Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Sindri Sverrisson skrifar 18. mars 2026 11:32 Sigvaldi Björn Guðjónsson er búinn að semja við Hannover Burgdorf. Hannover Burgdorf Sigvaldi Björn Guðjónsson hefur samið við þýska handknattleiksfélagið Hannover-Burgdorf og mun því spila í bestu landsdeild heims á næstu leiktíð, meðal annars til að styrkja stöðu sína í íslenska landsliðinu.
Samningur Sigvalda við þýska félagið er til þriggja ára. Sigvaldi hefur síðustu fjögur tímabil spilað með Kolstad í Noregi og verið þar fyrirliði í afar sigursælu liði. Félagið glímir hins vegar við mikil fjárhagsvandræði og hefur verið að missa sínar stærstu stjörnur. Sigvaldi bætist í þann hóp í sumar þegar hann gengur til liðs við Hannover-Burgdorf, þar sem fyrrverandi landsliðsmaðurinn Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari. Ljóst er að forráðamenn þýska félagsins sjá Sigvalda fyrir sér sem mikinn leiðtoga sem leysa mun af hólmi fyrirliðann Marius Steinhauser í hægra horninu en hann er á leið til Rhein-Neckar Löwen. Sýnt gæði sín í mörg ár „Sigvaldi styrkir okkur sem alþjóðlega reyndur hægri hornamaður sem hefur sýnt gæði sín stöðugt í mörg ár – sérstaklega í Meistaradeildinni,“ segir Sven-Sören Christophersen, yfirmaður íþróttamála hjá Hannover-Burgdorf. Bent er á það á vef félagsins að Sigvaldi hafi nú spilað sjö leiktíðir í Meistaradeild Evrópu og meðal annars náð í úrslitaleik keppninnar með Kielce þó hann hafi misst af þeim leik vegna meiðsla. Þá hafi Sigvaldi farið á mörg stórmót með Íslandi þó að hann hafi ekki verið valinn í EM-hópinn í janúar en þar spiluðu meiðsli inn í. Sigvaldi er staddur hér á landi enda í hópnum sem mætir Svíum í tveimur vináttulandsleikjum á morgun og laugardag. „Hann er ekki aðeins sannfærandi með því hve frábærlega hann klárar færin sín, af mikilli skilvirkni, heldur býr hann einnig yfir dýrmætum leiðtogahæfileikum. Ásamt Daniel Weber mun hann mynda öflugt tvíeyki í hægra horninu. Við erum sannfærðir um að með reynslu sinni og gæðum muni hann fljótt taka að sér burðarhlutverk í liðinu okkar,“ sagði Christophersen. Ætlað að leysa fyrirliðann af hólmi Þjálfarinn Juan Carlos Pastor er líka hæstánægður: „Ég er mjög ánægður með að Sigvaldi muni ganga til liðs við okkur næsta tímabil, þar sem hann hentar verkefninu okkar frábærlega. Við vorum að leita að reynslumiklum leikmanni sem gæti komið í staðinn fyrir núverandi fyrirliða okkar og sem hefur svipaða reynslu og hlutverk. Hann er áreiðanlegur markaskorari í sinni stöðu, er fær í vítaköstum og mjög hraður leikmaður.“
Landslið karla í handbolta Þýski handboltinn Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Fleiri fréttir Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sjá meira