Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar 10. apríl 2026 16:00 Ég bý í Grindavík og ætla mér að halda áfram að búa þar. Þó ég sé einnig með heimili í Kópavogi, þá langar mig og börnunum mínum að geta farið aftur heim og hafið skólagöngu þar að nýju eftir sumarið. Ég upplifi mig örugga í Grindavík og vil fá að taka þá ákvörðun sjálf fyrir mína fjölskyldu. Það sem ég á erfitt með að skilja er hvers vegna ákveðnar staðreyndir fá ekki vægi í umræðunni. Til dæmis hefur landris hætt um miðjan mars, en það virðist lítið eða ekkert rætt. Af hverju er það ekki tekið með í heildarmatið? Af hverju breytist ekki áhættumatið þegar búið er að gera við og laga sprungur og aðra innviði? Af hverju fáum við ekki að sjá allar hliðar málsins metnar á jafnræðisgrundvelli? Einnig velti ég því fyrir mér af hverju ekki er hlustað á reynda sérfræðinga sem hafa unnið með náttúruvá og áhættumat í áratugi, eins og Sólveig Þorvaldsdóttir, doktor í jarðskjálftaverkfræði og fyrrverandi forstjóra Almannavarna ríkisins, Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðing eða Jón Haukur Steingrímsson jarðverkfræðing. Sá síðastnefndi hefur unnið í Grindavík alveg frá fyrsta gosi og þekkir aðstæður af eigin raun, ekki bara úr skýrslum sem eru unnar fjarri vettvangi. Þetta eru einstaklingar með mikla þekkingu og reynslu sem byggja sitt mat á gögnum og faglegri greiningu. Af hverju fá þeirra sjónarmið ekki meira vægi í umræðunni? Af hverju er verið að taka ákvarðanir fyrir okkur í stað þess að leyfa okkur að bera ábyrgð á eigin lífi? Við sem búum hér þekkjum aðstæður, fylgjumst með og tökum upplýstar ákvarðanir. Það er erfitt að upplifa að rödd okkar skipti ekki máli. Ég hef einnig upplifað að aðgerðir stjórnvalda, sem áttu að styðja við okkur, hafi í raun aukið á álagið. Óvissan, biðin, skortur á skýrum svörum og þögn hafa haft veruleg áhrif. Við getum lifað með eldgosi, en að geta ekki treyst því að hlustað sé á okkur og að allir hagsmunir séu hafðir að leiðarljósi er mun erfiðara að sætta sig við. Maður spyr sig líka: hvaða hagsmunir eru raunverulega í spilinu? Hverjir hafa haft ávinning af þessu ástandi og hvaða hvatar eru til staðar? Það er eðlilegt að spyrja þessara spurninga. Ef niðurstaðan væri sú að hættan hafi minnkað og aðstæður batnað, hverjir tapa þá á því? Þetta er umræðu sem má og á að taka af fullri alvöru. Mig langar því að bjóða þeim sem vilja að kynna sér aðstæður af eigin raun. Þið eruð hjartanlega velkomin í kaffi til mín í Borgarhraun 2 í Grindavík Guesthouse. Ég er nýbúin að stofna mitt eigið fyrirtæki Kvika Travel og verð með ferðir tvisvar í viku. Þið Íslendingar sem viljið koma næstu tvær vikurnar fáið það frítt, my treat. Förum saman í göngutúr um bæinn, skoðum hvað hefur verið gert og hvað er í gangi. Ég býð ykkur að koma með mér, fara yfir stöðuna og heyra mína upplifun og sýn á framtíð Grindavíkur. Ég trúi á gagnrýna hugsun. Að spyrja spurninga, skoða gögnin og velta fyrir sér hvort allar hliðar séu teknar með. Það er það sem ég hvet alla til að gera áður en þeir mynda sér skoðun. Ef, eftir að hafa kynnt ykkur málið af heildarsýn og farið yfir gögnin, þið teljið að ekki sé rétt að snúa aftur, þá mun ég virða þá niðurstöðu. En ég tel mikilvægt að sú skoðun byggi á raunverulegum upplýsingum, ekki eingöngu á því sem birtist á samfélagsmiðlum eða í einhliða umfjöllun Grindavík á skilið sanngjarna og heiðarlega umræðu. Við sem búum hér eigum skilið að fá að taka þátt í ákvörðunum um okkar eigið líf og okkar eigin framtíð. Höfundur er eigandi Grindavík Guesthouse/ Kvika travel. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Grindavík Mest lesið Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar