Ósáttur við sóknina í fyrri hálfleik: „Fannst við of hægir og staðir“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. mars 2026 19:46 Snorri Steinn Guðjónsson kveðst hafa fengið fullt af svörum í leikjunum tveimur gegn Svíþjóð. vísir/ernir Snorri Steinn Guðjónsson sagði að íslenska liðinu hafi ekki tekist að tengja saman góða vörn og góða sókn í leikjunum tveimur gegn Svíþjóð.
Íslendingar töpuðu öðru sinni fyrir Svíum í dag, 27-30. Varnarleikur Íslands var heilt yfir þéttari í dag en í leiknum á fimmtudaginn. „Sérstaklega í fyrri hálfleik. Ég held að bæði lið hafi kannski að einhverju leyti verið óánægð með varnarleikinn í fyrri leiknum. Það var svolítill æfingaleikjabragur á því en það var annar taktur í því í dag. Við lögðum klárlega áherslu á það að vera betri og þéttari til baka og vorum það sérstaklega í fyrri hálfleik,“ sagði Snorri í samtali við Vísi í leikslok. „Við byrjuðum seinni hálfleikinn ekki alveg nægilega vel í vörn og ég hefði svo sem viljað að sóknarleikurinn myndi fylgjast meira með. Við fórum líka með of mikið af færum og hann [Mikael] Appelgren varði full mikið fyrir minn smekk í báðum leikjunum.“ En fannst Snorra íslenska liðið fá þau færi sem það vildi í sókninni? „Mér fannst við ekki nægilega góðir í sókninni í fyrri hálfleik. Mér fannst við of hægir og staðir og það vantaði herslumuninn þar, kannski svolítið eins og í varnarleiknum í fyrri leiknum. Ég hefði viljað sjá okkur betri þar. En við sköpuðum okkur samt alveg stöður sem ég var ekkert óánægður með og við höfum bara þurft að nýta þær betur,“ sagði Snorri. „Í báðum leikjunum náum við ekki upp kannski takti bæði varnar- og sóknarlega á sama tíma og það er svekkelsi.“ Snorri prófaði nokkra leikmenn vinstra megin fyrir utan í sókninni, meðal annars Hauk Þrastarson, Reyni Þór Stefánsson og Þorstein Leó Gunnarsson. „Það áttu allir sín augnablik. Ég tek bara næstu viku í að gera upp þessa leiki og vikuna í heild sinni. Það er fullt sem ég sá í þessari viku og fullt sem við tökum með okkur og getum byggt á.“ Snorri fer ekkert í grafgötur með að hann vildi fá allavega einn sigur í þessu verkefni. „Ég vil bara vinna. Það er svekkjandi að tapa leikjum. En ég er ekkert ósáttur með vikuna í heild sinni. Ég fékk fullt af svörum og margt sem ég bara vildi sjá og fékk alveg en maður vill alltaf vinna,“ sagði landsliðsþjálfarinn að lokum.
Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira