Lykilmenn lýsa yfir stuðningi við Alfreð Aron Guðmundsson skrifar 24. mars 2026 11:00 Alfreð Gíslason og Juri Knorr hafa unnið til verðlauna saman hjá þýska landsliðinu. Getty/Sina Schuldt Lykilmenn í þýska karlalandsliðinu í handbolta hafa lýst yfir stuðningi við landsliðsþjálfarann Alfreð Gíslason nú þegar dregur nær lokum hans núgildandi samnings við þýska handknattleikssambandsins.
Þýska landsliðið vann til silfurverðlauna á Evrópumótinu í upphafi þessa árs og voru það önnur verðlaunin sem liðið vinnur til undir stjórn Alfreðs. Núgildandi samningur Íslendingsins við þýska handknattleikssambandið rennur út eftir komandi Heimsmeistaramót í upphafi næsta árs sem fer einmitt fram í Þýskalandi. Nú er nýafstaðið landsliðsverkefni þar sem að þýska landsliðið spilaði tvo æfingarleiki gegn Egyptum og vann báða fyrir það verkefni var Alfreð spurður út í framtíð sína í starfi. „Ég hef aldrei farið leynt með það að ég vilji ekki hætta í handbolta strax eftir heimsmeistaramótið og myndi gjarnan vilja halda áfram að vinna með þessu liði,“ sagði Alfreð og varpaði boltanum til forráðamanna þýska handknattleikssambandsins. Þakklátur fyrir Alfreð Eftir seinni leikinn gegn Egyptum voru lykilmenn þýska landsliðsins, Juri Knorr og Johannes Golla spurður út í stöðuna og mátti greina ánægju þeirra með samstarfið við Alfreð sem hefur verið landsliðsþjálfari Þýskalands frá árinu 2020. „Við sem lið erum að nálgast okkar besta stað,“ sagði fyrirliðinn Golla sem bætti við að andinn í liðinu væri góður, liðsheildin og sjálfstraustið mikið. „Við erum að reyna nýta tíma okkur með Alfreð til hins ítrasta. Halda áfram að feta þann sigursæla stíg sem við höfum verið á saman eins lengi og mögulegt er, með eins mörgum sigrum og hægt er að ná.“ Juri Knorr var á svipuðum nótum en hrósaði Alfreð í hástert. „Ég hef bara starfað með Alfreð í landsliðinu og ég er mjög þakklátur fyrir allt það sem hann hefur gert mér kleift að afreka. Ég vonast til þess að við höldum áfram að starfa saman,“ sagði Knorr sem bætti við að leikmenn landsliðsins væru ekki að velta sér mikið upp úr stöðunni.
Handbolti HM karla í handbolta 2027 Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Fleiri fréttir Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Haukar - Valur 28-24 | Stórleikur Jóhönnu og Haukar með fullt hús stiga 33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba ÍR vann öruggan sigur og ÍBV tók Selfoss Fram og Stjarnan unnu bæði Þorsteinn Leó frá í 8-12 vikur Stórsigur hjá Magdeburg og svekkjandi jafntefli í Danmörku ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur Reynir Þór og félagar töpuðu með einu marki í mikilli dramatík Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ „Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Sjá meira
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“