Upp­gjörið: Ís­land - Sví­þjóð 27-30 | Gamlir draugar létu á sér kræla

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viggó Kristjánsson var markahæstur á vellinum með sjö mörk.
Viggó Kristjánsson var markahæstur á vellinum með sjö mörk. vísir/ernir

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði í annað sinn fyrir því sænska á þremur dögum þegar liðin mættust í Kaplakrika. Lokatölur 27-30, Svíþjóð í vil.

Eins og í leiknum á Hlíðarenda á fimmtudaginn og oft áður í leikjum þessara þjóða reyndist sænskur markvörður íslenska liðinu erfiður. Mikael Appelgren varði tólf skot (46 prósent) í seinni hálfleik í leiknum fyrir tveimur dögum. Í dag spilaði hann allan leikinn og varði hvorki fleiri né færri en 26 skot (52 prósent).

Markvarslan hjá Íslandi var mun betri en í síðasta leik en Viktor Gísli Hallgrímsson varði sextán skot (35 prósent). Björgvin Páll Gústavsson reyndi sig við eitt vítakast og varði það.

Viggó Kristjánsson var markahæstur í íslenska liðinu með sjö mörk en næstu menn, Orri Freyr Þorkelsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson, skoruðu þrjú mörk hver. Skotnýting Íslands var aðeins 53 prósent og sóknin gekk á köflum erfiðlega, sérstaklega í fyrri hálfleik.

Vörnin var betri en á fimmtudaginn en klikkaði of oft á lokakaflanum þegar hún þurfti að halda.

Elvar Örn Jónsson dró sóknarvagninn í upphafi seinni hálfleiks.vísir/ernir

Annar taktur var í leiknum en í viðureigninni á Hlíðarenda fyrir tveimur dögum. Varnirnar voru sterkari og minna skorað.

Appelgren byrjaði í sænska markinu og hélt uppteknum hætti frá því á fimmtudaginn. Hann var besti maður vallarins í fyrri hálfleik og varði þá fjórtán skot, eða 56 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig.

Sem betur var Viktor mun betri en í leiknum á fimmtudaginn og varði sjö skot í fyrri hálfleik (35 prósent). Íslenska vörnin var ágæt en Svíunum gekk full auðveldlega að finna opin færi á línunni. Það var gegnumgangandi allan leikinn. Línumaðurinn Felix Möller var markahæstur Svía með sex mörk úr sex skotum.

Reynir Þór Stefánsson skýtur að marki Svía.vísir/ernir

Teitur Örn Einarsson kom Íslendingum yfir, 7-6, þegar hann skoraði úr þröngu færi. Svíarnir bættu þá í, skoruðu næstu fjögur mörk og komust í 7-10.

Svíþjóð náði þriggja marka forskoti tvisvar til viðbótar í fyrri hálfleik en Gísli sá til þess að munurinn í hálfleik var tvö mörk, 11-13, þegar hann skoraði sitt fyrsta mark.

Elvar Örn Jónsson fór mikinn í sókninni í byrjun seinni hálfleiks, skoraði tvö mörk og fiskaði þrjú víti. Hann vantaði þó meiri hjálp.

Svíarnir voru alltaf fetinu framar og voru með góð tök á leiknum. Þeim gekk nokkuð vel að verjast árásum Gísla og fyrir utan framlag Elvars fengu Íslendingar lítið frá vinstri skyttunum. Haukur Þrastarson, Reynir Þór Stefánsson og Þorsteinn Leó Gunnarsson spiluðu allir í leiknum í dag og skoruðu samtals tvö mörk úr átta skotum. Oftsinnis hefur verið kallað eftir því að Haukur og Þorsteinn fái að spila meira með landsliðinu en þeir nýttu tækifærin sín í leikjunum tveimur gegn Svíþjóð illa.

Teitur Örn Einarsson skartaði þessu vígalega yfirvaraskeggi.vísir/ernir

Um miðjan seinni hálfleik náðu Svíar í fyrsta sinn fjögurra marka forskoti, 18-22. Íslendingar svöruðu með 6-2 kafla og jöfnuðu í 24-24.

Lengra komst íslenska liðið þó ekki. Vörnin gaf eftir á lokamínútunum og Appelgren varði í tvígang þegar Íslendingar gátu jafnað, fyrst dauðafæri frá Viggó og svo víti frá Orra.

Viggó minnkaði muninn í 27-28 en það reyndist síðasta mark Íslands í leiknum. Svíþjóð skoraði tvö síðustu mörkin og Apppelgren kórónaði stórleik sinn með því að verja lokaskot Íslands, frá Óðni Þór Ríkharðssyni. Lokatölur 27-30, Svíþjóð í vil.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira