„Ekki endilega eitthvað sem ég þarf að upplifa aftur“ Valur Páll Eiríksson skrifar 20. febrúar 2026 08:01 Snorri Steinn Guðjónsson Vísir/Vilhelm Snorri Steinn Guðjónsson keyrði sig gjörsamlega út á nýliðnu Evrópumóti í handbolta þar sem hann stýrði Íslandi til besta árangurs liðsins í 16 ár. Mótið var mikill tilfinningarússibani og þrátt fyrir svekkelsi er ástæða til bjartsýni fyrir framhaldið.
Tæpar þrjár vikur eru síðan að Ísland lauk leik á EM þar sem liðið lenti í fjórða sæti, sem er besti árangur liðsins á stórmóti í 16 ár. Þá lauk rúmlega mánaðar törn og örmagna Snorri Steinn sem sneri heim til Íslands. „Ég var nú nánast veikur sko. Ég var bara tómur. Maður átti ekkert eftir og ég held það sé bara eðlilegasti hlutur í heimi. Á mótinu sjálfu þegar á öllu gengur ertu ekkert að velta því fyrir þér. Þú kemst ekki upp með það. Þetta er bara stórmót og þú ferð í gegnum það. Svo er eðlilegast í heimi þegar þú kemur heim, að þú krassir aðeins,“ segir Snorri Steinn. Vill ekki upplifa það aftur Einn dagur var tilfinningaríkari en aðrir. Þegar Ísland gerði 38-38 jafntefli við Sviss og von um undanúrslit virtist úti áður en jafntefli Ungverja við Svía greiddi leiðina á ný um sex klukkustundum síðar. „Þessi rússibani eftir Sviss-leikinn þegar manni fannst þetta vera farið og þetta kom aftur. Það eru öfgar í báðar áttir,“ „Það er yfirleitt gott og slæmt að spila fyrsta leik. Þegar þú tapar er það mjög vont. Ég er ekki viss um að þessi staða hafi oft komið upp að ég þurfi að halda tvo fundi eftir sama leikinn. Þeir eru algjörlega á sitthvorum endanum á stemningu og tilfinningum. Auðvitað var endirinn góður á þeim degi. En þetta er ekkert endilega eitthvað sem ég þarf að upplifa aftur,“ segir Snorri Steinn. Situr enn í honum Ísland tapaði báðum leikjum sínum þegar komið var í úrslitahelgina í Herning. Fyrir Dönum í undanúrslitum og Króötum um bronsið. Snorri segir vonbrigði að hafa farið verðlaunalaus af mótinu. „Það náttúrulega situr í mér að hafa ekki náð að vinna Dani og komast í úrslit. Svo situr það í mér að hafa ekki náð að klára medalíu. Ég þekki það sjálfur að ná medalíu að það er munur því og að lenda í fjórða sæti. Það á alltaf eftir að trufla mann ef hún kemur ekki einhvern tímann seinna.“ Bullandi trú á liðinu Hefurðu trú á því að þetta lið geti unnið til verðlauna á næstu mótum? „Nú þarf maður að fara varlega, varðandi væntingastjórnun og allt þetta. Ég er búinn að upplifa hvað þetta er erfitt og það krefst helvíti mikils að ná svona langt. En ef þú kemst einu sinni í undanúrslit þá geturðu alveg gert það aftur,“ „Ég hef bullandi trú á þessu liði. Mér finnst þetta frábærir strákar og það ótrúlega gaman að fá að þjálfa þá. Það er krefjandi og þeir gera mann betri. Þannig að já, ég trú á því,“ segir Snorri Steinn. Viðtalið má sjá í spilaranum.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira