Samræmd viðbrögð fullorðinna skipta öllu þegar barn verður fyrir ofbeldi Alfa Jóhannsdóttir, Bergdís Wilson og Linda Hrönn Ingadóttir skrifa 11. mars 2026 15:00 Öryggi barns getur oltið á einu samtali eða einu réttu viðbragði. Þegar barn verður fyrir ofbeldi skiptir því sköpum hvernig fullorðin bregðast við. Foreldrar og fagfólk þurfa að vita hvernig á að bregðast við og samræma viðbrögð, óháð því hvort málið kemur upp í skóla, frístund eða heima. Öryggi barna byggir á sameiginlegum verkfærum og samstilltum viðbrögðum. Samfélagsátakið „Tökum samtalið“ Vorið 2025 hófst samfélagsátak undir yfirskriftinni „Tökum samtalið". Markmið þess var að auka vitund um birtingarmyndir ofbeldis meðal barna og skaðleg áhrif þess, og kynna þau úrræði sem eru í boði. Rafrænir fræðslufundir voru haldnir fyrir foreldra, fagfólk í skólum og starfsfólk íþróttahreyfingarinnar. Upptökur af fundunum eru aðgengilegar sem fræðsluefni og hafa náð til fjölda fólks um land allt. Átakið er þó ekki aðeins vitundarvakning heldur hluti af markvissri vinnu að varanlegum breytingum á verklagi og viðbrögðum innan skóla- og frístundastarfs. Í október 2025 var haldinn fjölmennur vinnufundur undir yfirskriftinni „Frá orðum til aðgerða - saman tryggjum við öryggi barna". Þar voru kynnt þau úrræði sem þegar eru til staðar og drög að nýju verklagi fyrir grunnskóla. Fundurinn undirstrikaði mikla þörf á samræmdum viðbrögðum og hve mörg eru reiðubúin að leggja sitt af mörkum. Fyrirbyggjandi starfshættir í forgrunni Nýtt verklag leggur megináherslu á fyrirbyggjandi starfshætti í skóla- og frístundastarfi. Markmiðið er að skapa umhverfi þar sem börnum og ungmennum líður vel, þau finna fyrir öryggi, trausti og þurfa því síður að grípa til krefjandi hegðunar eða ofbeldis til að tjá sig. Nálgunin byggir á því að styrkja daglegt starf, samskipti og tengslamyndun þannig að jákvætt og styðjandi skólaumhverfi sé grunnurinn að öllu starfi. Stuðningur við innleiðingu Unnið er að gerð stuðningsefnis, þar á meðal stuttra fræðslumyndbanda, sem styðja við innleiðingu fyrirbyggjandi vinnubragða og auðvelda starfsfólki að tileinka sér verklagið í daglegu starfi. Samhliða þessari uppbyggingu er skýrt verklag um viðbrögð þegar upp koma krefjandi aðstæður. Markmiðið er að draga úr þörf fyrir íþyngjandi inngrip með því að bregðast snemmt við af nærgætni, með velferð barnsins og alls skólasamfélagsins að leiðarljósi. Breið samvinna um sameiginlegt verkefni Verklagið er unnið af breiðum samstarfshópi á vegum mennta- og barnamálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, ásamt fulltrúum úr skólasamfélaginu og stofnunum sem sinna málefnum barna. Stefnt er að því að ljúka vinnu við verklagið í mars 2026. Ábyrgð fullorðinna Þetta er samfélagsátak í orðsins fyllstu merkingu. Víðtæk fræðsla og skýrir verkferlar skipta miklu máli en duga skammt ef við tölum ekki saman, hlustum og bregðumst við á samræmdan máta. Á vef MMS, stoppofbeldi.namsefni.is er að finna fjölbreytt fræðsluefni um ofbeldi ásamt leiðbeiningum fyrir foreldra og starfsfólk sem starfar með börnum og ungmennum. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar og úrræði fyrir börn og ungmenni á ofbeldisgátt 112.is. Vakni grunur um ofbeldi gegn barni skal ávallt tilkynna það. 112 tekur við tilkynningum og tryggir að þær fari í réttan farveg. Það er hlutverk fullorðinna að bregðast við og koma upplýsingum áfram, en hlutverk fagfólks að meta málið og ákveða næstu skref. Með þessum hætti styrkjum við samræmd viðbrögð og tryggjum að áhyggjur og upplýsingar leiði til viðeigandi aðgerða. Öryggi barna er sameiginlegt verkefni Þetta er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn ofbeldi meðal og gegn börnum fyrir árin 2025–2026. Öryggi barna byggir á því að við tölum saman, hlustum og bregðumst við. Öryggi barna er sameiginlegt verkefni okkar allra. Tökum samtalið. Saman. Alfa Jóhannsdóttir, forvarnarfulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.Bergdís Wilson, sviðsstjóri skólaþróunarsviðs Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.Linda Hrönn Ingadóttir, sérfræðingur á skrifstofu barnamála, mennta- og barnamálaráðuneytið.Höfundar eru fulltrúar í aðgerðahópi stjórnvalda gegn ofbeldi meðal og gegn börnum fyrir árin 2025-2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Ofbeldi gegn börnum Lögreglan Skóla- og menntamál Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar