Upp­gjörið: Haukar - ÍR 28-21 | Haukar of stór biti fyrir ÍR

Hjörvar Ólafsson skrifar
Freyr Aronsson skorar eitt af mörkum sínum í leiknum. 
Freyr Aronsson skorar eitt af mörkum sínum í leiknum.  Vísir/Anton Brink

Haukar urðu í kvöld bikarmeistarar í handbolta karla eftir sannfærandi 28-21 sigur liðsins gegn ÍR í úrslitaleik keppninnar í Kuehne+Nagel höllin að Ásvöllum. Þetta er í áttunda skiptið sem Haukar verða bikarmeistarar í karlaflokki í handbolta.

Leikmenn Hauka tóku leikinn föstum tökum strax frá upphafi leiksins og ÍR-ingar þurftu að hafa gríðarlega mikið fyrir hverju marki sem þeir skoruðu. 

Varnarmúr Hauka var þéttur og þar fyrir aftan var Grétar Ari Guðjónsson í miklum ham. Grétar Ari varði 19 skot í leiknum, þar af eitt vítakast og var með rúmlega 50 prósent markvörslu. 

Lítið var skorað í upphafi leiks en Haukar byggðu þar hægt og rólega upp þægilegt forskot en staðan var 5-1 um miðbik fyrri hálfleiks. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira