Upp­gjör: Fram - ÍR 26-34 | Öruggur og mikil­vægur sigur ÍR

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
_DSF5993
vísir/Anton

ÍR átti ekki í neinum vandræðum gegn Fram þegar að liðin mættust í Olís deild kvenna í handbolta í dag, lokatölur 34-26 ÍR í vil. Aðeins einu stigi munaði á liðunum fyrir leik dagsins en með sigri sínum í dag kemur ÍR sér vel fyrir í 4.sæti deildarinnar.

ÍR náði fljótt yfirhöndinni í leiknum sem lagði grunninn að forskoti liðsins. Þegar um tíu mínútur voru liðnar hafði liðið náð fjögurra marka forystu. Fram náði þó fínum kafla um miðbik fyrri hálfleiks og tókst að minnka muninn niður í tvö mörk.

Tapaðir boltar og misheppnuð skot heimakvenna gáfu gestunum tækifæri að refsa. ÍR tókst að styrkja stöðu sína hratt og fór liðið því með sjö marka forystu inn í hálfleikinn, 10-17.

Fram sýndi góða baráttu í síðari hálfleiknum en tapaðir boltar og misheppnuð skot komu aftur í veg fyrir að liðið næði að minnka muninn.

ÍR nýtti sér stöðuna vel, hélt stjórn á leiknum og nýttu færin sín vel. Verðskuldaður átta marka sigur niðurstaðan.

Atvik leiksins

ÍR tók leikhlé þegar þrjár sekúndur voru eftir. Þegar því lauk byrjaði Matthildur Lilja Jónsdóttir með boltann og virðist hún hafa ætlað að taka skotið frá eigin vallarhelmingi en hætti við þegar tíminn kláraðist. Mörgum til mikillar skemmtunar á bekkjunum og í stúkunni.

Stjörnur og skúrkar

Matthildur Lilja Jónsdóttir og Sara Dögg Hjaltadóttir voru öflugar fyrir ÍR en báðar voru með tíu mörk.

Í liði Fram var Harpa María Friðgeirsdóttir markahæst með sex mörk.

Stemning og umgjörð

Stemningin var svona í takt við það sem búast má við á leik sem hefst kl 14:30 á laugardegi. Stúkan hálftóm en gott andrúmsloft og flott umgjörðin hér í Úlfarársdal.

Dómarar

Ramunas Mikalonis og Ómar Ingi Sverrisson sáu um leikinn í dag. Það var aðeins einu sinni kíkt í skjáinn en annars var þetta svona nokkuð auðveld vakt. 

Helsta áskorun dómarana fólust í samskiptum við þjálfara liðanna og undir lok leiksins fékk Haraldur Þorvarðarson, þjálfari Fram, að líta gula spjaldið fyrir munnbrúk.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira