Þörf á að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst Lovísa Arnardóttir skrifar 25. mars 2026 08:41 Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, er formaður fjármálastöðugleikanefndar. Vísir/Vilhelm Í nýrri yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar segir að þörf sé á að koma á kortaviðskiptum á Íslandi án nettengingar sem fyrst. Þar segir einnig að fjármálakerfið standi traustum fótum og sé vel í stakk búið að mæta ófyrirséðum áföllum. Í yfirlýsingunni segir enn fremur að stríðið við Persaflóa hafi leitt til framboðstruflana og verðhækkana og óvissa sé meiri í alþjóðamálum. „
Þjóðarbúið stendur að mörgu leyti vel til þess að mæta þessum áskorunum, ekki síst vegna þétts taumhalds eiginfjárkrafna á viðskiptabanka og lánþegaskilyrða við íbúðakaup. Skuldahlutföll heimila og fyrirtækja eru lág og hafa farið lækkandi, vanskil eru lítil og aðrir greiðsluerfiðleikar virðast óverulegir. Skuldastaða ríkissjóðs er hófleg, ytri staða þjóðarbúsins sterk og gjaldeyrisforði Seðlabankans rúmur. Þá hefur verið ágætt jafnvægi í viðskiptum við útlönd sem endurspeglast í stöðugleika á gjaldeyrismarkaði. Mikilvægt er að viðhalda viðnámsþrótti þjóðarbúsins gagnvart óvissu í alþjóðamálum,“ segir í yfirlýsingunni. Fulltrúar nefndarinnar, þeir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika og Flóki Halldórsson framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabankans, munu gera grein fyrir yfirlýsingunni á fundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með í spilaranum að neðan. Lengur að selja og lánveitendur vakandi Í yfirlýsingunni segir að húsnæðisverð sé enn hátt en hafi lækkað að raunvirði. Íbúðum á sölu hafi fjölgað og lengri tíma tekur að selja eignir en áður, ekki síst nýbyggingar. „Skuldir byggingageirans við bankakerfið hafa vaxið síðustu misseri en vanskil eru enn lítil. Hátt vaxtastig og langur sölutími gera það að verkum að lánveitendur þurfa að vera vakandi fyrir aukinni áhættu í geiranum,“ segir í yfirlýsingunni. Þar leggur nefndin áherslu á að auka þurfi viðnámsþrótt kerfislega mikilvægra innviða í ljósi vaxandi spennu á alþjóðavettvangi og mögulegrar fjölþáttaógnar. „Mikilvægt er að auka fjölbreytni í greiðsluleiðum hér á landi og að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst,“ segir í yfirlýsingunni. Að lokum kemur fram að nefndin hafi ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5 prósentum í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. „Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti,“ segir að lokum. Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands var birt í morgun og sömuleiðis ritið Fjármálastöðugleiki á vef bankans. Óvissa í haust Stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósent í síðustu viku og standa nú í 7,5 prósentum. Á sama tíma stendur verðbólga í 5,2 prósentum. Ýmsir sérfræðingar hafa spáð því að meiri hækkun sé í vændum. Seðlabankastjóri sagði eftir að hann tilkynnti um hækkunina að það myndi draga úr óvissu og slá á hækkun verðbólguvæntinga ef aðilar vinnumarkaðarins gæfu út að það yrðu ekki átök í haust þegar kjarasamningar gætu losnað. Heimild er til að slíta þeim í haust standist ekki verðbólgumarkmið. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hefur gefið út að stéttarfélagið sé að undirbúa kjaraviðræður. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur á sama tíma sagt að hún sé reiðubúin í slík átök en hún myndi helst ekki kjósa að yrði af þeim.
Seðlabankinn Efnahagsmál Kjaramál Fjármál heimilisins Verslun Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Greiðslumiðlun Húsnæðismál Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira