Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 35-30 | Valtað yfir stelpurnar okkar í Þórshöfn Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 8. apríl 2026 17:17 Elín Klara fann sig ekki í dag. Alex Gottschalk/DeFodi Images/DeFodi via Getty Images Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði gegn Færeyjum 35-30 í undankeppni HM í kvöld. Íslenska liðið byrjaði leikinn af krafti og um miðbik fyrri hálfleiks leiddi liðið með tveimur mörkum. Færeyjar komu þá sterkar til baka og skoruðu fjögur mörk í röð. Færeyjar leiddu þá með tveimur mörkum eftir sterkan lokakafla fyrri hálfleiks, 14-12 og þannig stóðu leikar í hálfleik. Heimakonur tóku öll völd í seinni hálfleik og juku forskot sitt jafnt og þétt. Sóknarleikur Íslands hrundi með mörgum töpuðum boltum og erfiðum sóknum. Færeyjingar refsuðu með hraðaupphlaupum og góðri sókn á meðan vörn Íslands var eins og gat á sigti. Þegar mest á reyndi munaði átta mörkum á liðunum og íslenska liðið með engin svör. Færeyjar kláruðu svo leikinn af öryggi með fimm marka mun, 35-30. Íslenska liðið er í erfiðri stöðu og þarf að treysta því að Svartfjallaland sigri Portúgal á morgun. Ísland því enn á botni riðilsins með tvö stig. Atvik leiksins Ekkert sérstakt atvik en maður beið alltaf eftir því að stelpurnar myndu hrökkva í gang en í staðinn hrundi sóknar- og varnarleikurinn. Stjörnur og skúrkar Pernille Brandenborg var frábær í liði Færeyja með ellefu mörk. Jana Mittún kom þar næst á eftir með sjö mörk. Sandra Erlingsdóttir spilaði lítið en skoraði úr sex af sjö vítum og var markahæst hjá íslenska liðinu. Stemning og umgjörð Það virtist vera mögnuð stemning í höllinni í Færeyjum. Víkingaklappið var tekið reglulega til þess að strá salti í sárin. Dómarar Franskt dómaratvíeyki í kvöld og ekkert hægt að setja út á dómgæsluna. Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2026