss á milli okkar og við þurfum að vera þéttari. Vörn og hlaupin heim voru mjög stór faktor.“ Elín Klara hefur verið prímusmótor í sóknarleik Íslands síðustu misseri en komst ekki á blað í Færeyjum í vikunni. Það hefur ekki gerst í háa herrans tíð að hún skori ekki í landsleik, og það því eðlilega vonbrigði. „Jú, klárlega. En þrátt fyrir að sóknin hafi ekki verið spes náum við að skora 30 mörk. Svona ef við tökum eitthvað jákvætt úr þessu,“ segir Elín Klara. Allt annað verkefni bíður hins vegar á morgun, gegn Portúgal. „Það er ólíkt færeyska liðinu og við byrjum strax í dag (í gær) að undirbúa okkur fyrir það. Við erum mjög spenntar og það er bara að ná fram brosinu aftur og næsti leikur. Við erum að fara í ótrúlega mikilvægan leik,“ „Þær eru ótrúlega sterkar líkamlega. Það er mjög mikilvægt að við þéttum pakkann varnarlega og náum upp þessari geðveiki og liðsheild sem við stöndum fyrir. Þá er allt opið í þessu,“ segir Elín Klara. Leikurinn er úrslitaleikur um þriðja sæti riðsilsins sem veitir að líkindum sæti á EM. Tapist leikurinn er sá draumur úr sögunni. Það kemur því aðeins eitt til greina á morgun. „Við erum virkilega spenntar að koma heim og spila fyrir framan okkar fólk. Það er það skemmtilegasta sem maður gerir.“ Viðtalið má sjá í spilaranum.
Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2026 Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira