„Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. mars 2026 17:04 Victoria og David Beckham óskuðu syni sínum til hamingju með daginn í dag þrátt fyrir að hann hafi lokað á þau. Hjónin David og Victoria Beckham sendu syni sínum, Brooklyn Beckham, afmæliskveðjur í tilefni dagsins. Brooklyn opinberaði erjur fjölskyldunnar fyrir sex vikum síðan, sakaði foreldrana um að reyna að skemma samband hans við eiginkonuna Nicolu Peltz og sagðist hafa lokað á þau.
Brooklyn tjáði sig um deilur fjölskyldunnar í sex síðna færslu á Instagram 19. janúar síðastliðinn þar sem hann bar David og Victoriu þungum sökum og sakaði um lygar og pretti til þess að viðhalda fullkominni ímynd fjölskyldunnar. Erjurnar virðist mega rekja til brúðkaups Brooklyns og Nicolu Peltz þar sem sonurinn sagði móður sína hafa hagað sér ósæmilega. Deilt hefur verið um sannleiksgildi frásagnarinnar, plötusnúðurinn DJ Fat Tony, sem þeytti skífum í brúðkaupinu, virtist staðfesta frásögn Brooklyn meðan söngvarinn Marc Anthony, sem tróð þar upp, sagði atburðina hafa verið ýkta úr öllu hófi. Sjá einnig: Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Hvorki David né Victoria hafa tjáð sig beint um yfirlýsingar Brooklyns. David fór þó í viðtal í janúar þar sem hann ræddi um samfélagsmiðlanotkun barna og sagði að börn mættu gera mistök. Þótti fólki hann vera þar að tala um Brooklyn. Fylgir foreldrunum ekki á miðlunum Foreldrarnir óskuðu Brooklyn síðan bæði til hamingju á Instagram-hringrásum sínum í dag en hann á 27 ára afmæli. Bæði birtu þau gamla sundlaugarmynd af sér með barnungum Brooklyn og skrifuðu við hana: „Tuttugu og sjö í dag 🥹. Til hamingju með daginn Bust, við elskum þig“ og „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“. Lafði Victoria birti líka gamla mynd af mæðginunum saman með kveðjunni: „Til hamingju með 27 ára afmælið Brooklyn, ég elska þig svo mikið“. David birti sams konar mynd af feðgunum saman með kveðjunni: „Til hamingju með daginn Bust. Elska þig X.“ Myndin sem foreldrarnir deildu af syninum. Buster og Bust eru viðurnefni Davids fyrir elsta son sinn sem hann hefur jafnframt látið flúra á háls sinn. „Ég hef alltaf kallað Brooklyn Buster frá deginum sem hann fæddist,“ hefur David áður sagt. Brooklyn fylgir hvorki móður sinni né föður á Instagram þannig kveðjurnar munu sennilega ekki berast nema gegnum þriðja aðila.
Deilur hjá Beckham-fjölskyldunni Bretland Tímamót Hollywood Tengdar fréttir Kjólasaga Brooklyns loðin Það hefur vart farið fram hjá neinum að Beckham-fjölskyldan stendur nú í sögulegum deilum sem vöktu sérstaklega mikla athygli í gær þegar Brooklyn elsti sonur Victoriu og Davids opnaði sig um áralangar erjur hans og fjölskyldu hans. 20. janúar 2026 14:56 Mest lesið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira
Kjólasaga Brooklyns loðin Það hefur vart farið fram hjá neinum að Beckham-fjölskyldan stendur nú í sögulegum deilum sem vöktu sérstaklega mikla athygli í gær þegar Brooklyn elsti sonur Victoriu og Davids opnaði sig um áralangar erjur hans og fjölskyldu hans. 20. janúar 2026 14:56