Vann að tveimur verðlaunabókum en fékk ekki boð á hátíðina Magnús Jochum Pálsson skrifar 25. mars 2026 16:39 Egill Viðarsson tók upp og framleiddi átta hljóðbækur sem unnu til verðlauna á Íslensku hljóðbókaverðlaununum en fékk samt ekki boð. Hann segir nafnið skjóta skökku við þegar hluti bransans er útilokaður. Upptökustjórinn Egill Viðarsson vann að átta bókum sem voru tilnefndar til Íslensku hljóðbókaverðlauna Storytel en tvær þeirra unnu til verðlauna. Hann fékk samt ekki boð á verðlaunahátíðina vegna meints plássleysis og gagnrýnir þá framkomu. Leiðinlegt sé að fá ekki að vera með á stærstu uppskeruhátíð kollega sinna og veltir fyrir sér hvort stofna þurfi ný hljóðbókaverðlaun.
Íslensku hljóðbókaverðlaunin, eða Storytel Awards eins og fyrirtækið kallar þau, voru veitt þriðjudaginn 17. mars síðastliðinn. Þar voru veitt verðlaun í fimm flokkum fyrir bestu hljóðbækur ársins auk þess sem Bjarni Fritzson hlaut heiðursverðlaun hátíðarinnar. Fjöldi rithöfunda og leikara voru mættir á hátíðinna en einn þeirra sem fékk ekki boð var Egill Viðarsson sem rekur Stúdíó Harm þar sem fjöldi hljóðbóka verður til. Hann vakti athygli á fjarveru sinni með Fésbókarfærslu á mánudaginn. „Íslensku hljóðbókaverðlaunin voru í síðustu viku, ég tók upp og fullvann átta af þeim 25 bókum sem tilnefndar voru, og tvær þeirra unnu jafnframt! Til hamingju Álfrún, Embla og Mikael, þetta gleður mig mjög!“ skrifaði hann í færslunni. Egill er sjálftitlaður hljóðbókakúrerki og hefur framleitt, klippt og fullunnið fjölda slíkra bóka. „Þau hjá Storytel sáu ekki ástæðu til að bjóða mér í kollegafögnuðinn, meiraðsegja eftir að ég pikkaði í þau, en hvað veit ég svosum, ég er bara einhver maður í dýflissu...“ „Ég hef samt ákveðið að halda bara mín eigin verðlaun á næsta ári! „Hin íslenzku hljóðbókaverðlaun“ á Rauða ljóninu! Ykkur er öllum boðið!“ skrifaði hann svo að lokum og uppskar fjölda kveðja frá kollegum, rithöfundum og samstarfsfélögum. „Var einmitt að undrast um þig!! Til hamingju með alla þína vönduðu vinnu! Væri gaman að koma aftur til þín fljótlega 💕“ skrifaði leikkonan Aníta Briem. „Hlakka til að mæta á Rauða ljónið á næsta ári! Það er alltaf jafn frábært að vinna með þér Egill. Takk fyrir allt okkar samstarf hingað til og hlakka til að taka upp fleiri bækur með þér. Auðvitað á að bjóða öllum sem að vinnunni koma á svona uppskeruhátíð, þetta er samstarf!“ skrifaði Álfrun Helga Örnolfsdóttir sem las verðlaunabókina Fiðrildaherbergið eftir Lucindu O'Riley. Leiðinlegt að missa af einu uppskeruhátíð bransans „Mér finnst þetta dálítið fyndið, maður hefur farið af og til en ég fékk ekki boð núna. Það er allt í góðu að Storytel séu með sín verðlaun en það stingur í augun að þetta séu Íslensku hljóðbókaverðlaunin því það eru fleiri sem koma að þessu,“ sagði Egill þegar blaðamaður hafði samband til að forvitnast um málið. Egill hafði sent fyrirspurn á forsvarsaðila Storytel til að spyrja út í verðlaunin og fékk þau svör um væri að ræða uppskeruhátíð höfunda, þýðenda og nánustu samstarfsaðila Storytel. „Það er allt í góðu. En þau slá þessu upp sem Íslensku hljóðbókaverðlaunin og hafa verið gagnrýnd fyrir einokunartilburði og þetta er annað dæmi um það,“ segir hann. „Ég er einn í stórri keðju og þarf ekkert kredit fyrir eitt né neitt en þetta uppskeruhátíð kollega.“ Nafnið skjóti skökku við Hljóðbókaveitan Storytel er risi í íslenska hljóðbókabransanum og hefur drottnað yfir honum frá því veitan kom fyrst til sögunnar. Nú grillir þó undir samkeppni við Storytel með tilkomu hljóðbókaveitunnar Sagnalands sem býður einungis upp á íslenskar hljóðbækur. „Ég vinn ekki beint með Storytel heldur íslenskum bókaforlögum. Þetta eru örfáar hræður sem vinna í þessum bransa sem eru alveg óháð Storytel á landinu þó það séu náttúrulega fjölmargir sem koma að bókunum,“ segir hann. Skýringin sem Egill fékk á því af hverju honum var ekki boðið í ár hafa verið plássleysi vegna takmarkaðs sætapláss. „Ég ætti ekkert erindi á Storytel-verðlaunin þannig séð því ég er alveg óháður þeim en manni finnst það skjóta skökku við að þetta heiti Íslensku hljóðbókaverðlaunin í því ljósi,“ segir hann. Rithöfundurinn Embla Bachmann og leikarinn Mikael Kaaber tóku á móti verðlaunum í barna- og unglingabókaflokki fyrir Kærókeppnina sem Egill framleiddi. „Ég er í raun bara prentsmiðja fyrir hljóðbækur og á ekkert tilkall til bókanna en maður er samt partur af þessu. Þess vegna var ég að djóka með að stofna eigin verðlaun. Það tóku allir voða vel í það, þannig hver veit,“ segir Egill um nýja verðlaunahátíð á Rauða ljóninu. Þó færslan hafi vakið viðbrögð hjá samstarfsfélögum Egils segist hann ekki hafa fengið nein viðbrögð frá Storytel. „Það er allt í góðu en maður er að brasa í þessu allan ársins hring og þetta er eini möguleikinn á uppskeruhátíð og að hitta kollega. Það sem ég sendi á þau líka væri að þetta væri mikilvægur vettvangur fyrir mig upp á tengslanetið og til að fylgjast með.“
Bókmenntir Storytel Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Fleiri fréttir Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira