Meistaraskjöldurinn kom óvænt í leitirnar Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. mars 2026 17:16 Mathias Gidsel og félagar fundu þýska meistaraskjöldinn. fuchse berlin Þýskalandsmeistarar Fuchse Berlin héldu að meistaraskjöldurinn sem þeir lyftu síðasta vor væri týndur og tröllum gefinn en hann fannst síðan óvænt í kjallaranum í höfuðstöðvum félagsins.
Berlínarbúar urðu fyrir miklu áfalli í nóvember síðastliðnum þegar brotist var inn í félagsheimili Fuchse Berlin. Þjófarnir voru sagðir hafa rænt skildinum fræga og einhverju reiðufé. Um var að ræða upprunalega eintakið af þýska meistaraskildinum og tjónið því töluvert, tilfinningalega og fjárhagslega. Talið var að skjöldurinn hefði verið bræddur og silfrið selt á svörtum markaði. Nú hefur hins vegar komið í ljós að skildinum var alls ekki stolið, eða allavega ekki almennilega. „Ég trúi þessu ekki enn þá, ef ég á að vera alveg hreinskilinn, en skjöldurinn er snúinn aftur. Við getum öll glaðst yfir því að haldið verði í hefðirnar og næstu meistarar muni lyfta sama skildi og allir aðrir Þýskalandsmeistarar í sögunni,“ sagði Bob Hanning, yfirmaður hjá Fuchse Berlin. „Nýlega fannst skjöldurinn í kjallara félagsins. Þjófarnir höfðu greinilega komið honum þar fyrir í felum og ætlað að stela honum síðar, en þegar upp komst um stuldinn hafa þeir hætt við plönin,“ sagði Hanning einnig. Ríkjandi meistararnir frá Berlín munu að öllum líkindum sjá skjöldinn fara til Magdeburg í vor en Íslendingaliðið er með sex stiga forystu á toppnum og hefur aðeins tapað einum leik.
Þýski handboltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira