Ég vil ekki kosningar um mögulega ESB umsókn í haust Gunnar Ármannsson skrifar 18. mars 2026 10:18 Fyrir þessa skoðun mína mega þeir sem vilja uppnefna mig sem part af skrýmsladeild, ég sé með fasískar eða kommúnískar skoðanir, ég sé sjálfskipaður sérfræðingur, ég sé einfeldningur, lýðskrumari, loddari, kverúlant eða Trumpisti. En það er ekki málefnalegt. Með þessari skoðun minni er ég ekki að vanvirða þjóðina og lýðræðið og í þessari skoðun minni felst ekki forræðishyggja. Og á endanum treysti ég fólkinu í landinu til að ákveða þetta. Ég er bara ekki sammála aðferðafræðinni sem á að bjóða uppá. Evrópusambandsaðild var ekki kosningamál fyrir síðustu kosningar nema hjá einum flokki. Sem fékk um 15% atkvæða. Við þessar aðstæður finnst mér fráleitt að fara í einhverjar Evrópusambandsviðræður. Málið myndi hins vegar horfa öðru vísi við ef Evrópusambandsaðild væri á dagskrá í aðdraganda kosninga. Þá geta þeir flokkar sem það vilja talað máli sínu um þá aðild og ef niðurstaða kosninga felur í sér að tveir eða fleiri flokkar sem vilja aðildarviðræður fá yfir 50% atkvæða og mynda stjórn þá þarf enga þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður á þeim tímapunkti. Þá hafa landsmenn í raun þegar kosið um að þeir vilji fara í viðræður. Í kjölfarið gætu þessir flokkar farið í viðræður og reynt að ná þeirri bestu niðurstöðu sem þeir treysta sér til. Að fenginni bestu mögulegu niðurstöðu liggur fyrir ”hvað er í pakkanum.” Þá er eðlilegt að setja slíka niðurstöðu í þjóðaratkvæðgreiðslu. Þá liggja allar upplýsingar fyrir og fólk getur myndað sér skoðun á grundvelli fyrirliggjandi staðreynda. Myndi þjóðin samþykkja aðild að Evrópusambandinu við þessar aðstæður er óumdeilt að það þarf að breyta stjórnarskránni. Þá gætu stjórnvöld lagt til þær breytingar sem þarf og samþykkt. Við þær aðstæður þarf samkvæmt stjórnskipun okkar að rjúfa þing og kjósa aftur til Alþingis. Ef þær kosningar myndu leiða til þess að flokkar sem eru samþykkir aðild að Evrópusambandinu ná meirihluta þá samþykkja þeir stjórnarskrárbreytingarnar aftur og þá er hægt að klára Evrópusambands inngönguna. Samkvæmt þessari aðferðafræði fær þjóðin að kjósa þrisvar. Það er alvöru lýðræðisveisla. Að mínu mati er þjóðaratkvæðagreiðsla þann 29. ágúst nk. álíka gagnleg og að láta áhangendur FH og Hauka kjósa um það hvort liðið á að vinna. Flestir eru fyrirfram búnir að móta sér afstöðu og þeir sem eru það ekki munu aldrei fá fullkomlega óbrenglaðar og sannar upplýsingar til að byggja afstöðu sína á. Hvort sem kosið verður í haust eða þeirri aðferðafræði verði beitt sem mér hugnast betur þá mun ég segja nei við Evrópusambandsaðild. Og þá skiptir í mínum huga ekki máli hvað verður í pakkanum. Ástæðan er sú að ég vil ekki afsala mér neinum hluta af sjálfstæði þjóðarinnar í hendur stofnana Evrópusambandsins. Orðræðan um ”fullveldisafsal” og ”sjálfstæðisafsal” er í raun að ákveðnu leyti villandi og virðist sem fólk leggi mismunandi skilning í þessi orð. En það liggur þó væntanlega fyrir að þjóð sem hefur engu sjálfstæði afsalað er 100% sjálfstæð? Og ef hún afsalar sér þó ekki væri nema 1%, eða litlum hluta án skilgreiningar, þá er hún ekki lengur 100% sjálfstæð. Og síðan er hægt að deila um það hversu miklu sjálfstæði er óhætt að afsala án þess að glata sjálfstæðinu. Engu eða kannski smá? Og hvað má þetta ”smá” vera mikið? Meira að segja Kolbrún Þórdís Reykjafjörð Gylfadóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, upplýsir um þetta í grein sinni í Morgunblaðinu síðasta sunnudag, sem margir mæra, m.a. höfundur Viðreisnar og fyrrum fjármálaráðherra, með því að segja: “Það er hins vegar hárrétt að í aðild fælist valdaframsal, sem stjórnarskrá okkar heimilar ekki.” Hagsæld Íslendinga hefur ekki falist í því að einangra sig frá öðrum þjóðum. Heldur þvert á móti með því að gera sig gildandi á alþjóðavettvangi með því að gera marga og víðtæka alþjóðasamninga um viðskipti og samstarf. Þar er EES samningurinn tvímælalaust sá stærsti og áhrifamesti. En að auki má nefna ótal samninga í gegnum EFTA við lönd í Evrópu, Ameríku, Asíu og Afríku. Sérsamninga við ESB, Kína, Færeyjar, Grænland og Bretland. TIFA samstarf við USA sem felur í sér sérstakan ramma fyrir samráð og samstarf í viðskiptum og fjárfestingum. Framangreinda samninga höfum við gert án þess að afsala okkur hluta af sjálfstæði okkar. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að halda áfram á sömu braut – án nokkurs sjálfstæðisafsals. Og það er strámennska að blanda Bjarti í Sumarhúsum inn í þessa umræðu. Hann vildi ekkert samstarf eða samvinnu. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Ármannsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar