Uppgjörið:Keflavík - Valur 82-87| Vals­menn jafna ein­vígið og hrifsa til baka heimavöllinn

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Valsmenn jöfnuðu einvígið í kvöld.
Valsmenn jöfnuðu einvígið í kvöld.

Keflavík tók á móti Val í leik tvö í 8-liða úrslitum Bónus deild karla í kvöld. Keflavík leiddi einvígið fyrir leikinn í kvöld og því ljóst að það yrði hart barist í Blue höllinni.

Valsmenn mættu einbeittir til leiks og jöfnuðu einvígið með fimm stiga sigri 82-87.

Leikurinn hófst með látum þar sem fyrstu þrjár körfunar komu fyrir aftan þriggja stiga línuna. Bæði lið voru að hitta vel og var leikurinn stórskemmtilegur áhorfs.

Eftir fyrsta leikhluta voru það gestirnir frá Hlíðarenda sem voru ögn sterkari og leiddu með sjö stigum 26-33.

Það var ekki alveg sama sóknarflæði sem fylgdi liðunum inn í annan leikhluta og létu fyrstu stig leikhlutans aðeins bíða eftir sér og komu þau eftir rúmlega tvær mínútur þegar Mirza Bulic skar á hnútinn fyrir Keflavík.

Það var ekki mikið skorað yfir leikhlutann en það kom smá kippur undir lok leikhlutans. Valsmenn fóru með níu stiga forystu inn í hálfleikinn 39-48.

Heimamenn mættur grimmir til leiks út í seinni hálfleikinn og byrjuðu að saxa á forskot Valsmanna jafnt og þétt.

Keflavík náði að minnka muninn niður í eitt stig áður en Valsmenn tóku leikhlé til þess að ráða ráðum sínum. Þetta leikhlé virðist hafa kveikt smá eldmóð í gestunum sem náðu vopnum sínum aftur og leiddi með fimm stigum eftir þriðja leikhluta 63-68.

Valsmenn héldu sig fyrir framan Keflvíkinga í fjórða leikhluta sem fengu skotin til að skjóta sig inn í leikinn en þau voru bara ekki að detta fyrir heimamenn.

Þegar augnablikið var að færast í átt Keflvíkinga tóku Valsmenn leikhlé til að ráða ráðum sínum og mættu svo út og drápu augnablikið. Keflavík fékk tækifærin til að skjóta sig inn í leikinn aftur en Valsliðið stóð vaktina og fór að lokum með fimm stiga sigur 82-87 og sótti heimavöllinn aftur.

Atvik leiksins 

Augnablikið er með Keflavík í fjórða leikhluta þegar rétt um fimm mínútur eru eftir. Valur tekur leikhlé þar sem þeir hægja á Keflavíkingum og setja svo stór skot strax eftir leikhléið.

Stjörnur og skúrkar

Keyshawn Woods og Callum Lawson voru burðarrásir Vals sóknarlega í kvöld. Woods var stigahæstur með 21 stig en Lawson fylgdi fast á eftir með 20 stig. Kári Jónsson setti svo líka stór skot undir lok leiks svo hann fær kall hérna líka.

Hjá Keflavík var Remy Martin stigahæstur með 20 stig en manni fannst hann samt eiga meira inni eins og allt Keflavíkurliðið.

Dómararnir

Bjarki Þór, Davíð Kristján og Jakob Árni sáu um flautuna í kvöld. Þeir settu fína línu í upphafi leiks en stóðu svo ekki alveg með henni eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn og byrjuðu að flauta ódýrar villur. Það lagaðist þó í seinni hálfleik fannst mér og varð mun betra.

Stemingin og umgjörð

Keflavík er mikill körfuboltabær og þegar úrslitakeppnin gengur í garð er spennan og stemningin eðli málsins samkvæmt gríðarlega mikil. Það var þétt setið og stemningin eftir því. Þetta er skemmtilegasti tími ársins, það er bara þannig.

Viðtöl

Finnur Freyr Stefánsson þjálfari Vals.Vísir/Anton Brink

„Munurinn er kannski bara sá að við höldum sjó í lokin“

„Mér fannst eiginlega nánast bara sama uppskrift. Við erum yfir í fyrri hálfleik, þeir koma með áhlaup í þriðja og við komumst svo aftur þarna yfir“ sagði Finnur Freyr Stefánsson þjálfari Vals í samtali við Andra Már Eggertsson eftir leik.

„Munurinn er kannski bara sá að við höldum sjó í lokin og eigum síðasta áhlaupið“

Valsmenn spiluðu virkilega vel í fyrri hálfleik og Callum Lawson var að setja góð skot fyrir Val.

„Keyshawn [Woods] var kannski aðeins lengur í gang en við kannski þurftum ekki á því að halda en þetta var bara hörku leikur og mikið af kerfum, erfiður leikur að dæma, hörku leikmenn og bara nánast sama uppskrift og í síðasta leik“

Keflavík komst í gott áhlaup og hótuðu endurkomu í leiknum en hvað var það sem gerðist?

„Þeir komu með ágætis lausn og gerðu vel. Það er mjög svipað því sem gerðist í leiknum á undan. Við vorum kannski aðeins lengi að bregðast við“ sagði Finnur Freyr Stefánsson.

Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari KeflavíkurPawel/Vísir

„Hefðum átt að gera betur sóknarlega og betri ákvarðanir oft á tíðum“

„Þeir hittu mjög vel og sérstaklega í fyrri hálfleik sem lagði grunnin af þessu forskoti“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavíkur í viðtali við Andra Már Eggertsson eftir leik í kvöld.

„Mér leið ekkert alltaf illa í hálfleik, ég hélt mér myndi líða verr eftir að þeir skora tæplega 50 stig þarna. Við náðum aðeins að þétta raðirnar í öðrum leikhluta og svo höldum við þeim í 39 stigum í seinni hálfleik“

„Ég held að við hefðum átt að gera betur sóknarlega og betri ákvarðanir oft á tíðum þannig það var miður“

Keflavík náði flottu áhlaupi í þriðja leikhluta og hótaði endurkomu.

„Sama uppi á teningnum í seinni hálfleik og í síðasta leik þar sem við vorum með meira orkustig og vorum að gera hlutina almennilega“

„Svo eru bara einstaklingsgæði í hinu liðinu sem að var að gera okkur erfitt fyrir. Sérstaklega þegar þeir ná þessum körfum hjá [Keyshawn] Woods, hann er bara góður í þessu“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira